Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Qupperneq 25
Vikublað 4.–6. október 2016 Sport 21 eldofninn.is Eldofninn, pizzeria • Bústaðavegi • sími 533 1313 • eldofninn.is Kaffit ími - ekta Íta lskt Eldofninn flytur in n eðal kaffi frá Ítal íu A ðeins einu sinni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hafa ríkj- andi Englandsmeistarar byrjað verr en Leicester. Nú þegar sjö umferðum er lok- ið í ensku úrvalsdeildinni er Leicester með átta stig í 12. sæti deildarinnar. Aðeins Blackburn, tímabilið 1995 til 1996, byrjaði verr er Leicester en þegar sjö umferðir voru búnar var Blackburn með 7 stig. Á toppi síns riðils Slök byrjun Englandsmeistaranna hefur ekki komið sparkspekingum beinlínis á óvart enda flestir á einu máli um það að velgengni liðsins á síðustu leiktíð hafi verið einsdæmi í knattspyrnusögunni. Liðið er í Meist- aradeild Evrópu og það er þekkt hjá liðum sem ekki hafa verið í Evrópu- keppni lengi að það gefi á bátinn heima fyrir. Leicester er þó á toppi síns riðils í Meistaradeildinni eftir tvo sterka sigra gegn Club Brugge og Porto og virðist liðið enn geta kom- ið andstæðingum sínum í Evrópu á óvart með skyndisóknum sínum. Sami stigafjöldi og hjá Chelsea Athygli vekur á stigasöfnun Leicester eftir sjö umferðir er nákvæmlega sú sama og stigasöfnun Chelsea á síð- ustu leiktíð, en þegar síðasta tímabil hófst var Chelsea Englandsmeistari. Chelsea tókst ekki að rétta úr kútn- um svo neinu nemur og endaði tímabilið í 10. sæti. Blackburn aftur á móti endaði í 7. sæti árið 1996. Játaði mistök Leicester gerði markalaust jafn- tefli gegn Southampton á heimavelli á sunnudag – í leik sem lærisveinar Claudio Ranieri voru heppnir að tapa ekki. Eftir leik sagði Ranieri að hann hafi gert mistök í uppstillingunni á liði sínu með því að stilla nánast upp sama liði og spilaði í Meistaradeildinni í liðinni viku. Þó að liðið hafi haldið hreinu gegn Southampton hefur slak- ur varnarleikur verið einkennandi fyrir Leicester. Liverpool, Chelsea og Manchester United hafa öll skorað fjór- um sinnum hjá Leicester – Chelsea í deildabikarnum – og á sama tíma hefur markaskorun verið hausverkur. Liðið hefur skorað átta mörk í sjö leikjum í deild og þar af hefur markahrókurinn Jamie Vardy aðeins skorað tvö mörk. Sakna Kante Leicester virðist auk þess sakna N‘Golo Kante sem var seldur til Chelsea í sumar. Vinnusemin í hon- um fleytti liðinu langt og var hann að öðrum ólöstuðum einn allra besti leikmaður deildarinnar á síð- asta tímabili. Arftaki hans, Frakkinn Nampalys Mendy, hefur verið meiddur og lítið komið við sögu. Þá hefur sextán milljóna punda fram- herjanum Ahmed Musa ekki enn tekist að skora á tímabilinu. Fram- herjinn Islam Slimani sem kom til liðsins frá Sporting í sumar lofar þó góðu en Alsíringurinn hefur skorað þrjú mörk í fyrstu fimm leikjum sín- um. n Fyrstu sjö leikir Blackburn 1995–1996 Blackburn 1-0 QPR S. Wednesday 2-1 Blackburn Bolton 2-1 Blackburn Blackburn 1-2 Man. United Blackburn 1-1 Aston Villa Liverpool 3-0 Blackburn Blackburn 5-1 Coventry City Lokastaða: 7. sæti Fyrstu sjö leikir Chelsea 2015–2016 Chelsea 2-2 Swansea Manchester City 3-0 Chelsea West Brom 2-3 Chelsea Chelsea 1-2 Crystal Palace Everton 3-1 Chelsea Chelsea 2-0 Arsenal Newcastle 2-2 Chelsea Lokastaða: 10. sæti Fyrstu sjö leikir Leicester 2016–2017 Hull City 2-1 Leicester Leicester 0-0 Arsenal Leicester 2-1 Swansea Liverpool 4-1 Leicester Leicester 3-0 Burnley Man. United 4-1 Leicester Leicester 0-0 Southampton Lokastaða: Á ekki við Titilvörn Leicester ein sú allra versta n Aðeins Blackburn með færri stig eftir sjö umferðir n Á flugi í Meistaradeildinni Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Erfið byrjun Leicester er með 8 stig eftir 7 umferðir. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn Southampton um helgina og tapaði 4-1 gegn Manchester United um þar síðustu helgi. Mynd EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.