Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 8
Vikublað 4.–6. október 20168 Fréttir
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði
Þ
riggja ára dreng fannst hann
hafa himinn höndum tekið
þegar hann fann drauma-
afmælisgjöfina í leikfanga-
deildinni í Hagkaupum í
Skeifunni. Drengurinn, sem heitir
Kristófer, á afmæli í næsta mánuði
og hafði suðað í móður sinni um sjó-
ræningjaskip frá Playmobil frá síð-
ustu jólum.
Það var ekki hægt að kaupa það
þá, en Kristófer átti að fá það að gjöf
á fjögurra ára afmæli sínu. Skipið
var það síðasta í verslun Hagkaupa
svo móðir hans ákvað að tryggja að
drengurinn fengi það að gjöf í nóv-
ember. Kristófer var að gæta skips-
ins þegar það var tekið úr höndun-
um á honum. Mikið var um að vera
í verslunum Hagkaupa um helgina
en afsláttur var á vörum frá Lego og
Playmobil.
„Þetta gerðist í gær. Hann var
búinn að langa í skipið síðan í des-
ember. Ég var ekki tilbúin að kaupa
það þá. Nú er stutt í afmælið svo ég
ákvað að kaupa það svo hann myndi
örugglega ekki missa af því,“ segir
Helga Nielsen, móðir drengsins, í
samtali við DV.
„Hann sá það og varð alveg veik-
ur. „Má ég fá það núna,“ spurði hann
og ljómaði af spenningi,“ segir Helga.
Á meðan drengurinn hélt við skipið í
hillunni og hún var að ná í aðrar vör-
ur fyrir heimilið var draumaleikfang-
ið hrifsað úr höndum hans.
Konan á að skammast sín
Bróðir Helgu, Þórir Valgarðsson,
vakti fyrst athygli á málinu á sam-
félagsmiðlum. Í samtali við DV seg-
ir Þórir að litla frænda hans hafi
dreymt um skipið í marga mánuði.
„Kona hrifsaði
skipið úr höndum
hans. Hann sagði
að hann ætti skip-
ið en hún flýtti
sér burt, örugg-
lega til að borga.
Hann sagði systur
minni, móður
sinni, frá þessu
en þau fundu ekki
konuna. Hver tekur
svona úr höndum barns.
Þetta er framkoma sem á
ekki að sýna börnum.“
Helga segir að konan ætti að
skammast sín og vonar að um mis-
tök hafi verið að ræða. Hún reyndi að
hafa upp á konunni enn fann hana
hvergi í versluninni. Helga bætir við
að þetta hafi verið síðasta skipið í
versluninni í þeirri stærð sem dreng-
urinn óskaði sér. Hún keypti annað
og minna skip til bráðabirgða.
Taxfree-dagar og mikið að gera
Í Hagkaupum um helgina var enginn
virðisaukaskattur á leikföngum frá
Playmobil og Lego, eða sem nemur
allt að tuttugu prósentum. Það var
því mikið um að vera í verslunum
fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu.
Ólafur Birgisson, verslunarstjóri
í Hagkaupum í Skeifunni, segir að
Íslendingar hafi fjölmennt í versl-
unina og mikið af vörum frá fyrir-
tækjunum hafi selst upp, þar á með-
al umrætt skip sem virðist njóta
mikilla vinsælda
í augnablikinu.
„Ég kann ekki
skýringu á þessu
en hér var með-
al annars starfs-
maður sem
keypti eitt skip
fyrir barnið sitt,“
segir Ólafur. „Það
er ekki óalgengt á taxfree-
dögum að mikið fari af dýr-
ari hlutum. Af þessu vinsæla
skipi eru viðskiptavinir að fá
allt að 2.500 króna afslátt.“
Bætti Ólafur við að honum þætti leitt
að heyra af atviki Helgu og að sonur
hennar hefði ekki fengið drauma-
skipið. Hann veit ekki hvenær skipið
vinsæla kemur aftur í verslanir.
Bannað að taka af börnum
„Þetta er mjög leiðinlegt. Hann
hafði hlakkað svo til. Mér var bent
á að hafa samband við heildsalann
og vonandi tekst mér að finna skip-
ið þar,“ segir Helga sem ákvað að
stíga fram til að vekja athygli á þessu
leiðindamáli í þeirri von að önnur
börn lendi ekki í svipuðum hremm-
ingum á afsláttardögum. Þá segir
hún strákinn enn þá tala um atvikið
sem sitji fast í honum.
„Þú tekur ekki af barni. Þessi
framkoma kennir allavega ekki
börnum að bera virðingu fyrir okkur
fullorðna fólkinu. Hann var með tár-
in í augunum og rosalega sár.“ n
Kona tók afmælisgjöfina
úr höndum Kristófers litla
Kristófer, þriggja ára, var með tárin í augunum eftir að hafa misst af draumaafmælisgjöfinni„Hann var
með tár-
in í augunum og
rosalega sár
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is
Helga og
Kristófer
Segir atvikið
sitja fast í syni
sínum. Honum
hafi sárnað og
hann verið með
tárin í augunum.
Draumagjöfin
Skipið er uppselt
í verslun Hag-
kaupa í Skeifunni.