Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 28
Vikublað 4.–6. október 201624 Menning Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. kjúklinga vefjur og borgarar Í slandsbók barnanna er barnabók eftir Margréti Tryggvadóttur með myndum eftir Lindu Ólafsdóttur. Margrét, sem er myndritstjóri, var um tíma þingmaður en vinnur nú við ritstörf, myndstjórn fyrir bóka- forlög og textaritstjórn. Íslandsbók barnanna er fjórða barnabók hennar. „Bókin er hugsuð fyrir börn og fjöl- skyldur og fjallar í máli og myndum um Ísland, í víðri skilgreiningu. Þar er sagt frá náttúru, dýrum, ýmsum stöðum, tungu og þjóð. Hver opna er heild og á henni er fjallað um ákveðið efni í máli og myndum. Á þessum 50 opnum förum við í myndefninu í gegnum heilt ár og sýnum allar árs- tíðirnar,“ segir Margrét. „Bókin var mjög lengi í fæðingu. Hún átti upphaflega að koma út vor- ið 2009 og vera ferðabók fyrir krakka með ljósmyndum. Ég var búin að fara hringinn í kringum landið til að taka myndirnar og viða að mér efni. Bókin kom ekki út 2009 vegna þess að útgefandinn treysti sér ekki til þess. Bókin átti að vera í lit og prentuð í útlöndum en prentkostn- aður var allt í einu orðinn tvöfalt hærri en áður. Þannig að útgáfunni var frestað. Svo datt ég inn á þing og þegar því ævintýri lauk þá langaði mig ekki til að gefa út ferðabók þar sem lögð var áhersla á að fara sem víðast um landið. Forlagið tók bolt- ann og þá fæddist hugmynd að Ís- landsbók með teikningum. Næsta skref var að finna teiknara til að vinna með og mig langaði til að fá teiknara sem hefði ekki mikið teiknað landið okkar. Linda Ólafs- dóttur lærði í Bandaríkjunum og vinnur mikið þar líka. Hún hefur þó myndskreytt íslenskar bækur líka og ég veðjaði á, og það var alveg rétt hjá mér, að hún myndi ekki detta í klisjurnar heldur finna sitt Ísland. Hún er mjög frumleg í nálgun sinni og er ekki að teikna eða mála Ísland eins og aðrir hafa gert það. Ég get ekki ímyndað mér að það hefði verið hægt að gera betur en hún gerir í þessari bók.“ Fimmtíu málverk Bókin er sneisafull af fróðleik en hvað ber að varast þegar fróðleikur er borinn á borð fyrir börn? „Aðal- atriðið er að vera ekki leiðinlegur og textinn má ekki vera of langur,“ segir Margrét. „Frásögnin í þessari bók er ekki línuleg og það er hægt að grípa niður í henni hvar sem er. Það er líka mjög auðvelt að detta ofan í mynd- irnar og gleyma sér við að skoða þær. Ég vildi gera bók sem krakkar, sem lesa ekki endilega mikið, opna oft og lesa sér þar til um ólíka hluti og upp- götva dag einn að þeir eru búnir að lesa alla bókina.“ Bókin er öll hin glæsilegasta og Margrét er að vonum ánægð með útkomuna. „Ég er alveg óskaplega ánægð. Það er ekki sjálfgefið að vandað sé svo mjög til hönnunar og prentunar á barnabók. Þarna ákváðu menn að gera þetta almennilega og myndirnar hennar Lindu eru hreint dásamlegar. Hún málaði þær allar í raunstærð þannig að í rauninni liggja þarna fimmtíu málverk að baki.“ Ekki hægt að hætta í pólitík Ekki verður komist hjá því að impra á pólitíkinni en Margrét lenti í þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hún var hins vegar færð niður um tvö sæti vegna reglna flokksins um aldur og kyn. Hún segist ekki reið vegna þessarar niðurstöðu og er hvergi hætti í póli- tík. „Ég held að það sé ekki hægt að hætta í pólitík vegna þess að lífið er pólitík,“ segir hún. „Ég ætla að halda áfram að starfa með Samfylk- ingunni. Mér líður mjög vel í þessum hópi en það eru dálítið asnalegar Íslandsbók fyrir börn n Margrét Tryggvadóttir sendir frá sér bók n 50 opnur um einkenni Íslands n linda ólafsdóttir myndskreytir Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Ég vildi gera bók sem krakkar, sem lesa ekki endilega mikið, opna oft og lesa sér þar til um ólíka hluti og upp- götva dag einn að þeir eru búnir að lesa alla bókina. Margrét Tryggvadóttir „Aðalatriðið er að vera ekki leiðinlegur og textinn má ekki vera of langur.“ Mynd SigTryggur Ari Rapp, vinnustofur og fjör Barnabókmenntahátíðin Úti í mýri í Norræna húsinu b arnabókmenntahátíðin Úti í mýri hefst í Norræna hús- inu fimmtudaginn 6. október og stendur til sunnudagsins 9. október. Eliza Reid, forsetafrú og stofnandi Iceland Writers Retreat, setur hátíðina. Sitthvað áhuga- vert verður í boði fyrir barna- og ungmennabókaaðdáendur á öll- um aldri: vinnustofur, málþing, upplestrar og fjör. Kynnt verður og prófuð appskáldsaga sem tengir norræna goðafræði og loftslags- breytingar. Þekktir gestir koma til landsins til að taka þátt í hátíðinni. Danski rit- höfundurinn Kenneth Bøgh And- ersen er meðal annars frægur af bókum sínum um Antboy. Ann- ar velþekktur gestur er breski lista- maðurinn Anthony Browne sem er hálfgerð goðsögn í heimi mynda- bóka. Martin Widmark frá Svíþjóð er sömuleiðis stjarna í heimi barna- bókmennta en sögur hans um Spæj- arastofu Lalla og Mæju hafa verið þýddar á íslensku. Allir lesa þeir upp eða halda vinnustofur fyrir börn ásamt því að taka þátt í málstofum um barnabókmenntir. Fjölmargir aðrir höfundar taka þátt í hátíðinni, íslenskir og erlend- ir, og lesa upp úr verkum sínum og halda ritsmiðjur og myndasmiðjur fyrir börn. Af íslensku höfundun- um má nefna þau Ragnhildi Hólm- geirsdóttur og Arnar Má Arngríms- son, sem bæði eru tilnefnd til Barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs þetta árið fyrir bækur sínar Koparborgina og Sölvasögu unglings. Arnar Már mun síðan halda sérstaka rapp- og rímnasmiðju fyrir unglinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.