Fréttablaðið - 31.05.2017, Síða 28
GLÆSILEGAR SUMARYFIRHAFNIR
NÝTT FRÁ GERRY WEBER - RÓMANTÍSKT OG TÖFRANDI
Laugavegi 63 • Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.isLaugavegi 63 • Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
Opnum í dag kl. 13
nýja og glæsilega verslun í
Skipholti 29b
Bernharð Laxdal er umboðsaðili
GERRY WEBER á Íslandi
(sama verð og á hinum norðurlöndunum)
ásamt mörgum öðrum þekktum
vörumerkjum s.s. BETTY BARCLAY,
CREENSTONE, CINZIA-ROCCA og JUNGE.
GERRY WEBER
20-25% afsláttur
Ýmis önnur opnunartilboð
Glæsileg
opnunar-
tilboð
Verið velkomin
SUMARMARKAÐUR
Í FULLUM GANGI
HJÁ LAXDAL LAUGAVEGI
50%-60%-70% afslættir
NÝ GLÆSILEG VERSLUN
SKIPHOLTI 29B
SUMARYFIRHAFNIR 20% AFSLÁTTUR
Lögin sem ég flyt í kvöld eru á því stigi að geta þróast í ýmsar áttir. Þau eru hrá og ég kemst
að því í kvöld hvort mig langi til
að vinna þau áfram og gefa þau út
með haustinu, eða geri eitthvað
alveg nýtt til að útsetja. Þetta verða
skrýtnir tónleikar en þeir snúast
um að sjá, eða heyra, vinnuna
meðan hún er enn í ferli,“ útskýrir
Ingunn Huld Sævarsdóttir en hún
heldur tónleika í sal LHÍ við Sölv-
hólsgötu í kvöld. Tónleikarnir eru
hluti af mastersnámi hennar við
tónlistardeild skólans.
„Ég er búin með eitt ár af tveimur
í námi sem kallast Sköpun, miðlun
og frumkvöðlastarf. Í náminu var
ég meðal annars í lagasmíðum
og setti mér það verkefni fyrir að
flytja efnið úr þeim kúrsi í vor. Ég
er því að flytja lögin í fyrsta skipti.
Reyndar slæðast þrjú eldri lög með
og eitt þeirra hefur aldrei verið
flutt áður.“
Ingunn gaf út plötuna Fjúk fyrir
tveimur árum og innihélt hún
ellefu frumsamin lög og texta.
Beðin um að lýsa tónlist sinni vefst
Ingunni tunga um tönn og segir
erfitt að flokka eigið efni.
„Kannski má kalla það sem
ég hef gefið út þjóðlagapopp. Ég
tók hins vegar aldrei meðvitaða
ákvörðun um að búa til þjóðlaga-
popp. Útgangspunkturinn hjá mér
við tónsmíðar eru yfirleitt textarnir
og í skólanum fékk ég góða kennslu
í öðruvísi tækni við textagerð en
ég hef notað áður. Stundum dettur
mér eitthvað í hug við dagleg störf
en ég er að reyna að gera meira af
því að setjast gagngert niður til
að semja. Þetta er auðvitað bara
vinna og maður er aldrei fullkom-
lega ánægður með það sem maður
er að gera, það er alltaf eitthvað
sem manni finnst mega breyta.
Það er ekki auðvelt að ákveða
hvar endapunkturinn á að vera en
nauðsynlegt. Ég vinn einnig mikið
út frá spuna og lögin eru að mótast
í dálítinn tíma. Í kvöld stefni ég til
dæmis á að enda tónleikana á lagi
sem verður til á staðnum,“ segir
Ingunn.
„Ég hlusta á alls konar tónlist,
popp, djass og alls konar og get
ekki sagt að ég aðhyllist neina
ákveðna stefnu. Oftast er ég þó að
hlusta eftir textunum, þeir grípa
mig oftast á undan tónlistinni
sjálfri.“
Ingunn er tónmenntakennari
og hefur undanfarin sjö ár kennt í
grunnskóla. Meðfram náminu við
LHÍ kennir hún á þverflautu. Hún
lauk námi frá Tónlistarskóla FÍH
í djasssöng á sínum tíma, spilar
á þverflautu en segist „glamra“
á önnur hljóðfæri. „Ég glamra á
píanó og gítar og ukulele, nóg til að
semja á þessi hljóðfæri. Ég spila til
dæmis undir hjá sjálfri mér á píanó
og gítar í kvöld og verð því ein á
sviðinu. Það er smá stressandi en
gaman,“ segir Ingunn. Tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Þetta verða skrýtnir tónleikar
Ingunn Huld Sævarsdóttir söngvaskáld heldur tónleika í sal Listaháskóla Íslands, Sölvhólsgötu, í
kvöld klukkan 20. Tónleikarnir eru hluti af mastersnámi hennar við tónlistardeild LHÍ.
Ingunn Huld Sævarsdóttir flytur afrakstur kúrs í lagasmíðum við Listaháskóla Íslands í kvöld. „Þetta verða skrýtnir tón-
leikar en þeir snúast um að sjá, eða heyra, vinnuna meðan hún er enn í ferli.“ mynd/EyÞór
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
4 KynnInGArBLAÐ FóLK 3 1 . m a Í 2 0 1 7 m I ÐV I KU dAG U r
3
1
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
9
-F
5
1
0
1
C
F
9
-F
3
D
4
1
C
F
9
-F
2
9
8
1
C
F
9
-F
1
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K