Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Page 2
2 Fréttir Vikublað 3.–5. maí 2016
Krefur 365 um 30
milljónir í bætur
n Yfir 2.000 geta átt von á kröfubréfi n bréfin um helgina „fyrsti fasi“
V
ilhjálmur H. Vilhjálmsson
lögmaður hefur sent blaða-
og fréttamönnum sem
starfa hjá fjölmiðlasam-
steypunni 365 kröfubréf
sem hljóða samtals upp á 30 milljón-
ir króna. DV hefur heimildir fyrir því
að þeir starfsmenn 365 sem fengu
bréf frá lögmanninum séu Nadine
Guðrún Yaghi, Stefán Rafn Sigur-
björnsson, Þórhildur Þorkelsdóttir
og Heimir Már Pétursson.
Krafan er tvíþætt; að stærstum
hluta skaðabætur en einnig er um
að ræða lögmannskostnað. Lögmað-
urinn ritar bréfin fyrir hönd tveggja
umbjóðenda sinna, sem Fréttablað-
ið fjallaði um í nóvember í svoköll-
uðu Hlíðamáli. Hélt blaðið því fram
að íbúð sem kom við sögu í mál-
inu hefði verið útbúin til nauðgana.
Mennirnir voru báðir kærðir en hér-
aðssaksóknari felldi mál þeirra niður
í febrúar sem leið.
Langstærsta mál sinnar
tegundar
Alls sendi Vilhjálmur út 22 kærur og
kröfubréf um helgina, bæði til frétta-
manna og einnig einstaklinga sem
tjáðu sig um þetta mál á samfélags-
miðlum. Kröfur til annarra en frétta-
manna 365 sem
nefndir eru hér
að ofan eru
upp á eina til
þrjár milljón-
ir króna ásamt
afsökunar-
beiðni. Frestur
sem veittur var
í bréfunum var
til miðnættis
í gær, mánu-
dag. Þetta
mál er hið
langstærsta
sinnar tegund-
ar þar sem far-
ið er fram á skaðabætur
og afsökunarbeiðni
frá fjölmiðlafólki og
einstaklingum sem hafa
tjáð sig um málið.
Mikil reiðibylgja fór
um samfélagið í kjölfar
fréttar Fréttablaðsins um
„útbúna íbúð.“ Fólk safn-
aðist saman fyrir utan
lögreglustöðina í Reykja-
vík og mótmælti því m.a.
að mennirnir skyldu ekki úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald.
Mennirnir tveir sem kærðir
voru hafa ekki mætt til vinnu
eftir að málið kom upp og
annar þeirra dvelur enn er-
lendis, samkvæmt heimildum
DV. Báðir hafa þeir fengið sál-
fræðiaðstoð í kjölfar málsins.
„Honum verður stefnt“
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmað-
ur vildi ekki staðfesta upphæðir í
tengslum við skaðabótakröfu skjól-
stæðinga sinna. Hann sagði í sam-
tali við DV í gær, mánudag, að hann
hefði þegar heyrt frá nokkrum aðil-
um og hefðu þeir beðist afsökunar
utan einn, sem ætlar að standa við
sín ummæli. „Honum verður stefnt,“
sagði Vilhjálmur.
Lögmaðurinn segir að þetta sé að-
eins fyrsti fasi í málinu. Alls dreifðu
hátt í 2.400 einstaklingar færslu á
Facebook, þar sem mennirnir voru
nafngreindir og og myndbirtir og
kallaðir nauðgarar. Fimmtíu af þeim
sem deildu færslunni bættu við yfir-
lýsingum frá sér og voru þær allar á
einn veg. Um 2.350 manns deildu
færslunni án þess að bæta nokkru
við en Vilhjálmur telur að slík
dreifing á ærumeiðandi ummælum
flokkist klárlega sem opinber birting
og um leið dreifing á ærumeiðandi
ummælum.
Bréfin geta orðið 2.400 talsins
Eitt af þeim bréfum sem Vilhjálmur
sendi um helgina mun verða
nokkurs konar prófmál. Komist
dómur að þeirri niðurstöðu að það
að deila færslu geti flokkast sem
opinber dreifing á ærumeiðandi
ummælum, mun Vilhjálmur meta
stöðuna og gætu þá liðlega 2.350
einstaklingar sem deildu færslunni
átt von á kröfubréfi frá honum fyrir
hönd skjólstæðinga hans.
Ljóst er að þetta mál á eftir að
verða mun stærra og fjölmargir
einstaklingar eiga eftir að heyra frá
lögmanni mannanna tveggja. n
Eggert Skúlason
eggert@dv.is Stærsta mál
sinnar tegundar
Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, lögmaður
mannanna tveggja
sem kærðir voru
fyrir nauðgun, en mál
þeirra felld niður,
segir að bréfin 22 um
helgina hafi verið
„fyrsti fasi“ í málinu.
MyndIR SIgtRygguR ARI
Mótmælt í nóvember Fjöldi fólks
mótmælti við lögreglustöðina í Reykjavík að
mennirnir skyldu ekki úrskurðaðir í gæslu-
varðhald. Mynd SIgtRygguR ARI
Múgæsing Fólki var
heitt í hamsi vegna
frétta af íbúð í Hlíðun-
um sem var sögð
útbúin til nauðgana.
Varðhaldið
rennur út í dag
Tveir menn sitja enn í varðhaldi
vegna líkamsárásar á Akureyri
um miðjan apríl. RÚV hefur eftir
Gunnari Jóhannssyni, rann-
sóknarlögreglumanni á Akur-
eyri, að rannsókninni miði vel
en mennirnir eru grunaðir um
að hafa gengið í skrokk á manni
eftir að hafa dregið hann upp
úr heitum potti við hús á Akur-
eyri. Þeir eru sagðir hafa skilið
hann eftir á víðavangi. Lögreglan
hefur sagt að málsaðilar séu lög-
reglunni í bænum vel kunn-
ugir. Gæsluvarðhaldið rennur út
í dag, þriðjudag, en ekki liggur
fyrir hvort krafist verður fram-
lengingar. Frá lögreglunni fer
málið til ákæruvaldsins.
LÍFRÆN EGG
nesbu.is
Í FYRSTA SINN Á ALMENNUM
NEYTENDAMARKAÐI
NESBÚ
EGG