Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 4.–6. október 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Ég verð aldrei sami
Kalli Berndsen
Karl Berndsen um veikindin í helgarblaði DV. – DV
Afdráttarlaus Sigurður
Nýkjörinn formaður Fram-
sóknarflokksins, Sigurður Ingi Jó-
hannsson, svarar afdráttarlaust
neitandi þegar hann er spurður
um mögulegt samstarf Fram-
sóknarflokksins við Íslensku
þjóðfylkinguna í DV í dag. Segir
Sigurður að grunnstef flokksins,
sem einkennast meðal annars
af andúð í garð innflytjenda og
múslima, sé ósamrýmanlegt
stefnu Framsóknarflokksins. For-
veri hans, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, var gagnrýndur mjög
fyrir að stíga ekki fram þegar
frambjóðendur flokksins í borg-
arstjórnarkosningum andæfðu
byggingu mosku og döðruðu við
svipaða stefnu og Íslenska þjóð-
fylkingin hefur.
20% þakklætisafsláttur
af slökun út október
Þökkum þær
frábæru viðtökur
sem SLÖKUN hefur
fengið á Íslandi.
Mamma veit best, Heilsuhúsin, Lyfja, Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Mos, Apótek Ólafsvíkur, Árbæjarapótek, Borgar Apótek,
Heilsutorg Blómaval, Farmasía, Fjarðakaup, Garðsapótek, Heilsuver, Lyfjaval, Lyfsala Vopnarfirði, Lyfsala Hólmavík, Lyfsalinn Glæsibæ,
Siglufjarðar Apótek, Hraunbergsapótek, Rima Apótek, Reykjavíkur Apótek, Apótek Vesturlands, Apótek Garðabæjar, Lyf og heilsa.
Hann kom
aldrei aftur
Faðir Haraldar Ara fórst í sjóslysi árið 1992. – DV
Ég stóð sem nakin þarna
á vaktinni, allslaus
Guðný varð fyrir barðinu á þjófi á AA-fundi á Vogi. – DV
Úrslitin kunn Átakaþing Framsóknarmanna er afstaðið. Sigurður Ingi Jóhannsson, nýkjörinn formaður, kveðst ekki óttast klofning innan flokksins og sagðist á
mánudag treysta sér til þess að starfa með hverjum sem er. mynD SIGtryGGur ArI
Myndin
Þ
að skiptir máli hvernig menn
taka sigri. Viðbrögð Sigurðar
Inga Jóhannssonar við sigri
í formannskosningu í Fram-
sóknarflokknum lýstu þroska. Hann
bað salinn að klappa fyrir Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, sem menn
gerðu fúslega, og bað fólk síðan að
takast í hendur sem tákn um sam-
stöðu. Sigurður Ingi kom þarna fram
sem maður sátta – eins og hann hef-
ur reyndar gert frá því hann varð for-
sætisráðherra. Hann er viðfelldinn
maður og tiltölulega óumdeildur.
Það skiptir líka máli hvernig fólk
tekur ósigri. Viðbrögð Sigurðar Inga
hefði hann tapað kosningunni hefðu
örugglega einkennst af auðmýkt og
sátt. Hann hafði lýst því yfir og ítrekað
lagt áherslu á að hann myndi starfa
áfram af heilindum lyti hann í lægra
haldi fyrir Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni.
Sigmundur Davíð er annarrar
gerðar en Sigurður Ingi. Hann talar
ætíð afdráttarlaust, mjög afgerandi
og ögrandi, og er ekki maður mála-
miðlana. Sannarlega býr hann yfir
ýmsum góðum kostum, en hann á
afar erfitt með að þola mótlæti og
tekur yfirleitt gagnrýni sem persónu-
legri árás. Hann er gefinn fyrir að
ræða um svik, fyrirsát og óvinaher.
Viðbrögð hans við úrslit-
um for mannskosningar
voru ekki stórmannleg
og reyndar um margt
undarleg. Flestum var
ljóst að mjótt gæti orðið
á mununum, en svo
virðist sem Sigmundur
Davíð og stuðnings-
menn hans hafi verið of
sigurvissir og ekki séð
ástæðu til að koma sér
upp varaáætlun færu
úrslitin öðruvísi en þeir
ætluðu.
Stjórnmálamaður sem strunsar
út eftir að tapa formannskjöri er
hvorki sjálfum sér né flokki sínum
til sóma. Hann opinberar sig sem
tapsára prímadonnu. Sigmundur
Davíð var í einstakri stöðu. Hann
hafði tækifæri til að fara upp á svið
og halda ræðu þar sem hann viður-
kenndi ósigur sinn og óskaði um
leið keppinaut sínum til hamingju.
Hann hafði tækifæri til að hvetja
flokksmenn til að slíðra sverðin og
sameinast fyrir kosningar. Hann
hefði fengið standandi lófaklapp og
sýnt sig sem mann sátta. Tilfinn-
ingarnar báru hins vegar Sigmund
Davíð ofurliði og hann hvarf á braut
og skildi eftir furðu lostna flokks-
menn sína.
Það er ekki of seint
fyrir Sigmund Davíð
að stíga fram og hvetja
hinar ólíku fylkingar
Framsóknarmanna til
sátta. Orð hans hafa
vægi innan flokksins
og slík hvatning skipt-
ir miklu máli. Taki
Sigmundur Davíð
hagsmuni flokksins
fram yfir eigin hags-
muni mun hann vaxa
að virðingu, bæði
innan flokks og utan.
Framsóknarflokkurinn hefur
skipt um forystu og fyrir vikið feng-
ið mildari og frjálslyndari ásýnd og
kann því að höfða til breiðari kjós-
endahóps en áður. Engan veginn er
þó víst að það fylgi skili sér á þeim
örfáu vikum sem eru til kosninga.
Það mun taka þó nokkurn tíma fyrir
flokksmenn að græða sárin. n
Að kunna að tapa
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Viðbrögð hans
við úrslitum
formannskosningar voru
ekki stórmannleg.