Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Qupperneq 6
Vikublað 4.–6. október 20166 Fréttir Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp, í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku. Hann var kallaður asni Formaður Afstöðu segir deildarstjóra Litla-Hrauns koma fram af lítilsvirðingu við fanga H ann kallaði mig helvítis asna og sýndi af sér ógnandi hegðun. Að öllu jöfnu kemur Tryggvi fram af lítilsvirðingu við fanga. Flestir eru inni í stuttan tíma og sjá því ekki tilganginn í að halda slíku máli til streitu. Aðrir hafa kannski ekki getu né þolinmæði til þess að fylgja málinu eftir enda kerfið seinvirkt og þungt í vöfum. Ég gat ekki látið þetta viðgangast,“ segir Guðmundi Ingi Þóroddsson, formað- ur Afstöðu, félags fanga. Nýverið birti umboðsmaður Alþingis álit sitt sem snerist um áðurnefnda framkomu Tryggva Ágústssonar, deildarstjóra í fangelsinu Litla-Hrauni, gagnvart Guðmundi Inga. Tryggvi er staðgeng- ill forstöðumanns fangelsisins. Málið hefur velkst um í kerfinu í rúm tvö ár. „Helvítis asni“ Atvikin áttu sér stað í apríl 2014 og hefur því málið velkst um í kerfinu í tæp tvö og hálft ár. Atburðarásin sem Guðmundur Ingi kvartaði yfir var sú að með fimm daga millibili á áður- nefndu tímabili lét Tryggvi ósmekk- leg ummæli falla um Guðmund Inga. Mennina greinir á um hvort Tryggvi hafi kallað Guðmund Inga „ helvítis asna“ eða bara „asna“. Í fyrra skipt- ið kvartaði Guðmundur Ingi til for- stöðumanns fangelsisins og fór fram á afsökunarbeiðni en fékk engin svör. Nokkrum dögum síðar gerði Tryggvi sér ferð á vinnustað Guðmundar Inga og lét í ljós óánægju sína með kvörtunina. Þá greinir á um hver at- burðarásin var en ljóst er að Tryggvi endurtók ummæli sín um að Guð- mundur Ingi væri „asni“ og sagðist ekki ætla að biðjast afsökunar. Þess ber að geta að atvikin náðust á mynd- bandsupptöku, að sögn Guðmundar Inga, en þegar ætlunin var að nýta þær í rannsókn málsins kom í ljós að þeim hafði verið eytt. Ekki í takt við vandaða stjórnsýslu Guðmundur Ingi tilkynnti forstöðu- manni fangelsisins aftur um atvikið. Þegar engin svör bárust ritaði hann formlegt bréf til innanríkisráðuneyt- isins vegna málsins. Eftir talsverðar bréfaskriftir lét innanríkisráðuneytið málið niður falla. Við þessi málalok var Guðmundur Ingi ósáttur og sendi formlega kvörtun til umboðsmanns Alþingis. Niðurstaða umboðsmanns eftir vandlega skoðun var sú að framkoma deildarstjórans hefði ekki verið í samræmi við lagareglur og þá starfshætti sem starfsmaður fangels- isins ber að fylgja. Þessi hegðun og sinnuleysi fangelsismálayfirvalda til að taka á henni hafi ekki verið í takt við vandaða stjórnsýslu. Tilmæli umboðsmanns eru þau að verklag verði endurskoðað og sér- staklega verði hugað að því að koma meðferð og úrlausn kvartana fanga vegna framgöngu og háttsemi starfs- manna fangelsanna í þeirra garð í tryggari og skilvirkari farveg en raun- in varð í þessu máli. Fjölmargar kvartanir „Afstöðu hefur í gegnum árin borist fjöldinn allur af kvörtunum vegna framkomu Tryggva í garð fanga. Margar þeirra hafa verið sendar áfram til Fangelsismálastofnunar. Hann lítur niður á fanga og er léleg- ur í mannlegum samskiptum. Það er með hreinum ólíkindum að hann hafi ekki verið áminntur fyrir fram- göngu í starfi sem sýnir að pottur er brotinn í þessum efnum,“ segir Guðmundur Ingi. Að hans mati er nauðsynlegt að einhver úrræði séu í boði þegar slík atviki eiga sér stað í samskiptum fangavarða og fanga. „Því miður eru fleiri starfsmenn en Tryggvi sem koma illa fram við fanga, þótt þeir séu vissulega í minnihluta, og framgöngu þeirra er í mörgum tilvikum hægt að flokka sem gróft einelti. Þegar fangi er talinn leggja fangavörð eða annan fanga í ein- elti þá er hann umsvifalaust settur í einangrun. Ef fangavörður leggur kollega sinn í einelti þá er það skoð- að og gerandinn jafnvel settur í leyfi frá störfum. Hins vegar eru enginn úrræði í boði þegar að fangavörður leggur fanga í einelti,“ segir Guð- mundur Ingi. DV hafði samband við Tryggva Ágústsson vegna málsins en hann taldi rétt að tjá sig ekki um málið opin berlega. Hann tók þó fram að hann vonaðist til þess að eitthvað gott kæmi út úr niðurstöðu málsins og dreginn yrði lærdómur af því. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Guðmundur Ingi Þóroddsson Kvart- aði yfir framkomu deildarstjóra og hélt málinu til streitu þrátt fyrir sinnuleysi Fang- elsismálastofnunar og innanríkisráðu- neytisins. Umboðs- maður Alþingis staðfesti síðan að framkoman í hans garð hefði ekki verið í takt við vandaða stjórnsýslu. Litla-Hraun Engin úrræði eru til staðar ef grunur kviknar um að fangavörður leggi fanga í einelti. Það þarf að breytast að mati Guðmundar Inga. „Afstöðu hefur í gegnum árin borist fjöldinn allur af kvört- unum vegna framkomu Tryggva í garð fanga. Sat á húddinu Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni í umdæm- inu aðfaranótt laugardags. Það vakti athygli lögreglu að maður sat á vélarhlíf bifreiðarinnar. Í dagbók lögreglu kemur fram að aksturinn hafi verið stöðvað- ur og í viðræðum við ökumann- inn hafi fundist áfengislykt af honum. Öndunarpróf staðfesti neyslu hans á áfengi og var hann því handtekinn og færður á lög- reglustöð. Féll af hesti og slasaðist Knapi féll af hestbaki við smölun í Korpudal í Önundarfirði á Vest- fjörðum um helgina. Í dagbók lögreglu kemur fram að maður- inn hafi hlotið innvortis áverka sem reyndust sem betur er ekki vera lífshættulegir. Sjúkraflutn- ingamenn og björgunarsveitar- menn voru kallaðir til aðstoðar lögreglu. Lögreglan á Vestfjörðum hafði í mörg horn að líta í liðinni viku og voru afskipti höfð af tveimur ölvuðum mönnum sem létu ófriðlega. Annars vegar var mað- ur handtekinn á veitingahúsi á Ísafirði og mun hann hafa brot- ið rúðu og valdið skemmdum á staðnum. Hins vegar hafði lög- regla afskipti af manni sem braut glerflösku á almannafæri. Mað- urinn er sagður hafa verið ölvað- ur og æstur og á hann yfir höfði sér sekt samkvæmt lögreglusam- þykkt Ísafjarðarbæjar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.