Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2016, Síða 40
Helgarblað 30. september–3. október 201632 Lífsstíll Sykur í brunna sósu Ef sósan brennur við í pottinum þá er óþarfi að gefast upp. Þú getur hellt sósunni yfir í annan pott og haldið áfram að sjóða hana þar. Þegar því er lokið þá ættir þú að bæta smá sykri út í sósuna. Hann kemur í veg fyrir að þú finnir brunabragð. HVAR ER SÓSAN? Tvö brauð, ostur, buff og grænmeti nægja ekki til að gera góðan borgara. Ef sósuna vantar er eins gott að sleppa þessu. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. GlerborG Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS 11 húsráð sem allir ættu að þekkja Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi G óð húsráð eru ómissandi í amstri hversdagsins. En hver hefur ekki lent í því að standa ráðþrota yfir brenndri sósu eða bölva svörtum rákum á parketinu. Hér að neðan má finna 11 sniðug ráð úr ólíkum áttum sem gætu auðveldað heimilisþrifin sem og eldhúsverkin. Salatblað er lausnin Þegar þú ert með taco í matinn byrjaðu þá á því að leggja salatblað inn í taco-skelina. Ef hún brotnar þá fer innihaldið ekki út um allt heldur helst í salatblaðinu. Poki verndar símann Þegar þú ert á leiðinni á ströndina er sniðugt að setja símann í lítinn glær- an plastpoka. Það heldur sandinum fjarri og þú getur notað símann á meðan hann er í pokanum. Tennisboltinn gerir kraftaverk Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi með því að strjúka yfir þær með tennisbolta? Sléttujárn/ straujárn Þegar þú straujar þá er vel hægt að nota sléttujárn til að ná betur á erfiðustu staðina. Til dæmis í kringum tölur og kraga. Glasið magnar hljóðið Ef þig langar að hlusta á tónlist í símanum en ert ekki með hátalara, prófaðu þá að setja símann ofan í glas eða skál og heyrðu hvað gerist. Frysta avókadó Vissir þú að það er vel hægt að frysta avókadó. Þegar þú ert búin að nota það sem þú þarft af avókadóinu, settu það í frystipoka og inn í frysti. Leysir smjör af hólmi Og meira um avókadó. Þú getur notað það í staðinn fyrir smjör í margar uppskriftir. Þurrt handklæði Sparaðu tíma, orku og peninga með því að setja þurrt handklæði inn í þurrkarann í hvert skipti sem þú þurrkar þvott. Svona mýkirðu smjör Ef þú þarft að mýkja smjör, hratt og auð- veldlega, þá er sniðugt að setja það inn í smjörpappír og fletja smjörið rólega út með bökunarkefli. Olía fyrir skurð Ef þú ert ekki með hanska við höndina þegar þú skerð chili-pipar þá er mjög góð hugmynd að löðra hendurnar í olíu áður en þú byrjar að skera. Kristín Clausen kristin@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.