Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.2016, Side 32
Vikublað 4.–6. október 201628 Menning S ögusvið verksins Horft frá brúnni, sem frumsýnt var á stóra sviði Þjóðleikhússins síðastliðið föstudagskvöld, er dimmt og fábrotið íbúða- hverfi í grennd við Brooklyn-brúna á sjötta áratug síðustu aldar. Ítölsku hjónin Eddie og Beatrice hafa alið upp systurdóttur Beatrice, Katrínu, sem nú er að stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðinum. Þau hjónin hafa einnig boðist til að hýsa frændur Be- atrice, bræðurna Marco og Rodolfo, sem komnir eru ólöglega inn í landið. Bræðurnir eru ólíkir. Marco á eiginkonu og þrjú börn heima á Ítalíu og hann sendir þeim sam- viskusamlega stærsta hluta launa sinna. Yngri bróðirinn, Rodolfo, eyðir hins vegar öllu í tísku, tónlist og skemmtanir. Eddie til mikillar skapraunar fella þau Katrín og Rod- olfo hugi saman. Hann grunar að Rodolfo sé samkynhneigður og sé einungis að gera hosur sínar grænar fyrir Katrínu til þess að fá landvistar- leyfi með hjónabandi. Þetta þolir Eddie ekki, hann leitar til ítalska lögfræðingsins, hr. Alfieri, sem segir lögin ekki geta hjálpað honum í þessu máli. Hann ráðleggur Eddie að sleppa hendinni af Katrínu og leyfa henni að taka ábyrgð á eigin lífi. Þessu unir Eddie ekki. Þegar hann kemst svo að því að Rodolfo hefur sofið hjá Katrínu snýr hann sér til útlendingaeftirlits- ins og segir til þeirra bræðra. Hann geldur fyrir svik sín. Misjöfn frammistaða leikaranna Hilmir Snær fer með hlutverk Eddie. Að þessu sinni er freistast til þess að skafa svolítið sjarmann af Hilmi Snæ og það virkar ágætlega. Áhrif bumbunnar á hreyfigetu leikarans voru þó kannski svolítið of mikil, Hilmir er að nálgast fimmtugt og mátti alveg hreyfa sig eðlilega þrátt fyrir púðann á maganum. En hann heldur sýningunni uppi og gerir það vel að vanda. Harpa Arnardóttir leikur eigin- konuna, Beatrice. Eftir svolítið veika byrjun í upphafi verksins náði hún sér á strik og sýndi alveg fantagóðan og í raun óaðfinnanlegan leik. Með hlutverki Katrínar fer Lára Jóhanna Jónsdóttir. Nær alla sýn- inguna notaði hún einhvers konar tilbúna flauelsrödd. Þetta er væntan- lega leikstjórnarlegt atriði, líklega til þess ætlað að skapa „femme fatale“ áhrif en það misheppnaðist alveg. Rödd hennar var flöt, tilgerðarleg og þar af leiðandi kynþokkalaus. Það var ekki fyrr en í dramatískum enda verksins að hennar rétta rödd kom fram og túlkunin náði flugi. Stefán Hallur Stefánsson fer mjög vel með hlutverk eldri bróð- urins, Marco, en ég var ekki alveg eins hrifin af Snorra Engilbertssyni í hlutverki Rodolfo. Tengsl hans við bæði Marco og Katrínu voru aldrei nógu trúverðug, ekki síst þar sem þau hætta bæði framtíð sinni fyrir hann í lok verksins. Arnar Jónsson lék lögfræðinginn, hr. Alfieri. Þetta er ögrandi hlutverk sögumannsins sem horfir frá brúnni á milli heima og tíma. Hann veit í upphafi að búið er að skrifa síðasta kafla verksins. Arnar greip til gam- alla takta í byrjun sýningarinnar. Í stað þess að tala beint við áhorfend- ur og trúa þeim fyrir sögunni, fór allt hans kapp í kunnuglegan radd- beitingarrússíbana. Þar var til skipt- is hvíslað og mælt af yfirgengilegri raust, gjarnan allt í sömu setningu líkt og bilað hljóðkerfi. Ég býst við að annar hver leikari geti leikið þetta eftir en það er vandasamara að vera einlægur og trúverðugur. Það tókst Arnari hins vegar ágætlega í lok leik- ritsins þar sem hann átti mun betri sprett og tengdist verkinu betur. Firnamikið myrkur Það eru sterk „film noir“ áhrif í þessari uppfærslu. Hvít birta úr þröngum ljóskösturum sker myrkrið sem umlykur sviðið allan tímann og lýsir upp þær hliðar sem persónurnar kjósa að sýna. Þetta er áhugaverð tilraun og vel unn- in en gagnast þó sýningunni ekki vel. Að mínum dómi var myrkr- ið einfaldlega of fyrirferðarmikið á þessu stóra sviði, leikararnir duttu niður í notalegan hraða og óþarfa værð færðist yfir áhorfendur. Þegar ókunnugur sessunautur minn var búinn að leyfa sér tvo stóra geispa átti ég fullt í fangi með að fara ekki að dæmi hans. Mikil hugsun hefur verið sett í leiksviðið sem snýst í ótal hringi og sýnir stöðugt nýjar myndir þrátt fyrir myrkrið á sviðinu. Slagsmálaatriðin voru vel unnin og nýttu hringsviðið með eftirminnilegum hætti. Enginn leikstjórnarsigur Mér þykir Stefan Metz ekki hafa sýnt slíka leikstjórnarlega yfirburði að sækja þurfi hann ítrekað hingað til lands. Ég er handviss um að það séu til fleiri erlendir leikstjórar sem feng- ur gæti verið af að fá til landsins. En þetta er eitt af bestu leikhúshand- ritum síðustu aldar og þeir frábæru leikarar sem manna þessa sýningu munu örugglega skína skærar í hlut- verkum sínum eftir því sem sýning- um fjölgar. n Skráðu þig í Bed&Breakfast klúbbinn okkar og fáðu betri kjör s: 426 5000 — booking@bbkefairport.is — bbkeflavik.com Ertu á leið í flug? Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Súrdeigsbrauðin okkar eru alvöru u Heilkorna u 100% spelt u Sykurlaus u Gerlaus u Olíulaus Að sleppa takinu „Leikararnir duttu niður í notalegan hraða og óþarfa værð færðist yfir áhorfendur. Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús Horft frá brúnni Höfundur: Arthur Miller Leikstjóri: Stefan Metz Þýðing: Sigurður Pálsson Leikarar: Hilmir Snær Guðnason, Harpa Arnardóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Arnar Jónsson, Snorri Engilbertsson, Stefán Hallur Stefánsson, Baltasar Breki Samper, Hall- grímur Ólafsson og Baldur Trausti Hreinsson Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Sýnt í Þjóðleikhúsinu Horft frá brúnni „Það eru sterk „film noir“ áhrif í þessari uppfærslu.“ Mynd Hörður SvEinSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.