Norðurslóð - 25.03.1986, Blaðsíða 3
Aðalfundur Sparisjóðs Svarfdæla
í 102. sinn
Fundur í Bergþórshvoli 1S. mars.
Laugardaginn 15. mars var
aðalfundur Sparisjóðs Svarf-
dæla haldinn í Bergþórshvoli,
102. aðalfundurinn frá upphafi.
Formaður sparisjóðsstjórnar
Valdemar Bragason og spari-
sjóðsstjóri Friðrik Friðriksson
gáfu skýrslur og lögðu fram
reikninga sjóðsins fyrir árið
1985 eins og íög gera ráð fyrir.
Ágæt afkoma
Inneignir sparifjáreigenda hafa
vaxið mjög mikið á árinu og
voru í árslokin tæplega 120
milljónir króna á hinum ýmsu
tegundum innlánsreikninga fyrir
utan innistæður á hlaupa- og
gíróreikningum sem voru 17,7
milljónir. Til viðbótar má nefna
innistæður á gjaldeyrisreikning-
um, aðallega á dollarareikning-
um, sem nema samtals um 600
þúsund krónum, og er þetta
tiltölulega nýlegt fyrirbæri hjá
Sparisjóði Svarfdæla.
Þessir fjármunir eru að sjálf-
sögðu að mestu leyti í útlánum
fyrir utan það fé, sem bundið er í
Seðlabankanum samkvæmt lög-
Lifur handa Rússum
Rúgbrauð með lifur, namm namm
Séð yfir vinnusalinn.
I júníblaði Norðurslóðar í fyrra
var greint frá niðurlagningar- og
niðursuðufyrirtækinu, sem þá
hét Stórhóll s.f. en nú Pól-
stjarnan h.f. til húsa að Sand-
skeiði 20 á Dalvík. Þar var birt
mynd af starfsmönnunum
fjórum og viðtal við forstjórann,
Jón Tryggvason, sem skýrði frá
ráðagerðum og áætlunum um
nýjungar í rekstrinum.
Nú hafa þessir draumar ræst
að verulegu leyti eins og skýrt
hefur verið frá hér í blaðinu
nýlega.
Það er býsna gaman að líta
þarna inn um þessar mundir.
Það fyrsta, sem maður sér og
vitnar um líf og athafnir, er 5-10
bílar, sem standa útifyrir. Enda
reynist það svo, að innifyrir er
fjöldi fólks, milli 10 og 15manns
og allt í fullum gangi.
Jón forstjóri gengur um í
hvítum slopp og með engilsvip
og allt í kring starfsfólk, aðal-
lega konur, hver í sínu hlut-
verki. Verkstjóri er Petra Ingva-
dóttir fískiðnaðarmaður.
Um þessar mundir er fram-
leiðslan eingöngu niðursoðin
þorsklifur fyrir Rússlands-
markað. Ivíagnið er 6-8 þúsund
dósir á dag, skaust upp í 9
þúsund einn daginn. Dósin
vegur 115 grömm þ.e. inni-
haldið. Vélin spýtir úr sér einni
dós á 1 og 1/3 sekúndu fresti
þ.e. 2400 á klukkustund, ef hún
gengur stöðugt.
Við birtum hér mynd af
dósinni með rússneska letrinu.
Rússneskusérfræðingur blaðs-
ins hefur vinsamlegast stafað
fyrir okkur orðin á latínuletur
og snúið svo á íslensku. Þar með
hefur áhugasamur lesandi
fengið uppfræðslu í rússnesku.
PÉCHENJ TRESKÍ NATÚRA-
UNAJA = NÁTTÚRULEG
ÞORSKLIFUR
IZGOTOVLENO V ÍSLANDÍf
= ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA.
VÉS NATTÓ 115 GR = NETTÓ
VIGT 115 GR.
Blaðamaður fékk lifrardós í
nestið heim með sér. 20-30% af
lýsinu er fjarlægt í vinnslunni,
svo lifrin er hreint ekki bráðfeit.
Hún smakkast alveg stórvel
ofan á rúgbrauð. Það getur
blaðamaður borið um. Nei, það
er óþarft að vorkenna Rússum
að eta þennan mat.
1CEL4ND
mTERS
njrojofwrno b
UCJAILJIIÍI
BEC HETTO 115 fp.
