Fréttablaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.05.2017, Blaðsíða 14
Aðför gagnvart fólki, sem missti heimili sín í hruninu, gagnvart ungu fólki sem ekki tekst að lifa mannsæmandi lífi hér og hrekst úr landi, gagnvart börn- um sem líða mismunun og fátækt, gagnvart foreldri sem fær ekki að umgangast barn/börn sín og einnig gagnvart fullsköpuðu ófæddu barni sem fær ekki að fæðast, tel ég vera mannréttindabrot. Einnig mannréttindabrot með aðför, sem kerfisbundið er beitt gagnvart öryrkjum og þeim hluta eldri borgara sem búa við sára fátækt og er ekki gefinn kostur á að afla sér aukatekna, því alls staðar eru skerðingarákvæði í lögum eða reglugerðum sem koma í veg fyrir það. Það er valdníðsla með aðförinni gagnvart öryrkjum, þar sem lög- festar hafa verið heimildir til TR, sem heimila stofnuninni njósnir um öryrkjann og maka hans, sem brjóta á persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Eru það ekki mannrétt- indabrot að fara með öryrkja sem afbrotamenn, sem þarf að fylgjast nákvæmlega með, jafnvel að skoða bankafærslur þeirra frá degi til dags? Ákvæði í stjórnarskrám Í 76. gr. stjórnarskrárinnar, sem er óbreytt frá 1944, segir: „Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgð- ar og sambærilegra atvika.“ Í 52. gr. stjórnarskrárinnar frá 1874 kveður enn sterkar að orði, en þar segir: „Sá, sem ekki getur sjeð fyrir sjer og sínum, og sje hann ekki skyldu- ómagi annars manns, skal eiga rjett á að fá styrk úr almennum sjóði…“ Þannig á stjórnarskráin að tryggja þeim sem verst standa grundvallar- rétt til lífs, sem fyrsta stjórnarskrá landsins kvað skýrar á um. Hvernig hefur þessu verið framfylgt? Tíundin, sem Gissur Ísleifsson biskup innleiddi 1096 var afnumin í upphafi 20. aldar. Hún tryggði fátækum framfærslu til viðbótar þeirri grunnfátæktarframfærslu, sem var hjá hreppunum. Við sam- þykkt stjórnarskrárinnar 1874 tóku við ýmis ákvæði um styrki úr „almennum sjóðum“ og skatt- heimtu með um 90 skattþrepum, sem ívilnaði þeim tekjulágu. Í dag er þetta með þveröfugum hætti, aðstoðin skert og sára fátækt skattlögð. Þeim sem leggjast inn á hjúkrunarheimili er skömmtuð skammarleg lágmarksfjárhæð til eigin nota og allir aðrir fjár- munir þeirra hirtir af þeim, eins og mögulegt er. Eins er farið með Framkvæmdasjóð aldraðra. Fjár- munir hirtir af ríki til reksturs og viðhalds í stað byggingar hjúkrun- arheimila, sem lögin ákváðu upp- haflega og sárlega vantar. Skattar ívilna þeim ríku í dag með aðeins tveimur skattþrepum. Til viðbótar eru ósýnileg skattþrep til frekari ívilnunar fyrir þá, sem lifa á eignum sínum og greiða aðeins 20% fjár- magnstekjuskatt og til viðbótar ótal leiðir fyrir þá sem varðveita eignir sínar í einkahlutafélögum. Persónuafsláttur hefur ekki fylgt launavísitölu frá 1988, sem skerðir hlut hinna fátæku, sem greiða skatt af tekjum umfram 143.224 kr. á mánuði. Hefði hann gert það, ætti persónuafsláttur að vera um 103.000 kr. á mánuði eða að mán- aðartekjur að 280.000 kr. væru ekki skattlagðar. Aðför að hinum fátæku Aðförin að öryrkjum og um 10 þúsund eldri borgurum felst í því m.a. að skammta þeim 190 til 230 þúsund kr. á mánuði eftir að hafa greitt skatt, sem er framfærsla langt undir því