Fréttablaðið - 31.05.2017, Síða 30
Það getur verið tímafrekt að komast í gegnum innritun á flugstöðvum. Ágætt er að undirbúa sig vel áður en
lagt er af stað. Fólk gleymir að setja sig inn
í þær reglur sem gilda við innritun og þá
getur allt tekið lengri tíma. Ferðamenn
þurfa að vera með á hreinu hvernig ferða-
tösku má vera með og að hún sé ekki of
þung. Þetta segja yfirmenn á Kastrup við
vefútgáfu Jyllands Posten. Áður en farið
er út á flugvöll er best að aðgæta frá hvaða
brottfararsal (terminal) flugið er. Ef taskan
fer í innritun er ágætt ráð að merkja hana
með áberandi slaufu svo hægt sé að þekkja
hana strax og hún kemur á bandinu.
Mörg flugfélög bjóða upp á innritun á
netinu. Það getur sparað mikinn tíma að
vera búinn að tékka sig inn og velja sæti
fyrir brottför. Reynið að forðast að sitja
nálægt snyrtingu, þar getur verið mikill
umgangur. Athugið vel hvað þarf að taka
af sér og upp úr töskum í öryggisleit. Takið
af ykkur belti og skó áður en röðin kemur
að ykkur. Þá þarf alltaf að taka upp tölvur
og myndavélar. Kynnið ykkur reglur
öryggisleitar fyrir brottför. Ekki má hafa
skæri, hníf eða vökva á sér. Ef eingöngu
er um handfarangur að ræða skal fara vel
yfir hvað er í töskunni af snyrtivörum og
reglur um slíkan varning.
Gott að hafa í huga á ferðalagi
Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst á föstudaginn á Patreksfirði
og stendur yfir til 5. júní. Þetta
er í tólfta skiptið sem hátíðin er
haldin en þar eru nýjar íslenskar
heimildarmyndir frumsýndar auk
þess sem kvikmyndagerðarfólki og
áhugafólki um heimildarmyndir
gefst tækifæri til að hittast og bera
saman bækur sínar.
Aðstandendur hátíðarinnar hafa
löngum sýnt heimildarmyndir
sem annars kæmu varla fyrir augu
almennings, bæði örstuttar myndir
og einnig í fullri lengd og efnis-
tökin eru svo sannarlega fjölbreytt
og skemmtileg.
Meðal fjölbreyttra viðfangsefna
sem myndirnar fjalla um má nefna
lífið á Vopnafirði, heimafæðingar
og líf Herdísar Þorvaldsdóttur
leikkonu. Diddi, eini heimilislausi
maðurinn í Keflavík, kemur líka
við sögu, FC Kareoki, sem er elsta
starfandi mýrarboltalið Íslands
og Sveinn, sem hefur séð um
bensínafgreiðsluna á Innri-Múla
í næstum 50 ár en er verið að loka
núna.
Í lok hátíðarinnar verða veitt
bæði áhorfendaverðlaun fyrir
bestu heimildarmyndina og dóm-
nefndarverðlaun en þau eru veitt í
fyrsta skipti í ár.
Armband á hátíðina veitir
aðgang að sjávarréttaveislu, plokk-
fiskboði kvenfélagsins, dansiballi
og í sundlaugina. Sala armbanda
fer fram í Skjaldborgarbíói og
kostar það 7.000 kr.
Nánari upplýsingar á skjaldborg.
com.
Hátíð á
Patreksfirði
Í sumar verður Borgarbóka-safnið í Sólheimum með fjöl-skyldumorgna annan hvern
fimmtudag klukkan 10-11 og er
skemmtileg dagskrá fram undan.
Í fyrramálið verður fyrsti við-
burðurinn en þá mun Ebba Guðný
koma í heimsókn og fræða foreldra
um hollan og góðan morgunmat
fyrir börn. Ebba Guðný er mörgum
að góðu kunn fyrir bækur og mat-
reiðsluþætti þar sem hollustan er í
fyrirrúmi. Í sumar er meðal annars
fyrirhugað að halda sögustund um
lestur skemmtilegra sagna fyrir
litlu krílin, ræða um barnabóka-
viðgerðir en margir eiga lúna bók
sem þarf smá yfirhalningu, halda
fræðsluerindi um hagnýtan fróð-
leik fyrir foreldra og búa til lista-
verk sem henta vel litlum höndum.
Nánari upplýsingar má fá á
vefnum borgarbokasafn.is.
Ebba Guðný og
morgunmatur
barna
365.IS1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
FÖSTUDAGA KL. 19:45
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . m a í 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
3
1
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
F
9
-F
A
0
0
1
C
F
9
-F
8
C
4
1
C
F
9
-F
7
8
8
1
C
F
9
-F
6
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
3
0
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K