Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 13
Vikublað 3.–5. maí 2016 Fréttir 13
vita. Þá hefðu dagar Morteza verið
taldir í heimalandinu.
Handtekinn í Teheran
Morteza lauk mastersgráðu sinni á
Indlandi og hugði á doktorspróf í
sömu fræðum. Hann þurfti að fara
heim til Íran til þess að sækja um
vegabréfsáritun í tengslum við fram-
haldsnámið en kom þá að lokuðum
dyrum. „Viðskiptabann Bandaríkj-
anna og Sameinuðu þjóðanna þýddi
að íranskir nemendur fengu ekki
lengur vegabréfsáritun til Indlands,“
segir Morteza. Hann var fastur og
var nauðugur sá kostur að hætta við
námið og byrja að vinna fyrir sér sem
enskukennari í Azad-háskólanum
í Teheran. Þar var hann neyddur til
þess að mæta ásamt öðru starfsfólki
í hádegisbæn að íslömskum sið á
hverjum einasta vinnudegi.
Morteza sagði aðeins nokkrum
vinum sínum frá því að hann væri
orðinn kristinn og þar sem áhugi
þeirra var mikill fór hann að sýna
þeim Biblíuna sína og segja þeim
frá trú sinni. Það átti eftir að koma í
bakið á honum því dag einn hringdi
bróðir hans í hann. „Hann sagði
mér að lögreglan hefði rannsakað
íbúðina mína og fundið Biblíurnar
sem ég átti. Búið var að fletta ofan
af mér og því varð ég að flýja,“ segir
Morteza. Hann yfirgaf heimabæ sinn
en nokkru síðar var hann handtek-
inn af lögreglunni. Það varð honum
hins vegar til happs að bróðir hans
þekkti lögreglustjóra í umdæminu
og gegn því að greiða hátt gjald leyfði
hann Morteza að flýja.
Ætlaði til Kanada
„Ég keypti franska vegabréfsáritun
fyrir mikið fé af smyglara. Síðan hélt
ég til Evrópu en þorði ekki til Frakk-
lands því þeir myndu eflaust senda
mig aftur til Írans vegna falsaðrar
áritunar. Ég ferðaðist því til Svíþjóðar
og reyndi að sækja þar um hæli,“ segir
Morteza. Sænsk yfirvöld hafi hins
vegar hafnað umsókn hans og
ákveðið að flytja hann til Frakklands.
„Frakkar stunda mikil viðskipti við
Íran og samskipti þjóðanna því mik-
il. Þeir myndu að öllum líkindum
senda mig aftur til Íran. Þess vegna
faldi ég mig í nokkra mánuði í Sví-
þjóð og fjárfesti í fölsuðu vegabréfi
til þess að freista þess að komast til
Kanada,“ segir Morteza.
Svo langt komst hann þó ekki.
Hann var handtekinn í Keflavík
og sendur í fangelsi þar sem hann
dvaldi í tvær vikur. Þegar hann losn-
aði úr prísundinni keypti hann sér
gistingu í gistiheimili. Fljótlega varð
hann uppiskroppa með fé og þegar
hann hafði ekki borðað nema eina
litla máltíð á dag í fjóra daga þá leit-
aði hann til Útlendingastofnunar.
Úr varð að hann sótti um hæli hér-
lendis. „Ég vissi ekkert um Ísland
þegar ég kom hingað. Hér líður mér
hins vegar vel og get um frjálst höf-
uð strokið. Ég sæki kirkju reglu-
lega og hef verið að kynna kristna
trú fyrir öðrum hælisleitendum,“
segir Morteza sem einnig hefur sótt
tungumálanámskeið hjá Mími.
Hann segist vera afar þakklátur
fyrir það viðmót sem hann hefur
fengið hérlendis. Til dæmis hafi
hann fengið lán upp á 30 þúsund
krónur frá Laugarneskirkju til þess
að greiða fyrir lögfræðiaðstoð.
