Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Side 14
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 14 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Vikublað 3.–5. maí 2016 Ég hugsaði bara „fokkitt“ Alls ekki á vísan að róa fyrir Davíð Oddsson í þeim efnum Ég var snemma mjög hávaxin Af magabólgu og verðbólgu Jón Þór Ísberg flúrari seldi allt og fór á flakk um heiminn. – DV Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðiprófessor um hugsanlegt forsetaframboð. – EyjanDagný Lísa Davíðsdóttir körfuboltastelpa er á fullum skólastyrk í New York. – DV H ún er oft svo skrítin þessi pólitík. Kári Stefánsson sá mikli vísindamaður og þjóð­ félagsrýnir setti fram kröfu um meiri peninga í heilbrigðis­ kerfið. Hann bauð almenningi að ganga til liðs við þessa kröfu og til varð stærsta undirskriftasöfnun í sögu Íslands. Kári afhenti ríkis­ stjórninni bunkann um helgina. Krafan er einföld. 11% af vergri landsframleiðslu skuli árlega renna til heilbrigðismála í stað 8,7% eins og staðan er á þessu ári. Fjármálastefna og fjármála­ áætlun fyrir hið opinbera til fimm ára, var kynnt af ríkisstjórn á föstu­ dag. Þar kemur fram: „… að fram­ lög til heilbrigðismála verði aukin verulega á næstu árum þannig að þau verði orðin ríflega 30 milljörð­ um króna hærri árið 2021 og verði þar með orðin ríflega 200 milljarðar króna á ári.“ Kári Stefánsson var nokkuð kátur vegna viðbragða ráðamanna þegar hann afhenti bunkann mikla. En sú kátína stóð ekki lengi og eftir að hafa farið betur yfir viðbrögð og útspil ríkisstjórnarinnar var þetta niðurstaða hans: „Ef það verður ekkert nýtt fé sett í heilbrigðismál fyrir kosningar þá er ég handviss um að ríkisstjórnarflokkarnir verða flengdir í kosningunum.“ Stjórnarandstaðan lýsti áhyggj­ um af því að aukin fjárframlög til málaflokka gætu valdið þenslu. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ ráðherra ætlar með lagafrumvarpi að hækka til muna verð fyrir ýms­ ar aðgerðir og skoðanir. Sú hækkun kemur til framkvæmda í haust. Við erum að tala um miklar hækkanir. RÚV greindi frá því að magaspegl­ un hækkaði úr 12.815 krónum í 23.488 krónur. Á móti koma svo kostnaðarþök. Þetta er með öllu óskiljanlegt. Það á að snarauka fjárframlög til heilbrigðiskerfisins. Bara ekki strax. Það á að snarhækka verð til þeirra sem eru svo lánsamir að þurfa ekki oft til læknis. Það á að gerast fljótlega. Stjórnarandstaðan óttast þenslu og verðbólgu. Leiðarahöfundur hafði hugsað sér að fara í ristilspeglun en er snarhættur við. Einfaldlega orðið of dýrt. Ætlar að bíða eftir þessum stórauknu framlögum sem koma í framtíðinni. Þá skiptir maður maður hiklaust á magabólgu og verðbólgu. Kannski ættu ráðamenn bara að hlusta á Kára og fara strax í 11% af vergri landsframleiðslu. Ríkissjóður virðist mjög bólginn af peningum þessa dagana og erfitt er að sjá betri fjárfestingu til frambúðar fyrir ís­ lenska ríkið en að auka strax fram­ lög í þetta mikilvæga kerfi. n Fallegar siðareglur Siðareglur RÚV hafa verið birtar á heimasíðu félagsins. Þær eru áhugaverðar og líta vel út. Þar segir meðal annars: „Starfs­ fólk gætir að því að vera óháð stjórnmálalegum, hugmynda­ fræðilegum og efnahagslegum hagsmunum í efnismeðferð og ritstjórnarákvörðunum.“ Varðandi framkomu segir: „Starfsfólk rýrir ekki trúverðug­ leika Ríkisútvarpsins með ámælis verðri framkomu.