neysluviðmiði velferðar- ráðuneytisins sem talin er nauð- synleg til að geta framfleytt sér. Lögþvinguð greiðsla í lífeyrissjóð, þar sem okkur var talin trú um að við værum að spara til efri áranna, er hirt af ríkinu með krónu á móti krónu skerðingum almannatrygg- inga, um 30 milljarða á ári, af þeim um 10 þúsund eldri borgurum, sem fá ekkert út úr greiðslum sínum í lífeyrissjóð alla sína starfsævi. Þannig eru það að stórum hluta líf- eyrissjóðirnir sem halda almanna- tryggingakerfinu uppi en ekki ríkissjóður. Þessir einstaklingar eru vísvitandi hnepptir í fátæktar- gildru og þeim gert ómögulegt að afla sér tekna með vinnu, nema að vera skattpíndir um 73% af tekjum umfram 25 þúsund kr. á mánuði. Aðförin felst einnig í því að öll sjúkra- og þjónustugjöld hafa hækkað, lyf bera hæsta virðis- aukaskatt þveröfugt við nágranna- löndin, samhliða lækkun á öllum greiðslum ríkisins til hjálpartækja, styrkja eða bóta miðað við launa- vísitölu, sbr. t.d. að niðurgreiðsla á tannviðgerðum þessa fólks hefur verið óbreytt frá árinu 2004, þrátt fyrir að gildandi reglugerð segi annað, því fjármunir eru ekki veittir til að uppfylla ákvæðið um 70% niðurgreiðslu, sem er í reynd í dag um 15%. Með takmarkalausu óheftu eftir- liti TR yfir öryrkjum og eftirliti með skattframtölum eldri borgara kemur svo 1. júlí ár hvert með bak- greiðslum. Ef viðkomandi fékk peningagjöf, bílastyrk eða styrk til lyfjakaupa eða styrk frá sveitar- félaginu eða skrifaði bók eða seldi sumarbústaðinn sinn, svo eitthvað sé nefnt, þá eru greiðslur frá TR lækkaðar samsvarandi, þar til talið er að ofgreiðslan hafi verið endur- greidd að fullu! Það hlýtur að vera þeim öllum til skammar, sem hafa unnið að svona margbrotnu skerðingarkerfi á kostnað þeirra sem minnst hafa og vera aðför með mannréttindabroti gegn þeim og sannarlega andstætt 76. gr. stjórnarskrárinnar. Þessu vill Flokkur fólksins breyta. Styðjum hann til þess. Aðför og mannréttindabrot á Íslandi Halldór Gunnarsson fv. sóknarprest- ur og stjórnar- maður í Flokki fólksins Með takmarkalausu óheftu eftirliti TR yfir öryrkjum og eftirliti með skattframtölum eldri borgara kemur svo 1. júlí ár hvert með bak- greiðslum. Ef viðkomandi fékk peningagjöf, bílastyrk eða styrk til lyfjakaupa eða styrk frá sveitarfélaginu eða skrifaði bók eða seldi sumar- bústaðinn sinn, svo eitthvað sé nefnt, þá eru greiðslur frá TR lækkaðar samsvarandi, þar til talið er að ofgreiðslan hafi verið endurgreidd að fullu! Hvað skiptir mestu máli í menntun barnanna okkar? Hvert eigum við að stefna í skóla- og frístundastarfinu í Reykjavík fram til ársins 2030? Settu fram þínar hugmyndir og greiddu öðrum hugmyndum atkvæði eftir því hvað þér finnst að skipti mestu máli í menntun barnanna okkar. Mótum saman nýja menntastefnu á Betri Reykjavík. www.betrireykjavik.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 7- 13 45 3 1 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R14 s K o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð 3 1 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F 9 -E B 3 0 1 C F 9 -E 9 F 4 1 C F 9 -E 8 B 8 1 C F 9 -E 7 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 3 0 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.