Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 21
Vikublað 4.–6. október 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 3
Bjartur og fallegur salur
fyrir vel heppnaðar veislur
Kristalsalurinn, Fákafeni 9, 109 Reykjavík
K
ristalsalurinn er bjartur og
fallegur veislusalur með yfir
bragði sem er í senn létt og há
tíðlegt en kristalkúlur í loftinu
gefa honum mjög skemmti
legt yfirbragð. „Salurinn er mjög
bjartur og opinn og það er mjög gott
aðgengi að honum, til dæmis gott
aðgengi fyrir hjólastóla,“ segir einn
af eigendunum, Steinunn Halldórs
dóttir. Kristalsalurinn er staðsettur að
Fákafeni 9 en þar er einnig kaffihúsið
Cafe Meski og er það í eigu sömu aðila.
Kristalsalurinn tekur um 100
manns í sæti og 200 í standandi
veislum. Segir Steinunn að veislurn
ar séu afar fjölbreyttar.
„Þetta er afskaplega blandað.
Það eru fermingarveislur, ættarmót,
brúðkaupsveislur, hér hafa verið
haldin þorrablót og hingað hafa
komið kvennakórar og verið með
partí. Það er margt sem kemur til
greina. Fólk getur síðan hvort sem
er komið með sínar veitingar og nýtt
eldhúsaðstöðuna hjá okkur en síðan
er hægt að kaupa veitingar af okkur.
Þetta er sniðið að kúnnanum hverju
sinni,“ segir Steinunn og aðspurð
segir hún að veitingarnar sem þau
bjóði upp á séu alls konar, það fari
einfaldlega eftir óskum viðskipta
vinarins hverju sinni: „Það geta ver
ið kökuhlaðborð, pinnahlaðborð,
steikarhlaðborð og ýmislegt fleira.“
„Við bjóðum líka upp á að vera
með veislutjöld hér fyrir utan, fólk
hefur sett upp partítjöld hér við
hornið og dekkað þar borð og sett
upp stóla,“ segir Steinunn.
En hvers konar veislur eru aðal-
lega framundan núna?
„Það eru árshátíðir og svo styttist
í jólahlaðborðin en það er byrjað að
bóka þau strax í byrjun október.“
Því er svo við þetta að bæta að
Kristalsalurinn leigist með dúkum
og nóg er til af kertastjökum og borð
skrauti til að gefa góða stemningu í
veisluna. n
Best er að panta eða senda fyrir-
spurnir með tölvupósti á netfang-
ið kristalsalurinn@gmail.com eða
hringja í síma 866-1671.
Myndir www.salir.is