Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 11
Vikublað 4.–6. október 2016 Fréttir 11 Eyravegi 23, Selfossi - S: 555 1314 - ha@hannyrdabudin.is Hannyrðab udin.isNý hei masíða Ótrúlegtúrval! Verum þjóðleg til hátíðabrigða Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is búrkum og að skólahald að íslömsk- um sið verði ekki leyfilegt. Raunar telur flokkurinn að trúarbrögðin ís- lam séu andstæð íslenskri stjórnar- skrá. Önnur áherslumál flokksins eru mörg hver í ætt við áherslur íhalds- samra hægriflokka. Þannig hafnar flokkurinn aðild Íslands að Evrópu- sambandinu og vill að Ísland segi sig frá EES-samningnum sem og frá Schengen samstarfinu. Standa eigi vörð um fullveldi, sjálfstæði og ís- lenska menningu, leggja áherslu á frelsi einstaklingsins og að takmarka skuli afskipti ríkisvaldsins. Flokk- urinn vill stórefla löggæslu og auka þátttöku Íslands í varnarmálum. Sver sig í ætt við sambærilega flokka á öðrum Norðurlöndum Eiríkur Bergmann stjórnmálafræði- prófessor segir vel mögulegt að Ís- lenska þjóðfylkingin nái inn kjörnum fulltrúum í komandi alþingiskosn- ingum. „Íslenska þjóðfylkingin er þjóðernispopúlískur stjórnmála- flokkur, með líku lagi og slíkir flokkar sem starfa á hinum Norðurlöndun- um. Hægri öfgar flokksins felast í þjóðernisvinklinum og í félagslegri íhaldssemi en ekki í efnahagsvinkl- inum. Líkt og þeir norrænu skiljast þeir frá hægri öfgaflokkum á megin- landinu í því að vilja viðhalda vel- ferðarkerfinu, en – og það er lykil- atriði – að vernda það fyrir aðeins innfædda.“ Eiríkur segir að Íslenska þjóðfylk- ingin sverji sig mjög í ætt við Danska þjóðarflokkinn, hann sé nánast for- snið að því hvernig Íslenska þjóð- fylkingin sé uppbyggð, hvort sem það sé meðvitað eða ómeðvitað. Flokkarnir sem um ræðir á hinum Norðurlöndunum, Danski þjóðar- flokkurinn, Sannir Finnar, Svíþjóðar- demókratar og Framfaraflokkurinn í Noregi, hafa allir haft áhrif í stjórn- málum viðkomandi landa. Þannig hafa Sannir Finnar og Framfara- flokkurinn setið í ríkisstjórnum og Danski þjóðarflokkurinn varði ríkis- stjórn falli í Danmörku. Gæti náð mönnum á þing Eiríkur telur ekki ólíklegt að Íslenska þjóðfylkingin gæti náð inn mönnum á þing. „Það kæmi mér ekki á óvart ef þeir næðu yfir þröskuldinn. Ein af meginforsendum þess að svona flokkar hafi náð flugi er þó að þeir hafi leiðtoga með persónutöfra og útgeislun, það sem heitir „charisma“. Enn sem komið er hefur enginn slík- ur komið fram fyrir Íslensku þjóð- fylkinguna. Engu að síður gætu þeir mögulega náð yfir fimm prósenta markið.“ Eiríkur bendir á að með breyting- um á forystu Framsóknarflokksins gæti losnað um fylgi sem aðhyllist harða þjóðernishyggju en flokkurinn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafi að hluta náð utan um það fylgi. Mögulegt sé að Ís- lenska þjóðfylkingin gæti hagnast á því í komandi kosningum. Vilja ekki sjá samstarf DV hafði samband við formenn eða forsvarsmenn flokkanna sem eiga fulltrúa á Alþingi auk formanns Við- reisnar og innti þá eftir því hvort þeir gætu hugsað sér að vinna með Ís- lensku þjóðfylkingunni í ríkisstjórn, næði flokkurinn kjörnum fulltrúum á þing. Skemmst er frá að segja að fulltrúar fimm flokka hafna alfarið mögulegu samstarfi við Íslensku þjóðfylkinguna. Formaður Sjálf- stæðisflokksins segir að flokkarnir standi langt frá hvor öðrum og hann sé ósammála flestu í stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar en hann vill þó ekki útiloka samstarf við neinn að af- loknum kosningum. Forsvarsmaður Pírata segist ekki einu sinni leiða hugann að flokknum. