Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 19
Eldra fólk verður háð
hljóðbókaspilurunum
Örtækni, Hátúni 10c
F
yrirtækið Örtækni á sér
langa sögu, var stofnað árið
1976 og er sjálfstætt fyrir-
tæki í eigu Öryrkjabandalags
Íslands. Í upphafi var Ör-
tækni meðal annars í samstarfi við
Háskóla Íslands í þróun og fram-
leiðslu á tölvuvogum fyrir fiskiskip.
Seinna var fyrirtækið Marel stofn-
aði í kringum þá framleiðslu.
Tengivörur fyrir fagfólk
Upp úr 1990 hóf fyrirtækið fram-
leiðslu á tölvuköplum og tengi-
búnaði fyrir tölvur. Síðan þá hafa
tölvukaplar og tengihlutir fyrir tölv-
ur í hæsta gæðaflokki verið flaggskip
starfseminnar, enda verslar fagfólk
mikið við Örtækni. Markmið fyrir-
tækisins er tvíþætt. Annars vegar að
veita fólki með fötlun tímabundna
starfsþjálfun eða vinnu til framtíðar.
Hins vegar að þjóna fötluðum með
sölu og þjónustu á hjálparbúnaði
fyrir fatlaða.
Hljóðbókaspilarar slá í gegn
Ein af þeim vörum sem Örtækni
býður er hljóðbókaspilari. „Það má
segja að þessi vara hafi slegið í gegn
hjá okkur,“ segir Hartmann Kr. Guð-
mundsson, forstöðumaður tækni-
vinnustofu Örtækni. „ Blindir og
sjónskertir hafa mikil not af spilur-
unum, en fleiri og fleiri hafa verið
að uppgötva þá sér til yndisauka.
Eldra fólk hefur í auknum mæli
verið að fá sér svona spilara og til-
vist þeirra spyrst hratt út,“ segir
Hartmann.
Virkar eins og bók
Hann segir að spilararnir virki í
raun eins og bók. „Þú byrjar þar
sem þú endaðir síðast og þó að fólk
sé með fleiri en eina bók í gangi, þá
man spilarinn hvar þú varst stadd-
ur síðast í hverri þeirra. Þetta virkar
eins og bók á pappír. Þú getur flett í
henni og sett bókamerki alveg eins
og í venjulegri bók.“
Einfaldir og henta eldri
Spilararnir eru framleiddir erlend-
is, en Örtækni hefur verið í náinni
samvinnu við framleiðandann. „Við
höfum komið að þróun spilaranna
og lagt áherslu á einfaldleika við
notkun þeirra. Þannig er hægt að
loka tökkum nema þeim sem spóla
áfram og afturábak, spila, stoppa og
hljóðstyrk, þannig að þeir sem ekki
eru tæknilega flinkir eiga auðvelt
með að nota þá. Spilararnir henta
því afar vel eldra fólki.“
Samdægurs úr viðgerð
Hljóðbækur eru á ýmsu formi en
spilararnir taka jafnt við hljóðbók-
um á geisladiskum, minniskortum
og USB-lyklum og hljómgæðin eru
mjög góð. „Við sjáum að eldra fólk
sem hefur fengið sér spilara verður
gjörsamlega háð honum. „Þá sjald-
an sem þarf að þjónusta tækið, þá
reynum við að gera það samdæg-
urs, því við finnum að fólk getur
ekki án þess verið og verður að fá
tækið fyrir kvöldið til að geta hlust-
að áður en það fer að sofa,“ segir
Hartmann og hlær. n
Sjá nánar á ortaekni.is
Brot af því besta
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
4. október 2016
Kynningarblað