Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Síða 30
Vikublað 4.–6. október 201626 Menning
Fiskur er okkar fag
- Staður með alvöru útsýni
Opið allt árið, virka daga,
um helgar og á hátíðisdögum
Kaffi Duus • Duusgata 10 • 230 Keflavík • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá k l. 10:30 - 23:00 alla daga
Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Í
Listasafni Akureyrar stendur nú
yfir myndlistarsýning Gunnars
Kr. Jónassonar, Formsins vegna.
Myndlistarferill Gunnars spann-
ar þriðjung aldar og hann hefur
víða komið við. Á fjölmörgum sýn-
ingum hefur hann sýnt málverk,
skúlptúra, teikningar og vatnslita-
myndir.
Verkin á sýningunni eru öll unn-
in úr handgerðum vatnslitapappír
sem kemur frá Katalóníu, en að auki
eru þrír litlir skúlptúrar sem unnir
eru úr pappír frá Nepal. „Ég geri
þung og kraftmikil form úr þessum
pappír til að ná slagkrafti og þunga í
verkin, umbreyti pappírnum í stóra
skúlptúra og fæ honum nýtt hlut-
verk, auk þess að mála á hann eins
og hefðbundið er,“ segir Gunnar.
„Einn skúlptúrinn hangir úr loftinu
og svífur þar, annar hangir á vegg,
og sá þriðji hangir á milli tveggja
stoða á vírum sem strekktir eru milli
stoðanna.
Ef þessum formum sem
pappaskúlptúrarnir mynda væri
umbreytt og þau gerð úr steypu
eða stáli eða öðru efni yrðu þessi
verk nokkur tonn að þyngd, en
sem pappaskúlptúrar getur maður
lyft þeim á tveimur fingrum. Þar
myndast togstreitan milli efnisins
og formsins. Galdurinn er að kalla
fram tilfinningu fyrir þungu og
sterku verki með léttasta efni sem
hægt er að nota og því geri ég verkin
úr vatnslitapappír.
Það eru mörg sjónarhorn á
hverju verki og tilfinning áhorfand-
ans er því breytileg. Út frá ákveðnu
sjónarhorni virðist verkið fislétt
meðan annað sjónarhorn sýnir það
sem þungt og með mikinn slagkraft.
Auk skúlptúranna nota ég stórar
arkir 104 x 150 sentimetra og mála
form á þær, ýmist á eina örk eða bý
til samloku úr tveimur örkum og
þá er ytri örkin skorin til og haft bil
á milli arkanna, og milli veggjar og
arkar, þannig að birtan og skugga-
spilið eiga þátt í að móta verkið. Til
viðbótar við þetta er ég með nokkurs
konar undirspil í myndaseríum sem
eru úr vatnslitapappír 20 x 20 senti-
metrar.
Auk þessara nýju verka sýni ég,
í gömlum kæliklefa sem tengdur er
einum af þremur sölum safnsins,
teikniseríuna „Teikningar frá Mý-
vatnssveit“ sem ég byrjaði að gera
fyrir einum tíu árum.“
Prósaljóð í sýningarskrá
Spurður hvernig hann hugsi verkin á
sýningunni segir Gunnar: „Ég hugsa
þau svolítið eins og sinfóníuhljóm-
sveit. Litlu myndirnar og stóru eru
ígildi mjúku hljóðfæranna, fiðlu,
víólu og annarra mýkri hljóðfæra
sem alltaf eru fremst á sviðinu, en
skúlptúrarnir eru síðan ígildi slag-
verkshljóðfæranna sem eru alltaf
aftast á sviðinu og þaðan kemur
krafturinn, hjartsláttur verksins.“
Í sýningarskránni er að finna
prósaljóð um verkin eftir Aðalstein
Svan Sigfússon. „Ljóð Aðalsteins
virka svolítið eins og punkturinn yfir
i-ið. Það er gaman að fá hans ljóð-
rænu túlkun á verkunum og fyrir
vikið verður sýningarskráin eigin-
lega ljóðakver í bland við kynningu
á mínum verkum,“ segir Gunnar. n
Umbreytir
pappír í
skúlptúra
n Gunnar Kr. Jónasson sýnir í
Listasafni Akureyrar n Hugsar
verkin sem sinfóníuhljómsveit
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
„Út frá ákveðnu
sjónarhorni virðist
verkið fislétt meðan
annað sjónarhorn sýnir
það sem þungt og með
mikinn slagkraft.
Verk á sýningunni „Það eru mörg
sjónarhorn á hverju verki og tilfinning
áhorfandans er því breytileg.“
Gunnar Kr.
Jónasson
„Ég geri þung
og kraftmikil
form úr þessum
pappír til að ná
slagkrafti.“