Fréttablaðið - 26.06.2017, Blaðsíða 29
PALLA-
LEIKUR
BYKO
Vertu með!
1. ÞÚ KAUPIR GAGNVARIÐ PALLAEFNI
FYRIR 50.000 KR. EÐA MEIRA
Á TÍMABILINU 1. MAÍ - 17. ÁGÚST 2017.
2. ÞÚ SKRÁIR NÓTUNÚMER OG AÐRAR
NAUÐSYNLEGAR UPPLÝSINGAR Á
www.byko.is/pallaleikur
3. ÞÚ ERT KOMINN Í POTTINN OG
GÆTIR UNNIÐ VEGLEGA VINNINGA!
Vinningshafar eru kynntir á Facebooksíðu BYKO
á hverjum föstudegi frá 14. júlí. FJÖLDI FRÁBÆRRA VINNINGA
AUÐVELT AÐ VERSLA Á BYKO.IS
SENDUM ÚT UM ALLT LAND
55 ára1962-2017
RAFHLÖÐUBORVÉL/
HERSLUVÉL 10,8V,
2x2,0Ah. TL-BOX taska fylgir.
24.995kr.
74874066
Almennt verð: 39.995kr.
BÚTSÖG PCM 8 1200W.
22.395kr.
74862008
Almennt verð: 27.995kr.
TILBOÐSVERÐ
ÞÚ SPARAR
5.600kr.
+
TILBOÐSVERÐ
ÞÚ SPARAR
15.000kr.
TILBOÐ TIL 28.JÚNÍ
Golf Ný nöfn voru rituð á Íslands-
meistarabikarana í holukeppni
í gærkvöldi þegar tveir ungir
kylfingar báru sigur úr býtum á
Íslandsmótinu sem haldið var í
Vestmannaeyjum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK,
fagnaði sigri í kvennaflokki eftir
sigur á Helgu Kristínu Einarsdóttur,
GK, og Egill Ragnar Gunnarsson,
GKG, lagði Alfreð Brynjar Kristins-
son í úrslitum í karlaflokki.
Egill var að klára sitt fyrsta ár í
háskólagolfinu í Bandaríkjunum og
kemur heim með látum en Guðrún
Brá var að ljúka háskólanámi og er
komin heim eftir þrjú og hálft ár í
háskólagolfinu.
Loksins, loksins.
Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára
gömul hefur Guðrún Brá verið
einn besti kylfingur landsins um
nokkurra ára skeið. Hún var algjör
barnastjarna og hefur oft verið í bar-
áttunni um stóru titlana en aldrei
hafði henni tekist að verða Íslands-
meistari í höggleik eða holukeppni
fyrr en í gær.
„Það hlaut að koma að þessu,“
sagði Guðrún Brá hress og kát þegar
Fréttablaðið náði tali af henni í gær
þar sem hún snæddi sigurmáltíð í
Vestmannaeyjum.
„Nú er ég loksins búin að opna
hliðið og þá fara stóru titlarnir von-
andi að detta inn,“ bætir hún við.
Guðrún Brá var mjög ánægð með
spilamennsku sína og hún passaði
sig á því að hugsa ekki neitt um þau
skipti sem hún hefur látið þá stóru
renna sér úr greipum.
„Ég var rosalega ákveðin í að það
myndi ekki koma upp í hausinn á
mér og það tókst. Ég var líka að gera
fá mistök og spila stöðugt golf. Þetta
var spennandi og góður leikur en ég
hélt alltaf að minnsta kosti einnar
holu forskoti og náði að vinna sem
var æðislegt,“ sagði hún en er þá
ekki stefnan á að taka höggleikinn
líka? „Jú, fyrst ég er byrjuð er ekkert
annað í stöðunni.“
Guðrún Brá er komin heim úr
háskólanámi en ætlar sér í Q-School
í haust. Hún ber háskólaverunni
góða sögu.
„Þetta er búin að vera alveg geð-
veik reynsla. Maður finnur alveg
hvernig maður verður betri í öllu
og hvað þetta hjálpar manni mikið.
Það er svo mikill munur að geta
spilað við bestu aðstæður allt árið
um kring,“ sagði Guðrún Brá Björg-
vinsdóttir.
Tveir titlar á einni viku
Hinn tvítugi Egill Ragnar hefur átt
góða tíma á golfvellinum síðustu daga
því viku áður en hann fagnaði sigri í
holukeppni fullorðinna vann hann
holukeppni pilta 19-21 árs. Tveir
Íslandsmeistaratitlar á sjö dögum.
„Það er ekki slæmt,“ sagði Egill
eftir sigurinn í gær en hann kvaðst
ekkert stressaður þrátt fyrir að vera
Ísinn loksins brotinn hjá Guðrúnu Brá
Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefu verið einn besti kylfingur landsins um árabil en þar til í gær hafði henni aldrei tekist að vinna annan
af tveimur stóru titlunum. Hún varð Íslandsmeistari í holukeppni í gær líkt og Egill Ragnar Gunnarsson sem vann í karlaflokki.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Egill Ragnar Gunnarsson með bikarana í gær. Mynd/GoLfsaMBand ÍsLands
í forystunni gegn Alfreð Brynjari
sem er, fyrir þá sem ekki vita, bróðir
Ólafíu Þórunnar.
„Það var ekkert stress eða svo-
leiðis í gangi. Ég tók bara eitt högg
fyrir í einu og reyndi að halda rónni.
Ég er að spila mjög gott golf núna.
Það er allt að smella og þetta lítur
bara vel út hjá mér.“
Egill Ragnar er eins og Guðrún
Brá nýkominn heim úr háskóla en
hann var að klára fyrsta árið sitt hjá
Georgia State.
„Veran úti hefur hjálpað mér
mikið. Maður áttar sig betur á öllu
sem er í gangi og svona og hvernig
á að skipuleggja leikinn sinn. Þetta
hjálpar allt saman,“ sagði Egill Ragn-
ar Gunnarsson sem ætlar að spila
Íslandsmótið í höggleik en hann fer
svo aftur út í ágúst. tomas@365.is
S p o r t ∙ f r É t t A B l A ð i ð 13M Á N U D A G U r 2 6 . j ú N í 2 0 1 7
2
6
-0
6
-2
0
1
7
0
5
:0
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
D
-7
9
2
0
1
D
2
D
-7
7
E
4
1
D
2
D
-7
6
A
8
1
D
2
D
-7
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K