Fréttablaðið - 31.05.2017, Qupperneq 14
Aðför gagnvart fólki, sem missti heimili sín í hruninu, gagnvart ungu fólki sem ekki
tekst að lifa mannsæmandi lífi hér
og hrekst úr landi, gagnvart börn-
um sem líða mismunun og fátækt,
gagnvart foreldri sem fær ekki að
umgangast barn/börn sín og einnig
gagnvart fullsköpuðu ófæddu barni
sem fær ekki að fæðast, tel ég vera
mannréttindabrot.
Einnig mannréttindabrot með
aðför, sem kerfisbundið er beitt
gagnvart öryrkjum og þeim hluta
eldri borgara sem búa við sára
fátækt og er ekki gefinn kostur á að
afla sér aukatekna, því alls staðar
eru skerðingarákvæði í lögum eða
reglugerðum sem koma í veg fyrir
það.
Það er valdníðsla með aðförinni
gagnvart öryrkjum, þar sem lög-
festar hafa verið heimildir til TR,
sem heimila stofnuninni njósnir
um öryrkjann og maka hans, sem
brjóta á persónuvernd og friðhelgi
einkalífs. Eru það ekki mannrétt-
indabrot að fara með öryrkja sem
afbrotamenn, sem þarf að fylgjast
nákvæmlega með, jafnvel að skoða
bankafærslur þeirra frá degi til
dags?
Ákvæði í stjórnarskrám
Í 76. gr. stjórnarskrárinnar, sem er
óbreytt frá 1944, segir: „Öllum, sem
þess þurfa, skal tryggður í lögum
réttur til aðstoðar vegna sjúkleika,
örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgð-
ar og sambærilegra atvika.“ Í 52. gr.
stjórnarskrárinnar frá 1874 kveður
enn sterkar að orði, en þar segir:
„Sá, sem ekki getur sjeð fyrir sjer
og sínum, og sje hann ekki skyldu-
ómagi annars manns, skal eiga rjett
á að fá styrk úr almennum sjóði…“
Þannig á stjórnarskráin að tryggja
þeim sem verst standa grundvallar-
rétt til lífs, sem fyrsta stjórnarskrá
landsins kvað skýrar á um.
Hvernig hefur þessu
verið framfylgt?
Tíundin, sem Gissur Ísleifsson
biskup innleiddi 1096 var afnumin
í upphafi 20. aldar. Hún tryggði
fátækum framfærslu til viðbótar
þeirri grunnfátæktarframfærslu,
sem var hjá hreppunum. Við sam-
þykkt stjórnarskrárinnar 1874
tóku við ýmis ákvæði um styrki
úr „almennum sjóðum“ og skatt-
heimtu með um 90 skattþrepum,
sem ívilnaði þeim tekjulágu.
Í dag er þetta með þveröfugum
hætti, aðstoðin skert og sára fátækt
skattlögð. Þeim sem leggjast inn á
hjúkrunarheimili er skömmtuð
skammarleg lágmarksfjárhæð
til eigin nota og allir aðrir fjár-
munir þeirra hirtir af þeim, eins
og mögulegt er. Eins er farið með
Framkvæmdasjóð aldraðra. Fjár-
munir hirtir af ríki til reksturs og
viðhalds í stað byggingar hjúkrun-
arheimila, sem lögin ákváðu upp-
haflega og sárlega vantar. Skattar
ívilna þeim ríku í dag með aðeins
tveimur skattþrepum. Til viðbótar
eru ósýnileg skattþrep til frekari
ívilnunar fyrir þá, sem lifa á eignum
sínum og greiða aðeins 20% fjár-
magnstekjuskatt og til viðbótar
ótal leiðir fyrir þá sem varðveita
eignir sínar í einkahlutafélögum.
Persónuafsláttur hefur ekki fylgt
launavísitölu frá 1988, sem skerðir
hlut hinna fátæku, sem greiða
skatt af tekjum umfram 143.224
kr. á mánuði. Hefði hann gert það,
ætti persónuafsláttur að vera um
103.000 kr. á mánuði eða að mán-
aðartekjur að 280.000 kr. væru ekki
skattlagðar.