Skelfilegar aðstæður í Frakklandi
Morteza er undrandi á því hversu
Útlendingastofnun horfi ískalt á
regluverkið og sendi hann á grund-
velli Dyflinnarreglugerðarinnar til
Frakklands. „Út af nánum samskipt-
um Frakklands og Írans þá verð ég
örugglega sendur aftur til heima-
lands míns. Ef svo ólíklega vildi til að
ég yrði ekki sendur til Íran þá er ekki
björt framtíð framundan í Frakk-
landi. Aðstæður fyrir flóttamenn eru
skelfilegar þar, ekkert húsaskjól né
möguleiki til þess að koma undir sig
fótunum. Flestir búa í tjaldbúðum
í vosbúð og eymd. Fólk fær ekki að
borða dögum saman,“ segir Morteza.
Hann bendir á að í byrjun mars hafi
nokkrir íranskir ríkisborgar saumað
fyrir munn sinn í „Frumskóginum“,
alræmdum tjaldbúðum við Calais
í Frakklandi, til þess að mótmæla
tómlæti franskra yfirvalda í þeirra
garð.
Óvissan og dökkar framtíðar-
horfurnar fara eðlilega illa í Morteza.
„Ég get ekki sofið fyrir martröðum.
Ég er manneskja eins og bræður
ykkar og synir. Þið mynduð ekki
senda þá út í opinn dauðann. Ég vil
bara fá að lifa í friði,“ segir Morteza.
Hann veit ekki hvenær hann verður
sendur úr landi, þó að ákvörðun þess
efnis liggi fyrir. n
„Ég get ekki
sofið fyr-
ir martröðum. Ég
er manneskja eins
og bræður ykkar
og synir.
Morteza Songolzadeh
Hefur dvalið á Íslandi í níu
mánuði og dreymir um að
fá að byggja upp líf sitt hér.
Hann heldur á skjali sem
staðfestir dauðadóm yfir
honum í heimalandi sínu
Íran en hann hlaut hann
fyrir að afneita íslam og
gerast kristinn. F
yrrverandi bílstjóri hjá Ferða-
þjónustu fatlaðra var 29. apríl
síðastliðinn sakfelldur fyrir kyn-
ferðisbrot gegn greindarskertri
konu. Hann var hins vegar sýknaður
af ákæru um nauðgun. Maðurinn
hlaut sex mánaða skilorðsbundinn
dóm auk þess sem hann var dæmd-
ur til þess að greiða konunni 600 þús-
und krónur í miskabætur.
Brotin áttu sér stað á þriggja
mánaða tímabili í byrjun árs 2013, í
fjögur skipti alls. Konan hélt því fram
að bílstjórinn hefði káfað á henni
innan og utan klæða auk þess að
stinga fingri upp í leggöng hennar. Þá
taldi hún einnig að maðurinn hefði
nauðgað henni. Maðurinn var einn
með konunni í bílnum þegar brotin
áttu sér stað en frásagnir vitna, aðal-
lega starfsfólks sambýlis sem konan
dvelst á, studdu framburð hennar.
Þannig sögðu sérfræðingar að
konan gæti ekki skáldað slíka frásögn
og hvað þá endurtekið hana nánast
óbreytta. Varðandi kynferðisbrot-
in var framburður hennar afar stað-
fastur. Aðeins varðandi hina meintu
nauðgun var framburður hennar á
reiki auk þess sem skoðun kvensjúk-
dómalæknis leiddi í ljós að meyjar-
haft hennar var órofið og því útilokað
að getnaðarlim hefði verið stungið
inn í leggöng konunnar. Hins vegar
væri ekki hægt að útiloka að fingri
hefði verið stungið inn í þau.
Maðurinn neitaði sök en fram-
burður hans var metinn ótrúverðugur.
Hann kvaðst ekki hafa haft neinar
upplýsingar um fötlun konunnar en
sérfræðingar héldu því fram að enga
sérstaka kunnáttu þyrfti til þess að
átta sig á henni. Meðal annars neitaði
hann því að hafa kallað konuna „gull-
molann sinn“ en vitni heyrðu hann
viðhafa þau orð. Bílstjórinn hafði
ekki áður komið við sögu lögreglu. n
bjornth@dv.is
Skilorð fyrir kynferðisbrot
Bílstjóri Ferðaþjónustu fatlaðra sýknaður af ákæru um nauðgun
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
V
E
R
T
GJÖRIÐ SVO VEL!
Tilbúin kakósúpa frá Mjólku
- einfalt, gott og fljótlegt.
NÝTT!
til
bú
in í matinn
tilbúin í ma
tin
n