“ Svo er skrítið ákvæði um að starfsfólk eigi að klaga hvert annað ef það verði vart við brot á þessum regl­ um og svo er einnig stranglega bannað að leggja fólk í einelti innan veggja stofnunarinnar. Hvað gerir Andri Snær? Það stefnir í spennandi slag um forsetaembættið. Guðni Th. Jó- hannesson, sem mun að líkindum tilkynna formlega um framboð sitt í vikunni, mælist þannig með lítil­ lega meira fylgi en Ólafur Ragnar ef valið stæði eingöngu milli þeirra tveggja, samkvæmt könnun Frjálsrar verslunar. Ólafur Ragn­ ar hefur hins vegar yfirhöndina ef einnig er spurt um stuðning við Andra Snæ Magnússon. Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir á Face­ book að niðurstöðurnar sýni að Ólafur Ragnar hefði átt að ígrunda framboð sitt betur. „ Tuttugu ára seta í háu embætti tryggir ekki endurkjör. Andri Snær Magnason og stuðningsmenn hans ráða hvort Ólafur Ragnar situr áfram.“ Hópefli í fákaseli Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050 Matur, drykkur og skemmtun „Þá skiptir maður maður hiklaust á magabólgu og verðbólgu. Leiðari Eggert Skúlason eggert@dv.is Á föstudaginn fengu foreldrar leikskólabarna á Mýri bréf frá skóla­ og frístundasviði Reykjavíkurborgar um að verið væri að skoða framtíð leik­ skólans bæði út frá því að leik­ skólastjóri láti af störfum í sumar og „ekki síður út frá því að börnum er að fækka í Vesturbænum.“ Bent er á að staðan á Mýri sé þannig að næsta haust sé útlit fyrir að þar verði einungis 30 börn og því sé ljóst að sú staða skapi óvissu um framtíð þjónustunnar á Mýri. Í bréfinu er bent á að leikskólinn Ós við Bergþórugötu í Reykjavík sé að leita að húsnæði fyrir starfsemi sína, en hann er sjálfstætt starfandi leikskóli og rekinn af foreldrum barna sem dvelja þar hverju sinni. Ós vilji stækka starfsemina og fara í rýmra húsnæði en leikskólinn hef­ ur í dag. Í bréfinu til foreldra er bent á að viðræður hafi staðið yfir á milli skóla­ og frístundasviðs og forsvarsmanna Óss síðustu daga um að Ós taki að sér rekstur leik­ skólans Mýrar, til að tryggja áfram­ haldandi leikskólaþjónustu í hús­ inu en ekki sé komin niðurstaða í þær viðræður. Ef niðurstaðan verði sú liggi fyrir að foreldrum barna í leikskólanum Mýri bjóðist að hafa börn sín áfram í leikskólanum kjósi þeir það en einnig stendur til boða val um aðra leikskóla í hverfinu. Bréf skóla og frístundasviðs til foreldra barnanna er dagsett 29. apríl sl. en tveimur dögum áður var fundur í skóla­ og frístundaráði en á þeim fundi var málið ekki til um­ fjöllunar! Vegna ábendinga um að börnum væri að fækka í hverfinu og loka ætti deildum lögðu Fram­ sókn og flugvallarvinir fram eftir­ farandi fyrirspurn á fundi skóla­ og frístundaráðs 27. apríl: Fulltrúa Framsóknar og flug­ vallarvina hafa borist ábendingar um að mögulega verði mikil fækkun í ákveðnum árgöngum leikskóla­ deilda í Vesturbænum nú í haust því útlit sé fyrir að rúmlega fimm­ tíu pláss séu að losna í þremur leik­ skólum í Vesturbænum. Foreldrar hafa lýst áhyggjum varðandi hvort deildum verði hugsanlega lokað og starfsfólki sagt upp störfum. Full­ trúi Framsóknar og flugvallarvina óskar eftir upplýsingum um hvort til standi að loka þar deildum vegna barnaskorts á viðeigandi aldri eða hvort til standi að nýta plássin fyrir börn á öðrum aldri og eða bjóða jafnvel börnum úr öðrum hverfum leikskólavistun þar. n Er Vesturbærinn að verða barnlaus? Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir Borgarfulltrúi Af Eyjunni „Foreldrar hafa lýst áhyggjum varðandi hvort deildum verði hugsanlega lokað og starfsfólki sagt upp störfum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.