Aðför að hinum fátæku
Aðförin að öryrkjum og um 10
þúsund eldri borgurum felst í því
m.a. að skammta þeim 190 til 230
þúsund kr. á mánuði eftir að hafa
greitt skatt, sem er framfærsla langt
undir því neysluviðmiði velferðar-
ráðuneytisins sem talin er nauð-
synleg til að geta framfleytt sér.
Lögþvinguð greiðsla í lífeyrissjóð,
þar sem okkur var talin trú um að
við værum að spara til efri áranna,
er hirt af ríkinu með krónu á móti
krónu skerðingum almannatrygg-
inga, um 30 milljarða á ári, af þeim
um 10 þúsund eldri borgurum, sem
fá ekkert út úr greiðslum sínum
í lífeyrissjóð alla sína starfsævi.
Þannig eru það að stórum hluta líf-
eyrissjóðirnir sem halda almanna-
tryggingakerfinu uppi en ekki
ríkissjóður. Þessir einstaklingar
eru vísvitandi hnepptir í fátæktar-
gildru og þeim gert ómögulegt að
afla sér tekna með vinnu, nema að
vera skattpíndir um 73% af tekjum
umfram 25 þúsund kr. á mánuði.
Aðförin felst einnig í því að öll
sjúkra- og þjónustugjöld hafa
hækkað, lyf bera hæsta virðis-
aukaskatt þveröfugt við nágranna-
löndin, samhliða lækkun á öllum
greiðslum ríkisins til hjálpartækja,
styrkja eða bóta miðað við launa-
vísitölu, sbr. t.d. að niðurgreiðsla á
tannviðgerðum þessa fólks hefur
verið óbreytt frá árinu 2004, þrátt
fyrir að gildandi reglugerð segi
annað, því fjármunir eru ekki
veittir til að uppfylla ákvæðið um
70% niðurgreiðslu, sem er í reynd
í dag um 15%.
Með takmarkalausu óheftu eftir-
liti TR yfir öryrkjum og eftirliti
með skattframtölum eldri borgara
kemur svo 1. júlí ár hvert með bak-
greiðslum. Ef viðkomandi fékk
peningagjöf, bílastyrk eða styrk
til lyfjakaupa eða styrk frá sveitar-
félaginu eða skrifaði bók eða seldi
sumarbústaðinn sinn, svo eitthvað
sé nefnt, þá eru greiðslur frá TR
lækkaðar samsvarandi, þar til talið
er að ofgreiðslan hafi verið endur-
greidd að fullu!
Það hlýtur að vera þeim öllum til
skammar, sem hafa unnið að svona
margbrotnu skerðingarkerfi á
kostnað þeirra sem minnst hafa og
vera aðför með mannréttindabroti
gegn þeim og sannarlega andstætt
76. gr. stjórnarskrárinnar. Þessu vill
Flokkur fólksins breyta. Styðjum
hann til þess.
Aðför og mannréttindabrot á Íslandi
Halldór
Gunnarsson
fv. sóknarprest-
ur og stjórnar-
maður í Flokki
fólksins
Með takmarkalausu óheftu
eftirliti TR yfir öryrkjum og
eftirliti með skattframtölum
eldri borgara kemur svo
1. júlí ár hvert með bak-
greiðslum. Ef viðkomandi
fékk peningagjöf, bílastyrk
eða styrk til lyfjakaupa eða
styrk frá sveitarfélaginu eða
skrifaði bók eða seldi sumar-
bústaðinn sinn, svo eitthvað
sé nefnt, þá eru greiðslur frá
TR lækkaðar samsvarandi,
þar til talið er að ofgreiðslan
hafi verið endurgreidd að
fullu!
Hvað skiptir mestu máli í
menntun barnanna okkar?
Hvert eigum við að stefna í skóla-
og frístundastarfinu í Reykjavík
fram til ársins 2030? Settu fram
þínar hugmyndir og greiddu
öðrum hugmyndum atkvæði eftir
því hvað þér finnst að skipti mestu
máli í menntun barnanna okkar.
Mótum saman nýja menntastefnu
á Betri Reykjavík.
www.betrireykjavik.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7-
13
45
3 1 . m a í 2 0 1 7 m I Ð V I K U D a G U R14 s K o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð
3
1
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
9
-E
B
3
0
1
C
F
9
-E
9
F
4
1
C
F
9
-E
8
B
8
1
C
F
9
-E
7
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K