Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 4.–6. október 2016 Kynningarblað - Brot af því besta 3 Bjartur og fallegur salur fyrir vel heppnaðar veislur Kristalsalurinn, Fákafeni 9, 109 Reykjavík K ristalsalurinn er bjartur og fallegur veislusalur með yfir­ bragði sem er í senn létt og há­ tíðlegt en kristalkúlur í loftinu gefa honum mjög skemmti­ legt yfirbragð. „Salurinn er mjög bjartur og opinn og það er mjög gott aðgengi að honum, til dæmis gott aðgengi fyrir hjólastóla,“ segir einn af eigendunum, Steinunn Halldórs­ dóttir. Kristalsalurinn er staðsettur að Fákafeni 9 en þar er einnig kaffihúsið Cafe Meski og er það í eigu sömu aðila. Kristalsalurinn tekur um 100 manns í sæti og 200 í standandi veislum. Segir Steinunn að veislurn­ ar séu afar fjölbreyttar. „Þetta er afskaplega blandað. Það eru fermingarveislur, ættarmót, brúðkaupsveislur, hér hafa verið haldin þorrablót og hingað hafa komið kvennakórar og verið með partí. Það er margt sem kemur til greina. Fólk getur síðan hvort sem er komið með sínar veitingar og nýtt eldhúsaðstöðuna hjá okkur en síðan er hægt að kaupa veitingar af okkur. Þetta er sniðið að kúnnanum hverju sinni,“ segir Steinunn og aðspurð segir hún að veitingarnar sem þau bjóði upp á séu alls konar, það fari einfaldlega eftir óskum viðskipta­ vinarins hverju sinni: „Það geta ver­ ið kökuhlaðborð, pinnahlaðborð, steikarhlaðborð og ýmislegt fleira.“ „Við bjóðum líka upp á að vera með veislutjöld hér fyrir utan, fólk hefur sett upp partítjöld hér við hornið og dekkað þar borð og sett upp stóla,“ segir Steinunn. En hvers konar veislur eru aðal- lega framundan núna? „Það eru árshátíðir og svo styttist í jólahlaðborðin en það er byrjað að bóka þau strax í byrjun október.“ Því er svo við þetta að bæta að Kristalsalurinn leigist með dúkum og nóg er til af kertastjökum og borð­ skrauti til að gefa góða stemningu í veisluna. n Best er að panta eða senda fyrir- spurnir með tölvupósti á netfang- ið kristalsalurinn@gmail.com eða hringja í síma 866-1671. Myndir www.salir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.