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, útilokar samstarf við Íslensku þjóðfylkinguna „Ég sé það ekki fyrir mér. Stefnumál flokkanna virðast mér algjörlega ósamrýman- leg, hvað varðar málefni útlendinga. Ég held að ég geti sagt það hreint og beint að ég útiloka samstarf við þennan flokk.“ Bjarni ósammála flestu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, vildi ekki taka jafn djúpt í árinni og Katrín en heyra mátti á honum að hann teldi Sjálf- stæðisflokkinn og Íslensku þjóðfylk- inguna eiga litla samleið. „Ég ætla ekki að segja annað en að ég er mjög ósammála flestu í stefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar en tjái mig að öðru leyti ekki um það hvað ég geri ef einhverjar aðstæður koma upp að loknum kosningum. Þannig staða er uppi í stjórnmálum í dag að það get- ur orðið snúið og flókið verkefni að mynda ríkisstjórn. Þess vegna ætla ég ekkert að tjá mig um það hvern- ig við munum vinna úr niðurstöðum kosninganna. Það verður bara verk- efni þess tíma. Það er augljóst að þeir flokkar sem eru lengst frá okkur í stefnumálum, og ég lít á Þjóð- fylkinguna í þeim hópi, það eru minnstar líkur á því að maður nái saman við þá aðila. Mér finnst að á sumum sviðum séu þeir með algjör- lega óásættanlega nálgun.“ „Nei“ Benedikt Jóhannesson, for- maður Viðreisnar, svaraði stutt og laggott og með ein- dregnum hætti: „Nei.“ Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingar- innar, útilokaði algjör- lega ríkisstjórnarsamstarf við flokkinn. „Ég get algjörlega úti- lokað samstarf við hann, algjörlega. Við í Samfylkingunni munum ekki starfa með Íslensku þjóðfylkingunni, aldrei. Það er alveg á hreinu.“ Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir ekki koma til mála að vinna með flokkum sem kyndi und- ir fordómum. „Þeir sem standa fyrir rasisma og kynþáttafordóma, flokkar sem kynda undir fordómum, sundr- ung og hræðslupólitík, þeir koma ekki til greina sem samstarfsflokkar Bjartrar framtíðar. Hvort sem það er Íslenska þjóðfylkingin, sem sannar- lega stendur fyrir þetta allt, eða aðrir.“ Leiðir ekki hugann að flokknum Smári McCarthy, einn forsvars- manna Pírata, segir að hann hafi kosið að leiða ekkert hugann að Ís- lensku þjóðfylkingunni. „Íslenska þjóðfylkingin stendur fyrir málefni sem eru eiginlega eins langt frá mál- efnastöðu Pírata og hægt er að hugsa sér. Ég hef í raun bara ekki tekið þann flokk með þegar ég hef velt stöðunni fyrir mér, hann mælist líka ekki með fylgi sem nægir til að ná mönnum inn á þing. Þannig að ég bara tek þá ekkert með.“ Afdráttarlaust nei frá Sigurði Inga Sigurður Ingi Jóhannsson, nýkjör- inn formaður Framsóknarflokksins, svarar mjög afdráttarlaust neitandi þegar hann er spurður um hugsan- legt samstarf við Íslensku þjóðfylk- inguna. „Framsóknarflokkurinn er félagshyggjuflokkur sem býður fram á eigin forsendum, en ekki annarra. Ákveðin stef í grunnstefnu Íslensku þjóðfylkingarinnar eru ósamrýman- leg stefnu Framsóknarflokksins.“ n „Ég hef í raun bara ekki tekið þann flokk með þegar ég hef velt stöðunni fyrir mér, hann mælist líka ekki með fylgi sem nægir til að ná mönnum inn á þing. Þannig að ég bara tek þá ekkert með. Eiríkur Bergmann Einarsson Stjórnmálafræðiprófessor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.