Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.2016, Side 30
Vikublað 3.–4. ágúst 201630 Fólk
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
B
örn stela oft senunni í kvik
myndum og heilla heims
byggðina. Hér er sagt frá
nokkrum barnastjörnum
sem hrifu gesti kvikmynda
húsa en lítið hefur frést af undan
farin ár. n
Heillandi sonur Toms Hanks
Ross Malinger lék bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sem barn. Þekktastur er hann
fyrir hlutverk sitt í Sleepless in Seattle þar sem hann lék á móti Tom Hanks og Meg Ryan
og heillaði áhorfendur upp úr skónum. Malinger dró sig í hlé frá kvikmyndaleik árið 2006
og varð framkvæmdastjóri bílasölu.
Ungur Óskars
verðlaunahafi
Tatum O'Neal, dóttir leikarans Ryans O'Neal,
var níu ára gömul þegar hún lék árið 1973 á
móti föður sínum í myndinni Paper Moon.
Hún hlaut Óskarsverðlaunin sem besta leik-
kona í aukahlutverki og er yngst allra þeirra
sem unnið hafa verðlaunin. Síðan hefur hún
leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og
komist í fréttir vegna einkalífs síns. Hún giftist
tennisstjörnunni John McEnroe og átti með
honum þrjú börn áður en þau skildu. Eiturlyfjaneysla
hennar hefur nokkrum sinnum orðið fréttaefni og
varð til þess að McEnroe fékk forræði yfir börnum þeirra.
Leikkonan hefur sent frá sér tvær endurminningabækur en
þar fjallar hún um erfitt samband við föður sinn, sem
hún segir hafa beitt sig ofbeldi í æsku, storma-
samt hjónaband og eiturlyfjaneyslu.
Hvað
varð um
barnastjörnurnar?
Drengurinn úr
The Shining
Danny Lloyd var sex ára þegar hann lék í
hinni mögnuðu hryllingsmynd Stanleys
Kubrick The Shining. Lloyd stóð sig
frábærlega sem drengurinn sem dvelur
ásamt foreldrum sínum á afskekktu
hóteli og sér föður sinn smám saman
missa vitið og verða morðóðan. Lloyd lék
í tveimur öðrum kvikmyndum en dró sig
síðan í hlé frá kvikmyndaleik. Hann er
líffræðikennari í Kentucky.
Tilnefndur til
Óskarsverðlauna
Justin Henry vann hug og hjörtu
kvikmyndahúsgeta þegar
hann lék í Kramer vs Kramer
á móti Dustin Hoffman og
Meryl Streep sem deildu um
forsjá hans. Hinn ungi leikari,
sem var átta ára gamall, var
tilnefndur til Óskarsverð-
launa fyrir frammistöðu sina
og er enn yngsti leikari sem
hefur hlotið tilnefningu. Hann
kom fram í kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum í mörg ár.
Hann menntaði sig í sálfræði
en er nú í stjórnunarstöðu
hjá AOL (America on
Line).