Fréttablaðið - 26.06.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.06.2017, Blaðsíða 12
L-Mesitran Náttúruleg sáragræðsla með hunangi - Fæst í apótekum - Hunangsplástur og sárakrem með hunangi. Hentar á allar tegundir sára. Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár. Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur. www.wh.is Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða? Iðnaðarmann Bílstjóra Bifvélavirkja Þjónustufólk Öryggisvörð Lagerstarfsmann Matreiðslumann Fjölnir - Valur 1-1 1-0 Birnir Snær Ingason (16.), 1-1 Sigurður Egill Lárusson (83., víti). KA - KR 1-3 0-1 Tobias Thomsen (2.), 0-2 Kenni Chopart (16.), 1-2 Elfar Árni Aðalsteinsson (54., víti), 1-3 Óskar Örn Hauksson (60.), 2-3 Elfar Árni Aðalsteinsson (85.). Stjarnan - ÍA 2-2 1-0 Guðjón Baldvinsson (22.), 1-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson (43.), 2-1 Hilmar Árni Halldórsson (49.), 2-2 Arnar Már Guðjóns- son (84.). ÍBV - FH 0-1 0-1 Steven Lennon (65.). Pepsi-deild karla Nýjast Staðan FÉLAG L U J T MÖRK S Valur 9 6 2 1 15-8 20 Grindavík 8 5 2 1 14-10 17 Stjarnan 9 4 2 3 19-14 14 FH 9 3 5 1 17-12 14 KA 9 3 3 3 16-12 12 Víkingur R. 8 3 2 3 13-13 11 KR 9 3 2 4 13-15 11 Breiðablik 8 3 1 4 12-15 10 ÍBV 9 3 1 5 10-16 10 Fjölnir 9 2 3 4 8-13 9 ÍA 9 2 2 5 18-20 8 Víkingur Ó. 8 2 1 5 9-16 7 Keflavík - Þór 1-0 1-0 Jeppe Hansen (57.). Leiknir F. - Þróttur 3-2 0-1 Viktor Jónsson (3.), 1-1 Kristófer Páll Viðarsson (5.), 2-1 Kristinn Justiniano Snjólfsson (6.), 2-2 Viktor Jónsson (30.), 3-2 Kristinn Justiniano Snjólfsson (45.) Inkasso-deildin Staðan FÉLAG L U J T MÖRK S Fylkir 8 6 1 1 16-6 19 Þróttur R. 8 5 1 2 16-10 16 Keflavík 8 4 3 1 14-7 15 Fram 8 4 2 2 12-12 14 Selfoss 8 4 1 3 10-8 13 Leiknir R. 8 2 4 2 12-11 10 Haukar 8 2 4 2 9-11 10 HK 8 3 0 5 10-12 9 Þór 8 3 0 5 11-14 9 ÍR 8 2 1 5 8-13 7 Leiknir F. 8 2 1 5 10-17 7 Grótta 8 1 2 5 6-13 5 Í dag Sportrásirnar 19.45 Breiðablik - Grindavík Sport 22.00 Pepsi-mörkin Sport 23.25 Síðustu 20 Sport Pepsi-deild karla 19.15 Víkingur R. - Víkingur Ó. 20.00 Breiðablik - Grindavík Ísland féll Í þriðju deild Íslenska landsliðið í frjálsíþróttum hafnaði í ellefta sæti af tólf þjóðum í 2. deild evrópumóts landsliða en keppt var í Tel avív í Ísrael. Ísland fékk 181,5 stig og var nokkuð langt frá að bjarga sæti sínu því serbar voru með 238,5 stig í tíunda sæti. Ísland og Moldavía falla og keppa í þriðju deild að ári sem er fjórða sterkasta deildin. aníta Hinriks- dóttir vann 800 metra hlaupið á laugardaginn en Ásdís Hjálms- dóttir varð önnur í spjótkasti með kast upp á 60,67 metra. sara Kolak frá Króatíu kastaði 61,06 metra. Hætt verður að keppa á hverju ári í evrópumóti landsliða en næsta keppni fer fram árið 2019. þar mun Ísland taka þátt í þriðju deildinni. 