Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 3.–4. ágúst 20162 Fréttir
Páley braut stjórnsýslulög
Átti að afhenda ferilskrár
P
áley Borgþórsdóttir braut
stjórnsýslulög þegar hún neit
aði að afhenda ferilskrár og
stigagjöf þeirra sem boðað
ir voru í viðtal vegna starfs löglærðs
fulltrúa hjá embættinu sem auglýst
var í fyrra. Sautján einstaklingar sóttu
um starfið en aðeins fimm fengu við
tals boð. Einn þeirra
sem sat eft
ir með sárt
ennið óskaði
eftir feril
skrám hinna
fimm sem
og upplýs
ingum um
stigagjöf
en þeirri
beiðni
hafnaði
Páley
þrátt
fyrir að
um
boðsmaður Alþingis hafi nokkrum
árum fyrr ályktað í sambærilegu máli
að slík gögn skyldu afhendast. DV
greindi frá málinu í síðasta helgar
blaði, en þar kom fram að tvær kvart
anir væru á borði umboðsmanns Al
þingis.
Í umfjöllun umboðsmanns kem
ur fram að Páley hafi talið að töluvert
misræmi hafi verið á ferilskrá þess
sem kærði og þeirra upplýsinga sem
hún aflaði sér um störf og starfstíma
hans. Það hafi skipt sköpum að mað
urinn var ekki boðaður í viðtal og tel
ur umboðsmaður að viðkomandi
hefði átt að fá að tjá sig um framan
greindar upplýsingar. Það hafi verið
brot á andmælareglu stjórnsýslulaga.
Niðurstaða umboðsmanns er á þá
leið að lögreglustjórinn skuli þegar
afhenda umbeðin gögn en auk þess
er þeim tilmælum beint til lögreglu
stjórans að hann taki framvegis mið
af þeim sjónarmiðum sem kæmu
fram í álitinu. n ritsjorn@dv.is
Lögreglumaðurinn
verður ekki ákærður
n Rannsókn á máli lögreglumannsins á Sauðárkróki lokið n „Fótur fyrir kærunni“
E
mbætti héraðssaksóknara
ætlar ekki að ákæra lög
reglumann hjá lögreglunni
á Norðurlandi vestra á Sauð
árkróki sem grunaður var
um að hafa stungið sektargreiðslum
fyrir umferðarlagabrot í vasann.
Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson
héraðssaksóknari í samtali við DV
en segir ljóst að fótur hafi verið fyrir
kæru lögregluembættisins á hend
ur starfsmanni þess. Manninum
var vikið tímabundið úr starfi þegar
rannsókn héraðssaksóknara hófst
í byrjun maí síðastliðnum en hann
hefur snúið aftur til starfa.
„Það var tekin sú ákvörðun í
þessu máli að falla frá saksókn.
Niðurstaðan var sú að það hefði
verið fótur fyrir kærunni en að mál
ið væri ekki þess eðlis að það þætti
rétt að fara með það í saksókn. Það
var farið mjög vel yfir þetta mál og
þetta var niðurstaðan,“ segir Ólafur
Þór Hauksson.
„Lítilvægt mál“
Líkt og kom fram í frétt DV um mál
ið þann 24. maí þá hófst rannsóknin
eftir að erlendur ferðamaður mót
mælti sekt sem hann fékk vegna
hraðaksturs í Hvalfjarðargöngum.
Maðurinn fullyrti þá við lögreglu,
áður en honum var sagt að umferð
arlagabrotið hefði náðist á mynd,
að hann hefði einungis einu sinni
verið stöðvaður fyrir slíkt brot hér
á landi. Þá hafi hann verið í öðrum
landshluta og greitt sektina á staðn
um. Ferðamaðurinn sýndi í kjölfar
ið kvittun, undirritaða af lögreglu
manninum, fyrir greiðslunni innan
umdæmis lögreglunnar á Norður
landi vestra. Fundust þá engin gögn
um brotið hjá embættinu. Í kjölfar
ið gaf það út kæru á hendur starfs
manni sínum sem leiddi til rann
sóknar héraðssaksóknara.
Páll Björnsson, lögreglustjóri á
Sauðárkróki, staðfestir í samtali við
DV að lögreglumaðurinn sé snúinn
aftur til starfa.
„Maðurinn er kominn til starfa
en þetta reyndist lítilvægt mál sem
þarna var um að ræða. Í ljósi niður
stöðunnar gæti svo farið að lög
reglumaðurinn verði áminntur,“
segir Páll. Lögreglustjórinn baðst
undan frekara viðtali um niðurstöð
una og framtíð lögreglumannsins
hjá embættinu og sagðist fyrst vilja
klára málið innanhúss.
Reyndur í starfi
Lögreglumaðurinn, sem er með ára
tuga reynslu í starfi, sagðist í áður
nefndri frétt DV fullviss um að rann
sóknin ætti eftir að sanna sakleysi
hans. Um einföld mistök hefði verið
að ræða enda hefði hann aldrei tek
ið við reiðufé þegar um hraðasektir
væri að ræða.
„Ég get ekki ímyndað mér að það
verði neitt mál úr þessu, það væri al
veg með ólíkindum ef svo væri. Ég er
búinn með um 1.500 hraðaskýrslur
og þetta er bara aulaskapur að hafa
ekki græjað þetta áður en ég fór
utan. […] Ég er algjörlega pollróleg
ur yfir því og ég vona að það verði
farið ítarlega í gegnum þetta. Það er
dapurt að geta ekki verið við störf og
ég er hundfúll með það. Það hefði
verið hægt að loka þessu máli og
treysta á gamla manninn en þeir
ákváðu þetta,“ sagði lögreglumaður
inn í samtali við DV í maí.
Fyrrverandi lögreglumaður á
Austurlandi, Stefán Pedro Cabrera,
var í nóvember í fyrra dæmdur í
öðru máli í tíu mánaða fangelsi
fyrir fjársvik, fjárdrátt og rangar
sakar giftir. Brotin áttu sér stað árin
2013 og 2014 en Stefán var meðal
annars ákærður fyrir að sekta er
lenda ferðamenn fyrir hraðakstur í
tilfellum þar sem engin umferðar
lög voru brotin. Peningunum stakk
hann svo í eigin vasa. Grunur um
brotin vaknaði eftir ábendingu frá
ferðamanni sem hafði staðgreitt
sekt til Stefáns. n
Héraðssaksóknari Ólafur Þór Hauksson
segir niðurstöðu embættisins þá að ákæra
ekki í máli lögreglumannsins. Mynd SigtRygguR ARi
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is „Maðurinn er kominn til starfa
en þetta reyndist lítilvægt
mál sem þarna var um að ræða
Örugg hýsing
gagna
Traustur rekstur
tölvukerfa
Sérhannaðar
hugbúnaðarlausnir
Hádegismóum 4 · 110 Reykjavík · 547 0000 · premis.is Við erum alltaf með lausnir
Við sérhæfum okkur í uppsetningu og þjónustu
við fyrirtæki sem vilja nýta sér kosti Office 365.
Við erum svo sannarlega á heimavelli þar enda
höfum við aðstoðað á annað hundrað fyrirtæki
og sveitarfélög í vegferð þeirra í Office 365.
SharePoint
OneDrive
CRM
Office 2016
Yammer
Exchange
Skype
for businessDelve
Power BI ÞETTA ER OKKAR
HEIMAVÖLLUR