Norðurslóð - 29.10.1984, Qupperneq 6

Norðurslóð - 29.10.1984, Qupperneq 6
Æskulýðsstarfið Viðtal við Gísla Pálsson Undanfarið ár hafa verið miklar framkvæmdir í Gimli (gamla læknishúsinu) en ákveðið var að breyta húsinu þannig að þar mætti starfrækja félagsmiðstöð, auk þess sem búið yrði betur að tónlistarskólanum sem, eins og kunnugt er, hefur aðsetur á neðri hæð hússins. Norðurslóð náði tali af Gísla Pálssyni og innti hann eftir framkvæmdum, svo og fyrirhugaðri starfsemi í húsinu. Það kom fram að á efri hæð er búið að breyta suðurherbergj- unum þrem í einn sal. Niðri er búið að standsetja nýjar snyrt- ingar sem munu þjóna’ bæði tónlistarskólanum og þeirri starfsemi sem uppi á lofti verður. Fyrirhugað er síðan að útbúa eitt herbergi til viðbótar niðri fyrir tónlistarskólann en uppi verður væntanlega næst ráðist að gömlu biðstofunni og hún stækkuð inn í aðliggjandi herbergi. Fyrst um sinn mun hún þó verða notuð óbreytt sem setustofa. Öllum er ljós sú mikla starfsemi sem fram fer í tón- listarskólanum, en hvaða hug- myndir eru uppi um notkun efri hæðarinnar? Gísli segir að í sínum huga sé um það að ræða að veita öllum æskulýðs og íþróttafélögum aðstöðu til fundarhalda og félagsstarfsemi. Reyndar eigi öll heilbrigð tómstundastarfsemi að geta átt athvarf í húsinu. Gísli getur þess að nú þegar sé farið að nota salinn til fundarhalda því bæjarstjórn sé tvisvar búin að funda þar. Þau húsgögn sem nú séu í salnum séu fengin að láni, en búið sé að panta borð og stóla og gardínur muni ungling- arnir sjálfir sauma undir öruggri leiðsögn Dóru Reimars. Þannig sigli allt í það að hægt verði að hefja starfsemi af fullum krafti. En hvenær gæti það orðið? Gísli segist vona að í nóvem- ber verði hægt að hefja starfsemi á vegum íþr. og æskulýðsráðs í húsinu. Fyrirhugað er að sú starfsemi verði með sviðuðu sniði og var í Bergó í fyrravetur þ.e. opið hús fyrir bæði eldri og yngri krakka. Hugmyndin er að reyna líka að vera með eitthvað um helgar, sérstaklega fyrir unglingana. í fyrravetur var bæði teflt og spilað í Bergó og kunnáttumenn fengnir til að leiðbeina. Gísli kvaðst vona að framhald gæti orðið á slíku og að jafnframt mundi íþr. og æskulýðsráð, og þá hann sem æskulýðsfulltrúi, reyna að hafa opin augun fyrir nýjungum í starfinu og gæti þar verið um að ræða bæði kynningar á ýmsu því sem vekur áhuga ungmenna eða klúbbastarfsemi að ýmsu tagi. Búið er að halda fund með forsvarsmönnum þeirra félaga- samtaka í bænum sem hafa Haustið blíða Frh. af forsíðu. 20. október. Áfram heldur verkfall bóka- gerðarmanna og enn frestast útkoma Norðurslóðar. Og nú er slátrun lokið á Dalvík, svo unnt er að birta niðurstöðutölur úr sláturhúsinu þar. Jóhannes Haraldsson, sem verið hefur vigtarmaður þar í 23 ár veitti eftirfarandi upplýsingar: Alls var slátrað 8836 dilkum og 764 eldra fé. Er þetta rösk- lega 1000 dilkum færra en í fyrra, sem út af fyrir sig hefði minnkað kjötmagnið um 16000 kg. Þar á móti kemur meiri meðalþungi, sem gerir tæpl. 9000 kg. í heild. Nettóminnkun er því aðeins ca 7 tonn kjöts. Meðalfallþungi dilka varð 16,05 kg., sem er rúmlega 1 kílói meira en í fyrra, en það var að sínu leyti hæsta meðaltal, sem vitað er um að orðið hafi á sláturhúsinu þangað til nú. Flokkun kjötsins í gæða- flokka var í samræmi við þetta. í fyrsta flokk fóru heil 93,95%, í annan flokk 5,22% og aðeins 70 skrokkar eða tæplega 1% í þriðja flokk. Hæsta meðalþunga, þeirra, sem lögðu inn 30-100 dilka, hafði Ástdís í S-Holti 19,38 kg. En hæstur þeirra, sem lögðu inn meira en 100 dilka var Andrés á Kvíabekk með 18,83 kg. Þó að það sé hálfgert hégóma- mál, þá skal að lokum getið þeirra, sem þyngsta áttu einstaka dilka. Methafinn var áðurnefndur Andrés á Kvía- bekk, sem átti 27,7 kg. dilk, Félagsbúið á Möðruvöllum fram í Eyjafirði 27,6 kg. dilk og Júlíana Ingvadóttir í Ólafsfirði 27,5 kg. dilk. Það er ekki að