Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 17
Vikublað 3.–4. ágúst 2016 Umræða 17 É g heiti Snjólfur Gíslason og því miður þarf ég að þiggja laun frá Tryggingastofnun ríkisins eða að hluta frá Líf­ eyrissjóði ríkisstarfsmanna og Lífeyrissjóðnum Gildi. Sam­ tals gerir þetta um 200 þúsund á mánuði. Af ekki stærri upphæð er ég búinn að greiða í skatta um 250.000 krónur frá áramótum. Og því mið­ ur er sjálfsagt fjöldi annarra í sömu stöðu og ég – eða verri. Nú er staðan sú að enginn okkar getur farið í verkfall. Ekki er hægt að ná sambandi við háttvirtan velferðar­ ráðherra né nokkurn annan ráða­ mann á þingi. Þeir liggja trúlega í sól­ baði úti í heimi og eru sennilega mjög ánægðir með okkar kjör. En sem betur fer get ég gefið því fólki, sem er að berjast við það sama og ég, nokkur góð ráð til sparnaðar. Hættið að nota heitavatnskútinn, sápu að sjálfsögðu og látið ykkur ekki detta í hug að nota sjálfvirka þvottavél. Ekki nota rafmagnselda­ vél því það er hægt að nota mó ef heilsan leyfir. Hættið að kaupa klósettpappír því ef ekki er frost er alltaf hægt að finna mosa. Látið ykkur ekki detta í hug að nota bíl heldur verðið ykk­ ur úti um gamla hesta því maður getur étið þá þegar þeir geta ekki sinnt störfum sínum lengur. Komið ykkur upp súrtunnu því þar geym­ ist maturinn án þess að skemmast. Hægt er að nota selshreifa og margt fleira. Meðfram þjóðvegunum ligg­ ur fullt af dauðum eða hálfdauðum lömbum sem hægt er að nota til matar. Blessuð sé vegagerðin fyrir að salta vegina. Ég er alltaf tilbúinn, meðan ég get borgað af símanum, að veita fólki í minni stöðu góð ráð, sem sennilega skipta hundruðum eða þúsundum. Ráð til stjórnmálamanna um kosningaloforð fyrir næstu kosn­ ingar er að gera allt sem þeir geta til að losna við öll þessi gagnslausu gamalmenni svo þau krókni ekki eða drepist úr kulda. Húsið mitt er að drabbast niður að utan sem innan, þetta verður maður að sætta sig við. Til stjórnmálamanna og bankastofnana: Þið verðið að passa ykkur að halda áfram að vera bara með tóm okurlán svo fólk sem er á besta aldri geti alls ekki keypt sér né byggt sér hús fyrir framtíðina. Það gæti komið sér illa fyrir alla „Jóakima“ sem leigja út húsin sín á okurverði –sem sé mjólka alla fá­ tæklinga eins og hægt er. n Glæsibæ • www.sportlif.is ReStyle Grenningar próteinsjeik fyrir KONUR. ReStyle eykur brennslu og dregur úr matarlyst. ReStyle inniheldur trefjar, prótein og L-Carnitine og fleiri efni sem auka brennslu! Býður góð ráð„Nú er staðan sú að enginn okkar getur farið í verkfall. Snjólfur Gíslason skrifar Aðsent

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.