Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 3.–4. ágúst 201618 Menning
U
m þessar mundir er verið að
negla upp dauðan kettling
og fleiri dýr á veggi í Pakk-
húsi Hróksins í Reykjavík.
Dýrin eru partur af verkum
myndlistarkonunnar Ingu Maríu
Brynjarsdóttur sem verða sýnd á
sýningunni In the Storm sem verður
opnuð á laugardag.
Í verkum sínum vinnur Inga
María oftar en ekki með náttúruna og
dýralíf – eða öllu heldur dýradauða.
Í útskriftarverki sínu úr mastersnámi
við LHÍ fyrr á árinu blandaði hún til
að mynda saman teikningum, ljós-
myndum, skrifuðum frásögnum,
dýrshömum og uppstoppuðum dýr-
um, allt frá skordýrum til heimilis-
dýra.
Ekki ógeð heldur gersemi
„Í grunninn er ég teiknari og geri
mikið af dýralífsmyndum, sem eru
þó ekki týpískar heldur yfirleitt frekar
afskræmdar. Ég tek þær úr samhengi
þannig að þeir sem þekkja til sjá að
eitthvað sé rangt – en almenningur
sér það þó ekki endilega,“ segir Inga
María.
„Ég hef mikinn áhuga á náttúru og
dýralífi, og þetta er oft dálítil fantasía
um stökkbreytingar og annað.
Heimurinn er að breytast svo gríðar-
lega og dýrin með. Ég er svolítið að
leika mér með það,“ segir hún.
En af hverju fórstu að vinna með
dýrahræ, uppstoppuð dýr og upp-
strekkta hami?
„Fyrir mér er þetta nátengt teikn-
ingunni. Ég ákvað að fara í þetta til
að tengjast dýrunum aðeins bet-
ur. Fyrir flestum er þetta bara ógeð
sem þeir keyra framhjá en fyrir mér
er þetta gersemi – að skoða hvernig
dýrið og hamurinn er. Það er í raun
ekkert ógeðslegt við þetta, því þetta
er bara hluti af lífinu og ferlinu,“ segir
hún.
„Fyrir mér er saga dýranna líka
mikilvæg, hvernig ég finn dýrin og
hvort þau séu persónulega tengd
mér. Kötturinn sem ég er með í sýn-
ingunni í Pakkhúsinu er til dæmis
kettlingur frá læðunni minni, sem
var alveg ofvirk og hoppaði niður
af þriðju hæð alltaf þegar hún var á
lóðaríi,“ segir Inga og nefnir einnig
þröst sem hún fann dauðan á Miklu-
brautinni og hreinsaði, en nú hefur
hann verið lánaður sem leikmunur í
íslenska kvikmynd.
Vinnur með dýrin af virðingu
En hvernig verður þú þér úti um öll
þessi dýrahræ?
„Meindýraeyðir Reykjavíkur-
borgar safnar dauðum rottum fyrir
mig sem ég næ svo reglulega í. Fólk
hringir oft í mig og bendir mér á
dýrahræ hér og þar. Ein vinkona mín
hefur verið að senda mér mýs og
ýmis dýr, sem hún hefur fundið, með
hraðpósti. Ég fékk símtal frá henni
um daginn þegar hún var í sauð-
burði þar sem hún spurði hvort ég
vildi fá sent lamb sem hafði drepist
– ég afþakkaði það reyndar. Svo fór
ég að kaupa hundamat um daginn
og datt allt í einu í hug að þau hlytu
nú að vera með einhver dýr sem
hefðu drepist. Ég spurði og endaði á
því að koma heim með tuttugu fulla
hundaskítspoka. Mér leið eins og ég
væri lítill krakki
nýkominn úr
Kolaportinu
með lukkupakka.“
Hefur þú lært einhvers staðar að
vinna dýrin, til dæmis hjá hamskera?
„Nei, en það er planið á næst-
unni. Fyrst vildi ég ekki vita neitt því
mér finnst mikilvægt að læra sjálf frá
grunni, prófa mig áfram. Það er líka
ákveðin ögrun, maður þarf alltaf að
fara aðeins lengra út fyrir þæginda-
sviðið. En ég prófa mig bara áfram,
til dæmis við að ná beinagrindinni
út. Um daginn ætlaði ég að prófa að
ná beinagrind úr rottu sem ég hafði
fengið. Ég skellti henni bara í pottinn
og byrjaði að sjóða. Yfirleitt er lyktin
bærileg – nema þú opnir garnirnar –
en í þetta skiptið var hún svo mikil
að ég komst varla af klósettinu. Um
leið og ég kom fram varð lyktin svo
mikil að ég varð að hlaupa aftur inn
á klósett,“ segir hún og hlær.
Inga María segir að viðbrögð
áhorfenda við verkunum séu yfirleitt
góð: „Ég vinn með þetta af virðingu.
Ég er að sýna fólki það sem er. Og
flestir í kringum mig eru orðnir
frekar vanir þessu. Þegar krakkarn-
ir opna frystinn heima er þar oft gæs
eða rotta, og þau segja bara: „Æi,
Mamma!““ n
„Það er í raun ekk-
ert ógeðslegt við
þetta, því þetta er bara
hluti af lífinu og ferlinu.
Ekki sjóða rottur! Inga María mælir ekki með því að rottur séu
soðnar til að ná beinagrindinni úr þeim – lyktin sem gýs upp er
ógeðsleg. Mynd Inga María BrynjarsdóttIr
Dauður köttur
negldur upp á
vegg í Pakk-
húsinun Listakonan Inga María Brynjarsdóttir er
með frystikistur
fullar af dauðum
dýrum n Ekki ógeð
heldur gersemi
teiknar og hamflettir dýr Inga María
Brynjarsdóttir hefur mikinn áhuga á náttúru
og dýralífi og fæst við það í listaverkum sínum.
Mynd sIgtryggur arI
Mynd Inga María BrynjarsdóttIr
Kristján guðjónsson
kristjan@dv.is