2 6 . j ú n í 2 0 1 7 M Á n U D A G U R12 S p o R t ∙ F R É t t A B L A ð i ð Sport Rangur maður fékk rautt í Álfukeppninni Vandræðalegt Myndbandsdómarar hafa fengið nokkuð slæma útreið í Álfukeppninni í fótbolta og ekki hjálpaði til í gær þegar kólumbíski dómar- inn Wilmar Roldan rak rangan mann af velli úr liði Kamerún. Það leystist allt á endanum en senan var ansi vandræðaleg. FRÉTTABLAðIð/AFP GoLF Ólafía þórunn Kristinsdóttir heldur áfram að brjóta blað í golf- sögu Íslendinga en í gær var til- kynnt að hún fékk boð um að spila á KPMG lPGa-meistaramótinu í Chicago um næstu helgi en það er eitt af fimm risamótunum í kvenna- golfinu. Hún tekur því fyrst allra Íslendinga þátt í risamóti í golfi. þetta er næststærsta og næstelsta risamótið í kvennagolfinu en bara opna bandaríska meistaramótið þykir stærra. þarna skipta kylfingar með sér 3,5 milljónum dollara í verðlaunafé en sigurvegarinn fær 525.000 dollara. Ólafía mætir væntanlega full sjálfstrausts til leiks eftir mjög góða spilamennsku á Walmart-mótinu á lPGa-mótaröðinni um helgina. Hún lauk leik þar í gær á fjórum höggum undir pari og náði sínum næstbesta árangri í mótaröðinni. ekki slæmt veganesti það. Fleiri stig í boði „þetta er náttúrlega afrek. Hún er að brjóta blað. það hefur enginn gert þetta áður. það er stórkostlegt í sjálfu sér,“ segir ragnhildur sigurðardóttir, fjór- faldur Íslandsmeistari í höggleik og einn besti kvenkylfingur Íslandssög- unnar um árangur Ólafíu við íþróttadeild 365 en báðar eru úr Golfklúbbi reykjavíkur. „þetta er annað stærsta mótið ef við horfum til peninganna sem eru í boði. það er um helmingi meira af fjármunum í verðlaunafé í þessu móti heldur en þessum hefð- bundnu. þetta er bara æðislegt. Hún er komin þangað sem hana hefur alltaf dreymt um að vera.“ Mótið er stórt og gefur ekki bara meiri pening heldur líka fleiri stig sem skiptir máli. „það eru ekki bara meiri fjár- munir í boði á svona risamóti heldur líka fleiri stig sem þýðir að Ólafía þarf ekki að standa sig jafnvel til að fá fleiri stig. það er mjög mikil- vægt. Hún er í 134. sæti á stigalista mótaraðarinnar og vafalítið á hún eftir að hoppa upp listann,“ segir ragnhildur en Ólafía þarf að klifra ofar á stigalistanum til að halda lPGa-kortinu sínu. KPMG-mótið hjálpar þar til. Margt sem spilar inn í Ólafía missti af nokkrum nið- urskurðum eftir góða byrjun á mótaröðinni en ragnhildur segir það geta komið fyrir alla. „þetta er miklu meira en bara tölur á blaði. það er svo margt sem hefur áhrif á okkur þegar er komið á svona stór mót. Hún hefur líka verið í meiðslum og var með taugaklemmu í öxl sem er að lagast. ég talaði við pabba hennar og hún fann ekkert fyrir því núna. Hún er á réttri leið,“ segir ragnhildur sigurðardóttir. tomas@365.is Meira fé og fleiri stig í boði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir keppir fyrst allra ís- lenskra kylfinga á risamóti um næstu helgi. Hún fékk fínt veganesti í Arkansas um helgina. 2 6 -0 6 -2 0 1 7 0 5 :0 7 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 2 D -7 9 2 0 1 D 2 D -7 7 E 4 1 D 2 D -7 6 A 8 1 D 2 D -7 5 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 5 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.