Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 30
Vikublað 3.–4. ágúst 201630 Fólk Traust fasteignaviðskipti og persónuleg þjónusta - þinn lykill að nýju heimili 414 6600 | nyttheimili.is FRÍTT SÖLUMAT Reynir Eringsson 820 2145 Skúli Sigurðarsson 898 7209 Guðjón Guðmundsson 899 2694 Fasteignasala Leigumiðlun Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni Opið allt árið, virka daga, um helgar og á hátíðisdögum Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð B örn stela oft senunni í kvik­ myndum og heilla heims­ byggðina. Hér er sagt frá nokkrum barnastjörnum sem hrifu gesti kvikmynda­ húsa en lítið hefur frést af undan­ farin ár. n Heillandi sonur Toms Hanks Ross Malinger lék bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem barn. Þekktastur er hann fyrir hlutverk sitt í Sleepless in Seattle þar sem hann lék á móti Tom Hanks og Meg Ryan og heillaði áhorfendur upp úr skónum. Malinger dró sig í hlé frá kvikmyndaleik árið 2006 og varð framkvæmdastjóri bílasölu. Ungur Óskars­ verðlaunahafi Tatum O'Neal, dóttir leikarans Ryans O'Neal, var níu ára gömul þegar hún lék árið 1973 á móti föður sínum í myndinni Paper Moon. Hún hlaut Óskarsverðlaunin sem besta leik- kona í aukahlutverki og er yngst allra þeirra sem unnið hafa verðlaunin. Síðan hefur hún leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og komist í fréttir vegna einkalífs síns. Hún giftist tennisstjörnunni John McEnroe og átti með honum þrjú börn áður en þau skildu. Eiturlyfjaneysla hennar hefur nokkrum sinnum orðið fréttaefni og varð til þess að McEnroe fékk forræði yfir börnum þeirra. Leikkonan hefur sent frá sér tvær endurminningabækur en þar fjallar hún um erfitt samband við föður sinn, sem hún segir hafa beitt sig ofbeldi í æsku, storma- samt hjónaband og eiturlyfjaneyslu. Hvað varð um barnastjörnurnar? Drengurinn úr The Shining Danny Lloyd var sex ára þegar hann lék í hinni mögnuðu hryllingsmynd Stanleys Kubrick The Shining. Lloyd stóð sig frábærlega sem drengurinn sem dvelur ásamt foreldrum sínum á afskekktu hóteli og sér föður sinn smám saman missa vitið og verða morðóðan. Lloyd lék í tveimur öðrum kvikmyndum en dró sig síðan í hlé frá kvikmyndaleik. Hann er líffræðikennari í Kentucky. Tilnefndur til Óskarsverðlauna Justin Henry vann hug og hjörtu kvikmyndahúsgeta þegar hann lék í Kramer vs Kramer á móti Dustin Hoffman og Meryl Streep sem deildu um forsjá hans. Hinn ungi leikari, sem var átta ára gamall, var tilnefndur til Óskarsverð- launa fyrir frammistöðu sina og er enn yngsti leikari sem hefur hlotið tilnefningu. Hann kom fram í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum í mörg ár. Hann menntaði sig í sálfræði en er nú í stjórnunarstöðu hjá AOL (America on Line).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.