Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 11
Fréttir 11Vikublað 3.–5. maí 2016 Hreinsun á jakkafötum 3.160 kr. Hringbraut 119 - s: 562 7740 - Erum á Facebook Opið Virka daga 08:30-18:00 laugardaga 11:00-13:00 granda granda Framkvæmdastjórinn Fékk nýjan lúxus-Benz n ríkisstofnunin vtÍ skipti út vW tiguan fyrir mercedes-Benz GlC n kostaði hátt í 7 milljónir króna að fylla út umsókn til Bílanefndar ríkisins þar sem koma þarf fram meðal annars lýs­ ing á hlutverki og þörfum, áætl­ aður akstur á ári og óskir um sérbúnað og aukabúnað. Þegar væntanlegir kaupendur hafa fengið heimild hjá Bílanefnd rík­ isins til bíla­ kaupa efna kaupendur til örútboðs um þær bifreiðar sem kaupa skal. Í kjölfar örút­ boðs, þar sem leitað er skriflegra tilboða með­ al samningshafa þar sem besta tilboðið, á grund­ velli þeirra krafna og óska sem gerðar voru, sendir kaupandi inn pöntunarbeiðni til Ríkiskaupa. Ríkis kaup panta síðan bifreiðina fyrir viðkomandi stofnun eða ríkis­ fyrirtæki sem skráð verður fyrir bif­ reiðinni. Að sögn Huldu var það stjórn VTÍ sem tók ákvörðun um kaupin að loknu útboði. Sigurður Kári Krist­ jánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er formaður stjórnar VTÍ. Ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar þar sem hann er stadd­ ur erlendis. Geta gert óþarfa kröfur Samkvæmt heimildum DV eru ákveðnar glufur fyrir kaupendur bíla í umsóknarferlinu til bílanefnd­ ar. Nánar tiltekið þar sem forsvars­ menn stofnana og ríkisfyrirtækja geta gert óskir um sérbúnað og aukabúnað bifreiða. Þó það sé síð­ ur en svo algengt, þá eru dæmi þess í gegnum tíðina að með því að gera tilteknar kröfur um ýmsan „óþarfa“ lúxus, vélarafl og/eða togkraft sem útilokar með því ódýrari og minni bifreiðar en þrengir möguleikana niður í dýrari, flottari lúxusbifreiðar – ef vilji er fyrir hendi. Þrátt fyrir að ráðgjöf sé veitt herma heimildir DV að Ríkis­ kaup og bílanefnd hafi í raun ekki vald til að banna stofnunum og ríkisfyrirtækjum þetta, þrátt fyrir eftirlitshlutverk sitt. Komið getur athugasemd frá þeim sem sér um að panta bílinn, telji hann eitthvað óeðlilegt á ferðinni, en það getur brugðist. Bílanefndin er samkvæmt heimildum DV berskjölduð gagn­ vart þessu. n Sá gamli Framkvæmdastjóri VTÍ hafði þennan VW Tiguan R Line-sportjeppling til afnota en hann var keyptur nýr í árslok 2012. Reynt er að selja hann núna á bílauppboði. Mynd BilauppBod.iS l eikstjórinn og rapparinn Ágúst Bent var þann 19. febrúar dæmdur til að greiða Friðriki Rafni Larsen, stjórnarfor­ manni ÍMARK, 488 þúsund krónur í skaðabætur vegna líkamsárásar. Þá hlaut Bent einnig skilorðsbundinn fangelsisdóm. Þetta kemur fram á Vísi en líkt og DV greindi frá í janúar síðast­ liðnum átti umrædd árás sér stað á skemmtistaðnum Loftinu þann 14. mars í fyrra. Var Bent ákærður fyrir að hafa ráðist á Friðrik og sleg­ ið hann ítrekað í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut ótil­ fært brot á vinstra nefbeini, bólg­ ur og mar á nefi og augnsvæði og sprungna vör. Fjölmörg vitni voru að árásinni. Fyrir dómi játaði Bent að hafa ráðist á Friðrik og sleg­ ið hann en neitaði hins vegar af­ leiðingum árásarinnar. Lögfræðing­ ur Friðriks setti fram kröfu um fjórar milljónir í skaðabætur. Bent mun þurfa að greiða Frið­ riki 488 þúsund krónur í skaða­ bætur. Þá var hann dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi. n ritstjorn@dv.is Ágúst Bent dæmdur fyrir líkamsárás Játaði að hafa ráðist að Friðriki Rafni Larsen á Loftinu s nemma á föstudagsmorgun var ökumaður stöðvaður á Eyrarbakkavegi á milli Eyrarbakka og Selfoss. Í ljós kom að í bifreið hans var talsvert magn, um 1.000 grömm, af kanna­ bisefnum. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu. Þar segir enn fremur að maður­ inn hafi verið handtekinn og færð­ ur í fangageymslu. Frekari rann­ sókn leiddi í ljós að maðurinn var að koma frá geymsluhúsnæði í Þorlákshöfn þar sem kannabis­ ræktun hafði verið stunduð. Þar var nýafstaðin ræktun og af um­ merkjum að dæma mátti ætla að verið væri að flytja starfsemina á annan stað. Sá handtekni viðurkenndi að hafa verið að aðstoða félaga sinn við að flytja efnin úr geymsluhús­ næðinu en hann hafi ekki komið að ræktuninni sjálfri. Málið er í rannsókn og efnin verða send til rannsóknar. n ritstjorn@dv.is Með kíló af kannabis í bílnum Kannabisræktun upprætt í Þorlákshöfn Kannabis Myndin tengist ekki fréttinni beint. Mynd löGreGlan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.