Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2016, Blaðsíða 16
Helgarblað 29. apríl–2. maí 20162 Bón og bílaþvottur- Kynningarblað
Bón- og þvottastöðin:
B
ón- og þvottastöðin státar
af sérlega glæsilegri bíla-
þvottastöð að Grjóthálsi
10, við hliðina á Skeljungi
við Vesturlandsveginn. Að
sögn Ara Rafns Vilbergssonar fram-
kvæmdastjóra var Bón- og þvotta-
stöðin fyrsta sjálfvirka bílaþvotta-
stöðin á Íslandi en hún var stofnuð
árið 1968. Stöðin hóf reksturinn í
Sóltúni og var þar samfleytt í nærri
40 ár – eða allt til ársins 2007.
Einungis handþvottur
– engir kústar eða burstar
„Í boði hjá okkur er öll sú meðferð
sem nýtist best til þess að þrífa bílinn
og bóna hann af natni, eins og tjöru-
hreinsun, háþrýstiþvottur, hand-
þvottur, bón og þurrkun á sjö mín-
útum,“ segir Ari. „Bílaþvotturinn
er allur unninn í höndunum með
svömpum, bón er síðan sett á bílinn
og loks þurrkað með míkrófíber klút-
um ásamt því að þurrkað er úr föls-
um bílanna. Við leggjum einungis
stund á handþvott sem við teljum
veita besta árangurinn og notum
hvorki kústa né bursta.“
Glæný leið til að bóna bílinn
„Bón- og þvottastöðin tók nýlega í
notkun glænýja bónaðferð sem kall-
ast Gullfoss og hefur slegið í gegn hjá
okkur,“ segir Ari.
„Um er að ræða þá skemmtilegu
viðbót að fá allsherjar bón á bíl-
inn sem endist mun lengur og veitir
líka aukinn gljáa. Gullfoss er ný og
byltingarkennd aðferð við að bera
bón á bíla. Bíllinn fer þá í gegnum
vegg af þykku lagi af bóni sem renn-
ur í alla króka og kima á bílnum auk
þess sem litadýrðin gleður augað.“ n
Bón og þvottastöðin
Grjóthálsi 10, 110 Reykjavík
Sími: 588-1010
Opnunartími:
Virka daga: 8.00–18.00,
laugardaga: 10.00–16.00
www.bon.is
Ummæli
ánægðra
viðskiptavina:
n „Algjörir snillingar og frábær
þjónusta.“
n „5 stjörnu þvottastöð!“
n „Ég ætla aldrei aftur að þvo bílinn
minn sjálfur …“
n „Fæ alltaf afbragðsþjónustu og
glampandi hreinan bíl hjá þessum
snillingum!“
Gullfoss er nýjasta bónaðferðin