Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 4.–6. október 201614 Fréttir
Fæst í öllum helstu apótekum og Heilsuhúsinu.www.provision.is
Viteyes AREDS2 er andoxunarvítamín með
sinki, lúteins og zeaxantíns og er ætlað
við aldursbundinni augnbotnahrörnun.
Nú er vítamínið með endurbættri formúlu
sem gerir það enn betra en áður.
AUGNVÍTAMÍN
Augnheilbrigði
Við aldursbundinni
augnbotnahrörnun
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
Fjárhagsstaða
fjölskyldna
batnar
Eiginfjárstaða allra
fjölskyldugerða batnaði árið
2015 ef marka má nýjar tölur frá
Hagstofunni. Þetta á einkum við
um einstæða foreldra en staða
eiginfjár í þeim hópi jókst um 50
prósent árið 2015.
Eiginfjárstaða einstaklinga jókst
um 17,1%, hjóna án barna um
12,7% og hjóna með börn um
27,5%. Eiginfjárstaða milli ára
hækkar mest í aldurshópunum
25–39 ára, úr 55 milljörðum
króna í 111 milljarða króna
árið 2015. Alls voru 153.084
fjölskyldur (76%) með jákvæða
eiginfjárstöðu í lok árs 2015
sem er 6,9% fjölgun á milli ára.
Fjölskyldur með neikvæða
eiginfjárstöðu voru 45.529
(22%) og hefur fækkað um 11%
frá fyrra ári. Fjölda fjölskyldna
með neikvætt eigið fé í húsnæði
fækkar líkt og undanfarin ár.
Árið 2015 voru 7.320 fjölskyldur
með neikvæða eiginfjárstöðu í
fasteign, eða 57% færri en árið
2014, að því er fram kemur í
niðurstöðum Hagstofunnar.
Costco flytur
þrjá milljarða
til landsins
n Bandaríski smásölurisinn eykur
hlutafé íslenska dótturfélagsins
H
lutafé íslenska einkahluta-
félagsins Costco Wholesale
Iceland, sem er í eigu
bandaríska smásölurisans
Costco, var aukið um rúma
þrjá milljarða króna í lok síðasta
sumars. Stendur hlutaféð nú í rétt
tæpum 3,5 milljörðum króna en var
áður 394 milljónir. Fjórir karlmenn
sitja í stjórn íslenska dótturfélagsins
og gegna þeir allir stjórnunarstöðum
hjá Costco.
Forstjórinn í stjórninni
Íslenska dótturfélagið er í eigu
Costco Wholesale Corporation sem
er með höfuðstöðvar í bandarísku
borginni Issaquah í Washington-
ríki. Samkvæmt skráningu einka-
hlutafélagsins í hlutafélagaskrá
Ríkisskattstjóra (RSK) sitja fjórir yfir-
menn hjá verslanakeðjunni í stjórn
þess. Walter Craig Jelinek, forstjóri
Costco, er stjórnarformaður íslenska
einkahlutafélagsins. James Patrick
Murphy, rekstrarstjóri verslana
Costco utan Ameríku, og Richard
Alan Galanti, fjármálastjóri Costco,
eru einnig stjórnarmenn ásamt
Steve Pappas, framkvæmdastjóra
Costco í Bretlandi og á Íslandi.
Félagið var stofnað í júní 2014 eða
skömmu eftir að áform fyrirtækis-
ins um verslunarrekstur hér á landi
rötuðu í fjölmiðla. Hlutafé þess hef-
ur síðan þá verið aukið þrisvar sinn-
um. Í desember 2015 nam hækkun-
in 147 milljónum króna en í apríl
síðastliðnum fór hlutaféð upp í 394
milljónir. Þann 24. ágúst síðastliðinn
barst RSK svo tilkynning um að
hlutaféð væri 3.490 milljónir króna.
Hálft ár í opnun
Bandaríski smásölurisinn stefnir
að opnun verslunar við Kauptún í
Garðabæ í mars á næsta ári. Fram-
kvæmdir við fjórtán þúsund fer-
metra verslun fyrirtækisins eru í
fullum gangi en hún verður eins og
komið hefur fram aðeins opin með-
limum sem greiða árgjald.
DV fjallaði í síðasta mánuði
um nýtt verðmat Hagfræðideildar
Landsbankans á verslunarfyrirtæk-
inu Högum. Kom þá fram að starfs-
menn Landsbankans hefðu teiknað
upp sviðsmynd sem gerði ráð fyrir að
ársvelta Costco hér á landi yrði ná-
lægt því sem þekkist úr öðrum versl-
unum keðjunnar utan Ameríku eða
um fjórtán milljarðar króna. Heildar-
velta Costco í fyrra nam 14.000 millj-
örðum króna en það ár var íslenski
smásölumarkaðurinn um 400 millj-
arðar króna. Smásölurisinn rek-
ur 686 verslanir og þar af 117 utan
Ameríku.
Samkvæmt mati Landsbankans
gætu Hagar, sem reka margar af
stærstu verslanakeðjum landsins
eins og Bónus og Hagkaup, misst
rúma tvo milljarða króna af ársveltu
sinni til Costco. Þá telur Trausti Har-
aldsson, framkvæmdastjóri grein-
ingarfyrirtækisins Zenter, sem vann
skýrslu um áhrif verslunarreksturs
Costco á íslenskan markað, að koma
bandaríska fyrirtækisins hingað til
lands geti haft áhrif á íslenska raf-
tækjamarkaðinn og þá sérstaklega
verslun með Apple-vörur. n
Allt á fullu Costco vill opna verslun sína í Kaup-
túni í mars á næsta ári. Áður stóð til að dyrnar yrðu
opnaðar fyrir næstu áramót. Mynd Sigtryggur Ari
Forstjóri Costco
Walter Craig Jelinek
er stjórnarformaður
Costco Wholesale
Iceland ehf. Hann
hóf störf hjá banda-
ríska fyrirtækinu
árið 1984 en settist
í forstjórastólinn í
byrjun árs 2012.
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is