Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Page 4
Vikublað 4.–6. október 20164 Fréttir
Sumargjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin á Hópkaup.is.
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
Fæst á .is
Eigendurnir ósáttir við
ákvörðun Katrínar Olgu
Óánægja innan stjórnendahóps Icelandair Group vegna hlutabréfasölu stjórnarmanns
S
tór hópur hluthafa Icelandair
Group er afar ósáttur við
ákvörðun Katrínar Olgu
Jóhannesdóttur, stjórnar-
manns Icelandair Group og
formanns Viðskiptaráðs, um að selja
hlutabréf sín í fyrirtækinu á föstudag.
Stærstu hluthafar félagsins eru Líf-
eyrissjóður verslunarmanna, hluta-
bréfasjóðir í rekstri Stefnis, LSR og
Gildi lífeyrissjóður. Samkvæmt heim-
ildum DV er einnig óánægja með
söluna á meðal stjórnenda flugfélags-
ins en Katrín seldi bréfin á síðasta við-
skiptadegi þriðja ársfjórðungs.
Katrín Olga segist hins vegar ekki
hafa orðið vör við óánægju með
ákvörðun hennar. „Það var óveður
sem gekk yfir á föstudaginn og auðvit-
að fann ég fyrir því en ég hef ekki fund-
ið fyrir neinum þrýstingi vegna máls-
ins,“ segir Katrín Olga í samtali við DV.
Seldi fyrir 9,6 milljónir
Katrín seldi á föstudag 400.000 hluti í
Icelandair Group á genginu 24 krón-
ur á hlut. Markaðsverðmæti bréf-
anna nam því 9,6 milljónum króna.
Salan var tilkynnt til Kauphallar Ís-
lands þar sem bréf í Icelandair Group
ganga kaupum og sölum. Hluta-
bréfaverð Icelandair var þá byrjað að
lækka en lækkunarhrinan varð meiri
og hraðari í kjölfar tilkynningarinnar.
Ákvörðun Katrínar Olgu um að
selja bréfin á þessum tímapunkti hef-
ur sem fyrr segir hleypt illu blóði í
fjárfesta og aðila á markaði sem telja
margir hverjir, að því er fram hef-
ur komið í samtölum við DV, að hún
hafi sýnt mikið dómgreindarleysi
með því að bíða ekki með söluna
fram yfir birtingu næsta árshlutaupp-
gjörs félagsins. Þá hefur það komið
til tals hjá forsvarsmönnum sumra af
stærstu hluthöfum Icelandair, sam-
kvæmt heimildum DV, að réttast væri
að Katrín Olga myndi axla ábyrgð
og segja af sér sem stjórnarmaður.
Katrín kom upphaflega inn í stjórn
Icelandair árið 2009 fyrir tilstuðlan Ís-
landsbanka í kjölfar þess að bankinn
hafði leyst til sín meira en 40% hlut í
félaginu með veðkalli.
Úlfar Steindórsson, varaformaður
stjórnar Icelandair Group, vildi ekk-
ert tjá sig um málið þegar eftir því var
leitað. Ekki náðist í Björgólf Jóhanns-
son, forstjóra félagsins, eða Sigurð
Helgason, stjórnarformann Icelanda-
ir Group, við vinnslu fréttarinnar.
Fór í framkvæmdir
Katrín Olga sagði í samtali við fjöl-
miðla á föstudag að hún hefði selt
bréfin til að fjármagna framkvæmd-
ir við sumarbústað fjölskyldu hennar.
Langsótt væri að kenna henni um
lækkun bréfanna og að hún hafi ekki
búið yfir neinum innherjaupplýsing-
um sem fjárfestar á markaði höfðu
ekki þegar hún seldi þau. Tímasetn-
ingin hefði verið tilkomin vegna
reglna flugfélagsins sem banni inn-
herjum að selja bréf í félaginu fjórum
vikum eftir lok hvers ársfjórðungs eða
þangað til uppgjör er birt.
„Það er staðreynd að þetta fór í þær
framkvæmdir. Ég hef skuldbindingar
við aðila og það er staðreyndin. Það
eru innherjareglur og regluvörður
hefði stoppað mig af ef ég hefði ein-
hverjar upplýsingar. Menn geta líka
horft á markaðinn í morgun,“ segir
Katrín Olga og vísar í þá staðreynd
að gengi bréfa Icelandair Group fór
að hækka við opnun markaða í gær,
mánudag.
Hækkuðu aftur
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group
nam við lokun markaða á föstudag
23,35 krónum á hlut. Bréfin lækk-
uðu því um 4,9% á einum degi í við-
skiptum sem námu 1.342 milljónum
króna. Bréf allra hinna fimmtán fé-
laganna sem skráð eru á Aðalmark-
að Kauphallarinnar lækkuðu einnig
og hjá Marel um 4,24 prósent. Hluta-
bréfaverð Icelandair hafði við lokun
markaða á föstudag ekki verið lægra
síðan í júní 2015 en bréfin voru seld á
genginu 38,9 í apríllok.
