Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Blaðsíða 35
Helgarblað 30. september–3. október 2016 Sport 27 Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp, í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku. TuTTugu versTu kaup Wengers 10 Richard Wright (2001–2002) Enski markvörðurinn var keyptur á tvær milljónir punda frá Ipswich, þá 23 ára gamall. Var litið á hann sem verðugan eftirmann Davids Seaman hjá Arsenal og enska landsliðinu. Hann náði sér aldrei eftir skelfilega frammistöðu á Highbury í 4-2 tapi gegn Charlton og hvarf á braut til Everton strax eftir fyrsta tímabil- ið. Hann náði þó nógu mörgum leikjum í deild til að fá gullpening í lok leiktíðar. 9 Junichi Inamoto (2001–2002) Keyptur á fjórar millj- ónir punda til að selja treyjur. Svo einfalt er það. Hann átti að vera lykillinn að landvinningum Arsenal í Japan og austurlöndum fjær en var látinn fara strax eftir tímabil- ið fyrir HM 2002. Hann náði aðeins að koma við sögu í fjórum leikjum hjá Wenger. 8 Kaba Diawara (1999) Hann átti að vera næsti Nicolas Anelka þegar Wenger keypti landa sinn á 2,5 milljónir punda í janúar- glugganum 1999. Nokkrum mánuðum síðar fór hann frá félaginu. Kom við sögu í 15 leikjum án þess að skora. 7 Manuel Almunia (2004–2012) Ekki versti leikmaður sögunnar en fáir hafi valdið stuðnings- mönnum eins miklu hugarangri og mark- vörðurinn Manuel. 2007–2012 var hann reglulega byrjunarliðs- maður og á því tímabili voru Arsenal-menn nærri því að vinna titilinn. En fáránleg mistök, óstöðug leiki og léleg frammistaða Almunia í lykilleikjum varð til þess að stuðningsmenn skelltu skuldinni á hann. Hann varð árið 2011 orðinn þriðji valkostur Wengers á eftir Lukasz Fabianski og Wojciech Szczesny. 6 Igors Stepanovs (2000–2004) Hann var fenginn til liðsins sem varaskeifa fyrir hinn meidda Tony Adams en frammi- staða hans í 6-1 tapi gegn Manchester United varð til þess að hann fékk fá tækifæri eftir það. Igors náði aðeins að leika 17 deildarleiki þar til hann hvarf á braut. 5 Sebastien Squillaci (2010–2013) Arsenal- menn voru vongóðir um að þeir væru loks komnir með áreiðan- lega miðvörðinn sem liðið hafði sárvantað þegar Squillaci var keyptur á fjórar milljónir punda frá Sevilla á Spáni. Franski landsliðsmaðurinn var hins vegar lélegur á fyrsta tímabili og fékk eftir það aðeins að spila í bikarkeppnum. Lágpunktur ferilsins kom í bikarleik gegn Sunderland í febrúar 2012 þegar honum var skipt af velli, eftir að hafa sjálfur komið inn á sem varamaður í leiknum. 4 Andre Santos (2011–2013) Einn af mögum leikmönnum sem Wenger keypti í örvæntingu sinni á lokadegi félagaskipta í ágúst 2011. Hann reyndist ágæt áminning um hvers vegna slík örvæntingarkaup eru aldrei góð hugmynd. Brasilíumað- urinn var með góðan vinstri fót og var sagður sambærilegur leikmaður og Roberto Carlos – jafn brothættur varnarlega og hann vissulega, en laus við sóknarhæfileika landa síns þó. Hann virtist aldrei í formi og alls ekki nógu góður. Beit höfuðið af skömminni þegar hann bað um treyju Robins van Persie í hálfleik, í leik gegn Man Utd í nóvember 2012, eftir að Persie hafði verið seldur til United! Var lánaður til Gremio í heimalandinu nokkrum mánuðum síðar og sneri aldrei aftur. 3 Alberto Mendez (1997–2002) Wenger keypti mikið af gæðaleik- mönnum í fyrstu. Mendez kom til félagsins á sama tíma og Nicolas Anelka, Emmanuel Petit og Marc Overmars en náði augljóslega aldrei sömu hæðum. Hann kom frá utandeildarliði í Þýskalandi og náði miðjumaðurinn aðeins að leika fjóra leiki fyrir Arsenal á fimm árum! 2 Amaury Bischoff (2008–2009) Það furðuðu sig margir á þessum kaupum. Amaury var keyptur á aðeins 250 þúsund pund í júlí 2008 þrátt fyrir að hafa allan ferilinn glímt við ótrúlega þrálát meiðsli. Eins og Arsenal hafi þurft á öðrum meiðslapésa að halda. Auðvitað héldu vandræði hans áfram hjá Arsenal og náði hann aðeins að leika fjóra leiki á sínu eina tímabili. 1 Park Chu-Young (2011–2014) Telegraph segir Park óútskýran- leg ör- væntingar- kaup. Park var keyptur á 5 milljónir punda frá Monaco, gamla vinnuveitanda Wengers í Frakklandi, og þykja kaupin enn ein þau dularfyllstu á Wenger-tímanum og kaup sem hann sá strax eftir. Park lék aðeins EINN deildarleik fyrir félagið og toppar lista Telegraph af þeim sökum auk þess sem hann virtist fullkomlega vanhæfur leikmað- ur í þeim fáu leikjum sem hann þó lék. Hann var látinn fara frítt frá félaginu í júní 2014. Pistlahöfundur Telegraph hafði á orði þá að þegar Wenger ákvað að kaupa Park hafi það verið „versta símtal sem nokkur hafi svarað síðan Colin Farrell svaraði í símann í kvikmyndinni Phone Booth,“ en þeir sem séð hafa þá mynd skilja myndlíkinguna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.