Norðurslóð - 29.10.1984, Síða 3

Norðurslóð - 29.10.1984, Síða 3
W Sparisjóóur Svarfdœla • Dalvik Vænlegur sproti á meiði atvinnulífsins Sæplast h.f. Nýtt fyrirtæki tók til starfa á Dalvík á síðastliðnu vori. Sæplast heitir það og framleiðir einkum plastkassa og annað af plastkyni til nota í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Blaðið ræddi við fram- kvæmdastjórann, Pétur Reimars- son, hér einn góðviðrisdaginn í miðjum október. Hann reyndist góður viðmælis og veitti greið- lega upplýsingar um fyrirtækið. Nú vita e.t.v. flestir Dalvíkingar allt, sem vita þarf um þetta mál, en þá er þess að minnast að meirihluti lesenda Norðurslóð- ar eru annarstaðar búsettir, en hefur þó áhuga á gangi mála þar. Fyrirtækið var stofnað og starírækt í Garðarbæ fyrir sunnan, en gekk ekki sem skyldi og var auglýst til sölu. Iðn- þróunarfélag Eyjafjarðar og árvakrir menn hér á staðnum veittu þessu athygli og niður- staðan var sú að á skömmum tíma var stofnað til samtaka um að kaupa þetta fyrirtæki, þ.e. tæki og framleiðsluleyfi, og setja það niður hér á Dalvík. Síðan var stofnað formlegt hlutafélag um 20 einstaklinga flestra heimamanna hér plús Iðnþróunarfélagsins, sem er aðili að ca. 8 hundraðshlutum. Hlutaféð er 6 milljónir, en stofn- kostnaður var 17-18 millj. Félag- ið tók á leigu fiskhús Vinar s.f. og starfar þar við þrönga en að öðru leyti góða aðstöðu. Framleiðslan Eins og fyrr segir er framleiðsl- an sem stendur fyrst og fremst fiskiker af 3 stærðum, 500, 660 og 1000 lítra, sem bæði eru Frá vinstri: Pétur forstjóri, Jón Baldvinsson bæjarstjórnarmaður, Stefán Jón Bjarnason bæjarstjóri og Steingrímur Sigfússon þingmaður. notuð í fiskiskipunum og við löndun og gámaflutninga, en stóru kerin einkum í saltfisk- vinnslunni, þar sem þau koma í staðinn fyrir málmkerin gömlu. Þá eru einnig framleitt bretti sérhönnuð til að bera smærri fiskikassa (70 og 90 lítra), í flutningi. Af öðrum vörum, sem fyrir- tækið framleiddi í minni mæli fyrir sunnan, og gæti aftur gert hér hvenær sem er, má nefna saltkistur, ruslatunnur og gerfi- gæsir. Framleiðslan nú er ca. 20 ker á dag, en verð þeirra er um kr. 8000,00 og geta þá snjallir reikningsmenn fundið út daglegt framleiðsluverðmæti. Það eru 5-6 kýrverð sagði blaðamað- urinn. Reksturinn gengur prýðisvel og miklu betur en fyrir sunnan. Afköst eru miklu meiri bilanir færri og minna sem gengur úr. Starfsmenn Það eru 7 menn starfandi í verk- smiðjunni núna og það er unnið á tvískiptum vöktum sleitu- laust frá mánudagsmorgni til kl. 5 á föstudögum. Verkstjóri er Jón Gunnarsson. Pétur lætur þess getið óspurð- ur að hann hafi einvalaliði á að skipa og það geri gæfumuninn hvað varðar árangurinn. Blaða- maður horfði reyndar á tvo starfsmenn taka eitt kerið úr mótinu og þeir höfðu óneitan- lega snör handtök við verkið þá stundina. En það er nú kannske ekki beint að marka. Menn verða oft svo skrambi duglegir frammi fyrir fjölmiðlunum. Hér skal þess getið að stjórn hlutafélagsins skipa eftirtaldir 5 menn: Matthías Jakobsson formaður, Hallgrímur Hreins- son, Jón Friðriksson læknir í Reykjavík einn af fyrri eigend- Bæjarstjórinn slær smiðshöggið betri t.d. að því leyti að hægt er á auðveldan hátt að gera við skemmd ker með íbræðslu. Enn sem komið er hefur öll framleiðslan selst eftir hendinni og ekki verið hægt að koma upp neinum lager. Kaupendur eru aðallega hér innanlands, en nokkuð hefur líka selst til Færeyja, Skotlands og írlands. Sæplast var með sýningarbás á sjávarútvegssýningunni í Reykjavík í fyrra mánuði og þar vöktu framleiðsluvörur þess mikla athygli. Frá opnunarathöfninni. Forstjórinn útskýrir starfsemina. Þau hjón eiga 3 börn 12, 11 og 9 ára. Aðspurður, hvort ekki sé umhendis að starfa á Dalvík og búa á Akureyri, segir Pétur að það sé nú ekkert snúnara en algengt sé fyrir sunnan, þar sem fjöldi manna, sem býr fyrir austan fjall, vinnur þó í Stór- Reykjavík. „Maður verður auðvitað að vera við því búinn að geta teppst á öðrumhvorum endanum við og við á veturna. Það er ekkert voðalegt mál“. Hann segist kunna prýðisvel við sig hér á Dalvík og hyggur ekki á neinar breytingar á högum sínum í fyrirsjáanlegri framtíð. Blaðið þakkar Pétri greið svör við spurningum fáfróðs blaðamanns og óskar honum og fyrirtækinu langra og góðra lífdaga. H. E. Þ. Einnig hefur tekist að gera hagstæðari kaup á hráefninu, sem er pólýetelýn fengið frá Svíþjóð. Nægur markaður Af þessu leiðir, að unnt hefur verið að bjóða vöruna á lægra verði en áður, en auk þess er hún um fyrirtækisins, Valdemar Snorrason og Vilhjálmur Þórs- son. í lok viðtalsins spurðum við Pétur framkvæmdastjóra um hann sjálfan. Hann er Reykvík- ingur, stundaði efnaverkfræði við H.í. og Tækniháskólann í Lundi í Svíþjóð. Lauk þar prófi 1975 og bætti síðan við sig 4 árum þar og varð doktor í faginu 1979. Undanfarin ár hefur hann unnið hjá Rann- sóknarráði ríkisins í Reykjavík. í vor flutti fjölskyldan til Akureyrar, hann til að taka við starfinu hér, konan, Erna Indriðadóttir, m.a. til að taka við starfi sem fréttamaður Útvarpsins hér norðanlands. Dalvíkingar - Nágrannar Sparið bensín og óþarfa slit á hjólbörðum. Vélastillum og stýrisstillum í fullkomnum tækjum. Eigum fyrirliggjandi flestar stærðir snjó- hjólbarða. Bílaverkstæði Dalvíkur. Simi 61200 Handhægar gjafir Sparisjóður Svarfdæla hefur til sölu minnis- pening vegnaaldarafmælissjóðsins í maísíðast- liðinn. 100 tölusett eintök - dýrmætir safngripir. Verð kr. 2.500,- Ennfremur: Til sölu er nú einnig nokkurt upplag af afmælis- riti sjóðsins. 80 myndskreyttar síður - góð gjöf til brottfluttra Svarfdæla. Verð kr. 350,- Fæst hjá Sparisjóðnum, sími 61600 og hjá Júlíusi Daníelssyni, Búnaðarfélagi íslands, Reykjavík sími 19200. ^i?FDí& NORÐURSLÓÐ - 3

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.