Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 24
Vikublað 4.–6. október 201620 Sport
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
N
íu af þeim leikmönnum
sem byrjuðu leik
Íslands gegn Úkraínu
í undankeppni HM í
byrjun september eru
leikfærir og í góðu leikformi.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði
íslenska liðsins, hefur glímt við
meiðsli og misst af fjórum síðustu
leikjum Cardiff og þá er Jón Daði
Böðvarsson einnig tæpur vegna
meiðsla. Báðir eru þeir þó í íslenska
hópnum sem mætir Finnum
og Tyrkjum á Laugardalsvelli
næstkomandi fimmtudag og
sunnudag.
Tveir lykilmenn meiddir
DV skoðaði stöðuna á
leikmannahópi íslenska liðsins
í aðdraganda leikjanna. Þrír
lykilmenn hafa glímt við meiðsli
því auk Arons Einars og Jóns
Daða er Kolbeinn Sigþórsson
fjarverandi vegna meiðsla. Aðrir
leikmenn eru fastamenn í sínum
félagsliðum og hafa spilað mikið
fyrir lið sín að undanförnu. Nánari
útlistun á leiktíma þeirra sem
byrjuðu gegn Úkraínu má sjá á
skýringarmyndinni hér að ofan.
Um er að ræða leiktíma með
félagsliðum eftir landsleikinn
gegn Úkraínu þann 5. september
síðastliðinn.
Finnar ekki unnið leik í rúmt ár
Fyrsti heimaleikur Íslands í
undankeppni HM verður gegn
Finnum á fimmtudag. Finnar gerðu
jafntefli við Kósóvó á heimavelli í
fyrsta leik sínum í riðlakeppninni.
Gengi finnska landsliðsins að
undanförnu hefur valdið miklum
vonbrigðum; liðið hefur ekki unnið
í síðustu tíu landsleikjum sínum
og átti sinn síðasta sigur leik gegn
Færeyjum í lokaleik undankeppni
EM í september í fyrra. Síðan þá hafa
þeir tapað gegn Svíum, Íslendingum,
Pólverjum, Norðmönnum, Ítölum
og Þjóðverjum og gert jafntefli gegn
Belgum, Norður-Írum, Rúmenum
og Kósóvó. Finnar sitja í 84. sæti
á styrkleikalista FIFA og hafa
fallið hratt á listanum undanfarna
mánuði. Í ársbyrjun voru þeir í 44.
sæti á listanum.
Tyrkir ná vopnum sínum
Íslendingar mæta svo Tyrkjum
á Laugardalsvelli á sunnudag
í leik sem gæti reynst einn af
lykilleikjunum í riðlinum. Þessi lið
voru saman í riðli í undankeppni
EM og vann Ísland magnaðan
3-0 sigur í fyrri leiknum á
Laugardalsvelli. Dæmið snerist við
í seinni leiknum í Tyrklandi en þá
fóru Tyrkir með 1-0 sigur af hólmi í
lokaleik riðilsins.
Tyrkir virðast vera að ná vopnum
sínum ef marka má síðustu leiki
þeirra. Gengi þeirra á EM í sumar
olli vonbrigðum en þeir unnu einn
leik í riðlakeppninni, 2-0 gegn
Tékkum, og komust ekki áfram.
Síðan á EM hafa Tyrkir spilað tvo
leiki; annars vegar vináttuleik gegn
Rússum sem fór 0-0 og hins vegar
gegn Króatíu á útivelli í fyrsta leik
undankeppninnar. Sá leikur fór 1-1
en fyrirfram voru Króatar álitnir
sigurstranglegri. n
LykiLmeNN eru tæpir
n Ísland mætir Finnum og tyrkjum n Finnar ekki unnið landsleik í rúmt ár
Ragnar
Sigurðsson
Félagslið: Fulham
Leiknar mínútur: 450
Alfreð
Finnbogason
Félagslið: Augsburg
Leiknar mínútur: 450
Jón Daði
Böðvarsson
Félagslið: Wolves
Leiknar mínútur: 299
Birkir Már
Sævarsson
Félagslið: Hammarby
Leiknar mínútur: 450
Kári Árnason
Félagslið: Malmö
Leiknar mínútur: 333
Gylfi Þór
Sigurðsson
Félagslið: Swansea
Leiknar mínútur: 391
Ari Freyr
Skúlason
Félagslið: Lokeren
Leiknar mínútur: 360
Jóhann Berg
Guðmundsson
Félagslið: Burnley
Leiknar mínútur: 292
Hannes Þór
Halldórsson
Félagslið: Randers
Leiknar mínútur: 450
Birkir Bjarnason
Félagslið: Basel
Leiknar mínútur: 359
Aron Einar
Gunnarsson
Félagslið: Cardiff
Leiknar mínútur: 270
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is