Icelandair Group birti í gær,
mánudag, spá um að flugáætlun fé-
lagsins aukist um þrettán prósent
2017 miðað við árið í ár. Farþega-
fjöldi muni aukast um 450 þúsund
og nema 4,2 milljónum. Aukningin
komi til með að stuðla að fjölgun
ferðamanna hér á landi og þannig
styrkja rekstur dótturfélaga Icelandair
Group. Björgólfur Jóhannsson benti í
tilkynningunni á að fyrirtækið lækk-
aði í júlí síðastliðnum afkomuspá
sína. Uppgjör ársins 2016 verði aftur
á móti eitt það besta í sögu fyrirtæk-
isins. Bréf flugfélagsins hækkuðu aft-
ur í verði í gær, eða um 4,3 prósent, en
gengi þeirra nam við lokun markaða
24,4 krónum á hlut. n
„Ég hef ekki fundið
fyrir neinum
þrýstingi vegna málsins.
Haraldur Guðmundsson
Hörður Ægisson
haraldur@dv.is/ hordur@dv.is
Rannsókn
enn í gangi
Ekki liggur enn fyrir hvað olli því
að byggingakrani féll saman í
Hafnarstræti í síðustu viku. Mildi
þykir að ekki hafi orðið slys á fólki
þegar kraninn féll til jarðar.
Í síðustu viku var greint frá
því að lögregla hefði þann grun
að átt hefði verið við öryggisbún-
að kranans með þeim afleiðing-
um að hann hlass sem hann átti
að ráða við varð honum ofviða. Í
hádegisfréttum RÚV á mánudag
kom fram að Vinnueftirlitið hafi
tekið út kranann þegar hann var
settur upp og þá hafi hann verið
í lagi. Að sögn Eyjólfs Sæmunds-
sonar hjá Vinnueftirlitinu fannst
hlutur á vettvangi sem bendir til
þess að átt hafi verið við kranann.
Í fréttum RÚV kom fram að
stefnt sé að því að ljúka rannsókn
í þessari viku og eftir það verði
tekin ákvörðun um framhaldið,
þar á meðal hvort einhver verði
ákærður vegna málsins.
S
tjórn Reykjaneshafnar tók í
gær, mánudag, fyrir beiðni
Thorsil ehf. um að gjalddaga
fyrstu greiðslu þess á gatna-
gerðargjöldum yrði seinkað í áttunda
sinn. Forsvarsmenn félagsins kynntu
stöðuna á fjármögnun kísilmálm-
verksmiðjunnar sem þeir vilja byggja
í Helguvík fyrir bæjarráði Reykjanes-
bæjar á föstudag. Stjórn hafnarinnar
tók málið fyrir á fundi seinnipartinn í
gær og þegar DV fór í prentun höfðu
ekki fengist upplýsingar um hvort
frestunin hefði verið samþykkt.
„Ég á ekki von á öðru en að þeir
fái lengri frest til að klára sín mál.
Það vantar orðið mjög lítið upp á
það,“ sagði Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í sam-
tali við DV.
DV hefur áður fjallað um viðræð-
ur Thorsil og stjórnenda Reykjanes-
hafnar um fyrstu greiðslu fyrirtæk-
isins á gatnagerðargjöldum sem
nemur 140 milljónum króna. Thorsil
fékk lóð í Helguvík í apríl 2014 og
átti upphaflega að ganga frá greiðsl-
unni í desember sama ár. Guðbrand-
ur Einarsson, forseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar, sagði í samtali við
Víkurfréttir þann 18. ágúst að fyrir-
tækinu yrði ekki gefinn lengri frestur.
Ekki náðist í Guðbrand við vinnslu
fréttarinnar. n
haraldur@dv.is
Thorsil vill lengri frest
Beiðni um áttundu frestunina tekin fyrir á fundi stjórnar
Stjórnarmaður
Icelandair
Group
Gengi bréfa
félagsins
lækkaði um
samtals 34
prósent á
fyrstu níu
mánuðum
ársins.
Hrinunni að
mestu lokið
Mjög hefur dregið úr jarðskjálfta-
virkni í Kötluöskjunni frá því á
föstudag þegar hún varð hvað
mest. Vísindaráð almannavarna
fundaði um stöðu mála á mánu-
dag en um er að ræða stærstu
einstöku jarðskjálftahrinuna í
Kötluöskjunni í áratugi.
Að mati vísindaráðsins eru
ástæður skjálftanna líklega kviku-
hreyfingar í efstu kílómetrum jarð-
skorpunnar. Vatnamælingar sýna
ekki breytingar sem hægt er að
tengja við hrinuna. Hrinunni virð-
ist sem fyrr segir að mestu lokið.