Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Page 22
Vikublað 4.–6. október 20164 Brot af því besta - Kynningarblað
Gleraugu með karakter: Mesta
úrval landsins af retro-umgjörðum
Sjón Gleraugnaverslun, Laugavegi 62, 101 Reykjavík
S
jón er afar vinsæl gleraugna-
verslun, ekki síst hjá þeim
sem vilja gleraugu með
persónulegu yfirbragði en
ekki umgjarðir sem líta út
eins og hjá næsta manni. Verslunin
státar af stærsta lager landsins af
retro-umgjörðum þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Auk
þess leggur Sjón mikla áherslu á
hagstætt verð sem kemur til dæmis
skólafólki vel, sem og persónulega
þjónustu og hágæðagler.
Eigandi Sjónar er Austurríkis-
maðurinn Markus Stephan Klinger
en hann kom hingað fyrst til lands
árið 1988 og starfaði í Fókus sem þá
var við Lækjargötu. Árið 1999 kom
Markus, sem talar reiprennandi ís-
lensku, aftur til landsins, og ákvað
að ílendast hér. Hann stofnaði gler-
augnaverslunina Sjón það ár.
„Við höfum alltaf verið með mik-
ið af skólafólki hér því við erum alltaf
með hagstæð skólatilboð,“ segir
Markus en ákveðin straumhvörf
urðu í rekstrinum árið 2009 þegar
Sjón keypti 75 ára gamla verslun,
Optik: „Við ákváðum að nota þeirra
umgjarðir því eftirspurn eftir stórum,
gömlum umgjörðum fór mjög vax-
andi. Lagerinn inniheldur yfir 5.000
upprunalegar umgjarðir frá árunum
1948 til 1989,“ segir Markus. Þetta gíf-
urlega úrval af stórum og frumlegum
umgjörðum laðar að listamenn auk
skólafólksins, því margir vilja bera
persónuleg gleraugu sem aðrir sjást
ekki með.
Sjón býður líka upp á sína eigin
hönnun, Sjón Reykjavík, sem
Markus hannar sjálfur. Þau gleraugu
njóta mikilla vinsælda hér á landi en
eru auk þess seld í Bandaríkjunum.
Sjón býður einnig upp á sportgler-
augu sem hafa mælst mjög vel fyrir,
gleraugu fyrir hjólafólk, hlaupara og
golfara. Um er að ræða svissneska og
þýska hönnun á glerjum sem hafa
mjög gott orðspor, enda kemur engin
móða á þau, hönnunin er þannig að
það loftar alltaf í milli.
Sjón Gleraugnaverslun leggur
annars vegar mikla áherslu á topp-
gæði og háan standard á sjónglerj-
um, en hins vegar á hagstætt verð.
Sem dæmi má nefna að retro-gler-
augu sem Sjón býður til sölu á 12.900
krónur kosta í sumum tilfellum um
200 evrur eða 30.000 krónur á sölu-
vefnum eBay. n
Sjón Gleraugnaverslun er opin
virka daga frá 10 til 18 og laugardaga
frá 10 til 16. Sjá nánar á sjon.is n
Jólavörurnar að koma í hús:
Kjólar, skór og fleira fínerí
Prinsessan, Álfabakka 14b
P
rinsessan er gróin og sívin-
sæl kjólabúð fyrir konur
á öllum aldri, staðsett í
Mjóddinni. Verslunin hef-
ur verið starfandi í 19 ár og
þangað koma í bland við nýja við-
skiptavini margir sem átt hafa við-
skipti við verslunina í mörg ár. Um
það má nefna skemmtilegt dæmi
um konu sem eignast hafði fal-
legan kjól úr Prinsessunni er hún
var lítil stúlka og keypti þar brúðar-
kjólinn sinn þegar hún gifti sig!
Núna í október koma jólakjólarnir á
stelpurnar og flottir hvítir og silfur-
litaðir hælaskór og flatir skór. Einnig
koma nýir konujólar.
Prinsessan hefur alltaf verið
þekkt fyrir fallega síðkjóla og stutta
kjóla, stærðir XS til 5X. Einnig
flotta prinsessukjóla á stelpur. Síð-
an eru alltaf útsölukjólar
frá 12.000 kr. og stuttir kjól-
ar frá 5.000 kr. Nýlega komu
síðan í verslunina toppar
og túnikur sem eru í
einstaklega falleg-
um mynstrum og
litum. Eru þessar
vörur á mjög hag-
stæðu verði, fínt í af-
mælis- og jólagjafir.
„Topparnir og
túnikurnar eru á
7.500 krónur
og svo er
einn og einn á 8.500. Auk þess er 10
prósenta afsláttur fyrir ellilífeyris-
þega og öryrkja. Fötin hérna eru
yfir leitt í fallegum litum sem virðast
ganga vel í konur. Þetta er fyrir kon-
ur á öllum aldri og í öllum stærð-
um því við erum með litskrúð-
uga toppa og túnikur
í stærðum frá S upp í
3XL,“ segir Svanhild-
ur Eyjólfsdóttir, sem
hefur staðið vaktina
lengi í Prinsess-
unni og margir
viðskiptavinir
verslunarinnar
hafa haldið
tryggð við hana
jafnframt því
sem margir nýir
bætast við á
hverju ári.
„Út-
sölusíð-
kjól-
arnir
eru
síðan sérstaklega vin-
sælir enda mjög falleg-
ir,“ bætir Svanhildur við,
en allt frá barnungum telpum upp í
eldri dömur eignast fallega kjóla frá
Prinsessunni.
Þess má geta að ný sending af
síðkjólum, toppum og túnikum var
að koma í hús sem afar spennandi
er að skoða og kynna sér enda eru
framundan tímar sem geta kallað á
ný spariföt, til dæmis árshátíðir og
síðar jólahlaðborð.
Fyrir utan þetta er Prinsessan
með fallega spariskó til sölu og
auk þess mjög falleg spariföt fyrir
drengi. n
Prinsessan er til húsa að Álfa-
bakka 14B í Mjóddinni. Opið er
virka daga frá kl. 11 til 18 og laugar-
daga frá kl. 11 til 14. Sjá nánar á vef-
síðunni prinsessan.is og Prinsessan
á Facebook.