Náttúruleg þorsklifur - íslensk framleiðsla.
um, en bindiskyldan lækkaði
reyndar á árinu um leið og
breytingar voru gerðar á fyrir-
komulagi afurðalánastarfsemi í
landinu. Langmestur hluti ráð-
stöfunarfjár sjóðsins eru í
almennum útlánum til almenn-
ings og atvinnuvega hér í
byggðarlaginu, einkum í formi
víxil- og skuldabréfalána.
Sem dæmi má nefna, að hús-
byggingalán hafa um langt
skeið verið í ákveðnum skorð-
um og eru sem stendur 350
þúsund á nýbyggingu en 200
þúsund þegar um húskaup er að
ræða.
Rekstur sjóðsins skilaði ágæt-
um hagnaði á árinu, varasjóður-
inn jókst um kr. 5.419.803 og
komst í kr. 9.086.391.
Fasteignir Sparisjóðsins, þ.e.
eignarhlutur hans í Ráðhúsinu
og húseignin að Karlsbraut 20,
eru bókfærðar á kr. 16.010.765
og húsbúnaður og áhöld á
kr. 1.091.891.
Þessi mikli rekstrarhagnaður
styrkir til muna eiginfjárstöðu
sjóðsins og eflir og treystir þessa
einu bankastofnun byggðarlags-
ins.
Menningarsjóður
Svarfdæla
Á 100 ára afmælisfundi á Grund
1. maí 1984 var tekin ákvörðun
um stofnun Menningarsjóðs
Svarfdæla á vegum sjóðsins.
Stjórn hans er skipuð einum
manni kosnum af aðalfundi
Sparisjóðsins og er hann for-
maður stjórnar. Aðrir tveir
stjórnarmenn eru kosnir af
bæjarstjórn Dalvíkur og hrepps-
nefnd Svarfaðardalshrepps.
Starfsfé sjóðsins er stofnfé
lagt fram af Sparisjóðnum 1984
og óskyldubundin framlög frá
Sparisjóðnum og öðrum, sem
kunna að vilja efla sjóðinn.
Formaður stjórnar Menningar-
sjóðsins, Þorgils Sigurðsson,
gerði á fundinum grein fyrir
úthlutun úr sjóðnum á þessu ári
og er hún svofelld:
Til Sundskála Svarfdæla Kr. 150.000
Til orgelssjóðs Dalvíkur-
kirkju - 70.000
Til Heilsugæslustöðvar á
Dalvík vegna kaupa á
hjartalínurita 50.000
Samtals Kr. 270.000
Fundurinn samþykkti, að
leggja í Menningarsjóðinn á
þessu ári kr. 500.000 svo tryggt
er, að einhverja styrki verður
unnt að veita á næsta ári.
Stjórnarkjör
Þá fóru fram kosningar í þriggja
aðalmanna og þriggja vara-
manna í stjórn sjóðsins. Kosnir
voru aðalmenn Baldvin Magnús-
son, Óskar Jónsson og Halldór
Jónsson, en varamenn Guðríður
Ólafsdóttir, Bragi Jónsson og
Hilmar Daníelsson. í stjórn
Menningarsjóðsins var kosinn
Hilmar Daníelsson í stað
| Þorgilsar Sigurðssonar, er baðst
undan endurkjöri. Fyrir voru i
stjórninni Hjörtur Þórarins-
son og Valdemar Bragason.
Miklar umræður urðu á
fundinum um uppbyggingu og
stjómarform Sparisjóðsins. M.a.
stóðu þær í sambandi við
nýsamþykkt lög frá Alþingi um
Sparisjóði, en þar er að finna
ákvæði, sem gefa undir fótinn
með breytingar frá því „ábyrgð-
armannakerfi“ sem gilt hefur
hjá sumum eldri sjóðum, eins og
Sparisjóði Svarfdæla, frá upp-
hafí.
Er þess að vænta, að á
næstunni fari fram endurskoðun
á samþykktum sjóðsins þar sem
þessi og mörg fleiri atriði verða
tekin til yfirvegunar og breytt
eins og þurfa þykir.
Olís Dalvík
auglýsir
Eigum jafnan fyrirliggjandi Varta
rafgeyma í allar tegundir bifreiða
og vinnuvéla, einnig hin viður-
kenndu aquaseal viðgerðarefni
fyrir hús.
Varta ofurkraftur ótrúleg ending.
H
Olís Dalvík - Sími 61603
NORÐURSIÓÐ - 3