Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 3.–4. ágúst 2016 Menning 21 fyrir hlé er búið að rústa Enterprise ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Simon Pegg (Shaun of the Dead, Hot Fuzz) er kannski hættur að gera fyndnar myndir sjálfur, en hann hressir upp á Hollywood-stórmyndir með húmor sínum, bæði sem hand- ritshöfundur og leikari. Nokkur atriði í hinni ágætu Ant-Man voru frá hon- um komin og handbragð hans leynir sér ekki hér. Kirk kafteinn er kominn með byssu belti Han Sóló og er lítið fyrir samræður en til í að skjóta fyrst. Samt saknar maður pælinganna sem fylgdu gömlu myndunum. Það að ferðast um óravíddir alheimsins er áhugavert í sjálfu sér, og maður væri alveg til í fleiri undur en byssubardaga. Helsti gallinn er þó að menn eru hér greinilega búnir að horfa of mikið á Guardians of the Galaxy. Popptón- list frá seinni hluta 20. aldar gegnir veigamiklu hlutverki en það að leysa vandann með því að setja Beastie Boys á fóninn er aðeins of mikið af því góða. Myndin fer því kannski ekki ótroðnar slóðir, en á frekar dræmu stórmyndasumri er hún vel yfir meðal lagi. n hvort Franz Schubert hafi verið fyrir karlmenn eða ekki, en við ákváðum að sleppa slíkum tónskáldum til að efna ekki til rifrildis,“ segir Árni Heimir. Aðspurður segist hann ekki viss um að kynhneigðin hafi áhrif á tón- listina sjálfa en segir það hvað fólk heyri í tónlistinni hins vegar oft á tíð- um vera mótað af vitneskju um líf og langanir tónskáldanna. Oft eykst þekkingin hins vegar með tímanum og viðtökurnar breytast. „Kannski er besta dæmið af Tsjaj- kovskíj. Á meðan hann lifði vissi enginn neitt um samkynhneigð hans – að minnsta kosti ekki í Vestur- Evrópu. Þá var orðræðan um tón- listina á þann veg að þetta væri sterk og karlmannleg tónlist, en svo um leið og þessi hluti sögunnar fór að koma í ljós fór fólk að tala um tón- listina á allt annan hátt. Mér finnst þetta mjög áhugavert, það sem við vitum hefur áhrif á hvað við heyrum út úr tónlist.“ n Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is Póst-sendum um allt land Allt til hanny rða160 garnt egundir Hommar og hinsegin tónverk geti sótt sér fyrirmyndir víða Pjotr Tsjajkovskíj (1840–1893) Eitt helsta tónskáld síðrómantíska tímans. Þessi Rússi samdi meðal annars balletana Hnotubrjótinn og Svanavatnið. Tsjajkovskíj átti í skammlífu hjónabandi en í seinni tíð hefur orðið ljóst að hann var samkynhneigður. Reynaldo Hahn (1874–1947) Venesúelamaðurinn Reynaldo Hahn bjó lengst af í Frakklandi þar sem hann samdi tónlist, stýrði hljóm- sveitum og skrifaði gagnrýni. Hann var ástmaður franska rithöfundarins Marcels Proust. Á geimferð Taívanski leikstjórinn Justin Lin, sem hefur áður leikstýrt nokkrum Fast and Furious-myndum, er meira fyrir geislabyssuhasar en tilvistarlegar vangaveltur um heima og geima. Sundfataklædd Hillary hulin með íslamskri slæðu U mdeildu götulistaverki af Hillary Clinton á vegg í Maribyrnong, rétt fyrir utan Melbourne í Ástralíu, hefur verið breytt eftir kvartanir frá borgurum og hótanir frá bæjarráði. Myndin, sem er af bandaríska forsetaframbjóðandanum í efnislitlum sundbol, er máluð á hliðarvegg hjólabrettabúðar af ástralska götulistamanninum Lushsux. Eftir að verkið var sett upp bárust bæjarráðinu kvartanir frá vegfarendum og í kjölfarið sendi ráðið frá sér hótun um að sekta eiganda veggjarins. Ástæðan var ekki að verkið þætti móðgun við Clinton heldur var það sagt fara yfir velsæmismörk að sýna hálfnakta konu og það sagt í andstöðu við hugmyndir bæjarbúa um kynjajafnrétti. Í stað þess að taka verkið niður brá Lushsux á það ráð að mála á forsetaframbjóðandann niqab, klæðnað sem hylur allan líkamann og andlitið fyrir utan augu. Fyrir neðan skrifaði hann: „Ef þú móðgast við að sjá þessa múslimakonu ert þú þröngsýnn, rasisti, karlremba og haldinn hræðslu gagnvart íslam.“ Bandarísk stjórnmál eru listamanninum greinilega ofarlega í huga enda hefur hann einnig málað dónamyndir af Donald og Melaniu Trump. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.