Fréttablaðið - 26.06.2017, Blaðsíða 11
Ég heyrði um daginn skemmtilegt spjall sem Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarmaður og ferðafrömuður hélt þar sem kom fram ýmislegt
um áhrif erlendra ferðamanna á
íslenska menningu, jákvæð og nei-
kvæð. Meðal þess sem Ósk nefndi
var að túrismi er hér mun eldri en
við gerum okkur alltaf grein fyrir.
Raunar man ég eftir umkvörtun
hjá William Morris árið 1871 yfir
alltof miklum túrisma við Geysi,
sem sé orðinn eins og trúður, sífellt
að sprella fyrir áhorfendur. En sem
sé: Ósk sagði frá því að í byrjun 20.
aldar hafi Sigfús Eymundsson tekið
landslags-ljósmyndir og sett á kort
til að selja túristum; nokkurs konar
lundamyndir þess tíma. Sömu
mótíf og eru á þessum kortum
rötuðu svo á málverk eftir Þórarin
B. Þorláksson og aðra íslenska
málara. Íslenska landslags- og
sófamálverkið á sér þannig vissar
rætur í túristakortum; enda ljós-
myndin á undan málverkinu hér á
landi; vitna um hugmynd íslenskra
manna um það sem útlendingum
kynni að þykja fallegt.
Túristaskran þjóðanna
Og kannski voru það útlendingar
sem sögðu Íslendingum að hér
væri fallegt – áður var allsráðandi
auga sauðfjárbóndans, og er
raunar enn hjá mörgum, sem fyrst
og fremst hugsa um stundlega
hámarksnýtingu, og telja túrista í
tonnum en ekki einstaklingum. Og
nú á seinni árum hafa útlendingar
kennt okkur að meta lundann,
þennan kátlega og fallega fugl, sem
Íslendingar hlógu að þar til hann
bjargaði efnahag þjóðarinnar.
Það er gaman að skoða túrista-
skran því að þar kjarnast hugmynd
viðkomandi þjóða um sjálfar sig.
Það er í kitschinu sem hún birtist
okkur tær og óspjölluð af listrænni
viðleitni. Kitsch: mig minnir að
einhver hafi reynt að þýða þetta
þýska alþjóðaorð um ósmekk-
legan listvarning og óvottaðan af
þartilbærum listfræðingum með
íslenska orðinu „stílglundur“ –
kannski mætti líka kalla þetta
„sætmullulist“ – en hvorugt nær
alveg sömu áhrifum og hinn þýski
blísturshljóðaklasi.
Þetta er sparimynd viðkomandi
þjóðar af sér: Við erum fögur og
rómantísk hafmeyja á steini, segja
Danir (sem þeir eru að vísu ekki)
en Bandaríkjamenn bjóða upp á
frelsisstyttuna enda telja þeir að
frelsið eigi heimili sitt og varnar-
þing þar vestra; Frakkar eru með
Eiffelturninn – elegant hönnun –
en þegar kemur til Vínarborgar er
það hausinn á Mozart sem táknar
menningarlega sjálfsmynd borgar-
búa. Tréklossar og myllur í Hol-
landi; nautið spænska, senjórítan
í flamenco-sveigju og gítarinn en
Big Ben í Englandi og þannig mætti
ganga á röðina meðal þróaðra túr-
istaþjóða. Yfirleitt snýst þetta dót
um manninn, mennskuna, menn-
inguna, mannvirkin, mannvitið.
Allt þetta dót vitnar um fínlegt
handbragð, fágaða og þaulræktaða
sjálfsmynd, og skilaboðin: hér er
„öruggur staður að vera á.“
Íslenskt kitsch
Íslenska kitschið er öðruvísi. Það
er ekki bara ljótt heldur forljótt.
Þar er beinlínis unnið með ljót-
leikann. Þar er gert út á hið hráa
og hrjúfa, hið klunnalega og klúra,
hið hálfkaraða. Íslenska kitschið er
meðvitað klastur. Það er gróður-
laust, það er auðn, það er storknað
hraundrýli, mótað af hendingunni.
Við sjáum þennan nakta ljótleika
alveg frá því að við komum til
landsins, og á leiðinni frá Leifsstöð
blasa við okkur einhvers konar
steinvörðu-skúlptúrar, sem líkjast
þó alls ekki vörðum heldur virka
meira eins og þrekkur sem tröll
hafa skilið eftir sig hér og þar á leið
sinni.
Tröllin. Þau eru alls staðar, í
öllum hillum skælandi sig framan
í lunda og innan um brennivíns-
staup, Þórslíkneski og víkinga
hristandi skálmir – og kindurnar
auðvitað.
Ég fór að hugsa um þetta um
daginn þegar ég átti leið í gegnum
Akureyri og kom við í göngu-
götunni, þar sem myndir af þeim
Grýlu og Leppalúða eru í fullri
stærð og biðröð af heilluðum
túristum að láta taka af sér myndir
með þeim – sambærilegar fígúrur
eru á Laugaveginum í Reykjavík,
muni ég rétt. Átrúnaður á tröll
hefur sennilega fylgt lands-
mönnum frá elstu tíð og vitnar um
forna trú hér á stokka og steina
sem náði að blandast kristinni
trú og lifa með – og í – henni á
einhvern hátt. Þetta endurspeglast
til dæmis í sögunni af því þegar
Guðmundur biskup Arason var að
vígja í Drangey og loppan kom út
úr bjarginu og rödd rumdi: „Vígðu
ekki meira Gvendur biskup, ein-
hvers staðar verða vondir að vera.“
Nú eru tröllin í miðjum göngu-
götum og í hillum verslana.
Hvaða sögu erum við að
segja útlendingum með þessum
tröllum? Þau tákna eitthvað í
íslenskum hugarheimi, ekki bara
hulið líf í náttúrunni heldur líka öfl
innra með okkur, sem sálfræðingar
fóru seinna að kenna við frum-
hvatir. Tröllin eru öll á hvatastig-
inu – kynóð og sísvöng, gráðug og
grunnhyggin; ótaldar tröllasögur
sem ganga út á skessur sem hrifsa
til sín sauðamenn, hafa af þeim
gagn og gæði, sjóða þá svo og éta.
Grýla og Leppalúði: eru þau
sjálfsmynd þjóðarinnar?
Audi Q7 e-tron quattro er umhverfismildur
tengiltvinnbíll semsameinar krafta
rafmagnsmótors og dísilvélar.
Mættu nýrri árstíð með grænni samvisku
og allt að 56 km drægni á rafmagni.*
Verð frá 10.290.000 kr.
Audi Q7 e-tron quattro
*S
kv
. N
ED
C
s
ta
ðl
in
u
m
.
Það er gaman að skoða
túristaskran því að þar
kjarnast hugmynd viðkom-
andi þjóða um sjálfar sig.
Trunt trunt og tröllin í hillunum
Í dag
Guðmundur
Andri Thorsson
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 6 . j ú n Í 2 0 1 7
2
6
-0
6
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
D
-7
4
3
0
1
D
2
D
-7
2
F
4
1
D
2
D
-7
1
B
8
1
D
2
D
-7
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K