spyija að haglendinu í Ólafsfírði. Þökkum auösýnda samúð og vináttu, blóm, kransa og minningargjajir við andlát og útjör Guörúnar Magnúsdóttur húsfreyju í Koti. Aðstandendur. Inni/egar þakkir til allraþeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útjör móður okkar, tengda- móður, ömmu, langömmu og langalangömmu. Guðrúnar Friöfinnsdóttur fyrrum húsfreyju á Böggvisstöðum. Hildur Loftsdóttir Bergljót Loftsdóttir Guðjón Loftsson Björgólfur Loftsson Garðar Loftsson Þórgunnur Loftsdóttir Lára Loftsdóttir Sigríður Loftsdóttir Aðalsteinn Loftsson Ásgeir Sigurjónsson Marinó Þorsteinsson Magnús Jónsson Jónína Kristjánsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarna börn. æskulýðs- eða íþróttastarfsemi innqn sinna vébanda, og kynna þeim þá möguleika sem starf- semi á þeirra vegum getur átt í húsinu. Einnig sagði Gísli að ætlunin væri að hafa mjög náið samstarf við skólann um það félagsstarf sem boðið verður upp á. Norðurslóð þakkar Gísla upplýsingarnar og væntir að lesendur séu nokkru fróðari um það hvaða hlutverki þessu gamla, virðulega húsi er ætlað að þjóna í framtíðinni og ugglaust mun leið margra Dalvíkinga liggja í Gimli, hér eftir sem hingað til. Sv. J. Þess skal getið þeim til skýringar, sem ekki eru með á nótunum, að ástæðan til þess að fé á Möðruvöllum í Eyjafirði kemur þarna eins og skollinn úr sauðaleggnum er þessi: Að beiðni riðunefnda í Eyjafirði var ákveðið að fé af riðubæjunum í Saurbæjarhreppi, þ.e. Möðru- völlum og Villingadal, væri slátrað í sláturhúsinu á Dalvík þar sem hvort eð er er allt meira eða minna mengað af riðuveiku fé. Fjárkaup Áfram heldur riðan sigurgöngu sinni hér í byggðarlaginu og leggur undir sig nýja bæi. Á öðrum bæjum virðist hún aftur á móti vera í rénun. Menn eru að vonum næsta ráðvilltir, hvað gera skuli og sýnist sitt hverjum. Að tilhlutan riðunefnda og með ráðum Sauðfjárveikivarna er verið að fara af stað með nokkurs konar tilraun með að flytja inn lömb af fjarlægum, ósýktum svæðum. Á dögunum var sóttur bíl- farmur af lömbum, 86 stykki, úr Þistilfirði frá^bæjunum Laxár- dal, Holti, S-Álandi og Gunnars- stöðum. Og þegar verkfallið leysist verða flutt sjóleiðina 80 lömb vestan af Ströndum frá bæjunum Bæ, Árnesi, Melum og Steintúni í Trékyllisvík. Kaupendur eru ýmsir íjár- eigendur í sveitinni og á Dalvík. Verð lambanna er 57 krónur per. kíló í lifandi vigt. 40 kg. lamb kostar þá kr. 2280 og svo er það flutningskostnaðurinn. finkalff eftir Noél Coward Sýningar föstudaga og sunnudaga kl. 20.30. Miðapantanir ísima (96)25128 virka daga kl. 14-18 og í síma (96) 24043 laugardaga og sunnudaga kl. 14-18 og sýn- ingardaga frá kl. 19. Nánari upplýsingar í síma (96) 25073. Velkomin á sýningar Leikfélags Akureyrar! Á faraldsfæti Við birtum hér þrjár myndir frá ferðalögum á síðast- liðnu sumri. Göngumenn Ferðafélagsins nálgast Klaufabrekknaskarð á leið sinni af Lágheiði. Sjá yngsta þátttakandann 7 ára stúlkubarn. - Ljósm. H. H. Þátttakendur í sameiginlegri ferð Ferðafélagsins og Búnaðarfélags Svarfdæla út á Flateyjardal. Á miðri mynd er leiðsögumaðurinn Sverrir Guðmundsson á Lómstjörn, Ijóshærður. í baksýn Brettingsstaðir. - Ljósm. S. H. Hestamannafélagið Hringur kemur af fjöllum eftir ferð á Vindheimamela. Hluti leiðangursins kemur niður frá Stóruvörðu á Heljardalsheiði. Rimarnar loka fyrir dalinn. - Ljósm. H. H. Frá Sparisjóðnum Við vekjum athygli á breyttum og bættum vaxtakjörum sem við bjóðum nú upp á. Við hvetjum viðskiptavini til að koma og kynna sér hvað í boði er. Eflum Sparisjóðinn - Hollt er heima hvað. W Sparisjóóur Svarfdœla • Dalvlk Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með heimsóknum gjöfum og skeytum á sjötugsafmæli minu 4. júli í sumar. Megi gleði og gæfa fylgja ykkur alla tíma. Kristín Sigurhjartardóttir frá Skeiði. Karlsbraut 18, Dalvík. 6 -NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.