Kvennaframboðið - 01.03.1982, Side 16

Kvennaframboðið - 01.03.1982, Side 16
16. StÐA MARS 1982 Hvað finnst Pólitískt andóf Viðtal við Svein Allan Morthens uppeldisfulítrúa Sp.: Á hvaöa hátt finnst þér misrétti kynjanna bitna á karl- mönnum? Sveinn Allan: Þar sem oftast er fjallaö um hina pólitlsku og starfslegu hliö þessa mála, lang- ar mig aöeins aö koma inn á til- finningahliöina 1 flestum fjölskyldum eru „sterkar” karlmannsimyndir. Faöirinn sem „Höfuö” fjölskyld- unnar er fyrst og fremst álitinn skynsemisvera en hefur sjaldnast tækifæri til aö láta tilfinningar sinar I ljós. Orsökin er hið hefð- bundna uppeldi bæöi á heimilum, skólum og öðrum uppeldisappa- rötum. Feöur minnar kynslóöar hafa fariö illa út úr þessu hlut- verki slnu. Enda hefur sú kyn- slóö litiö á þaö sem sitt æösta tak- mark aö safna munum og oftast á kostnaö eölilegs tilfinningallfs. Þeir eiga aö vera sterkir, traustir og dulir, ráöa fram úr fjárhags- legum og praktlskum málum fjöl- skyldu sinnar. Móöirin sinnir til- finningamálum heimilisins og reynir aö miöla milli barna og fööur og fl. Þaö er vissulega tima- bært að þetta breytist og karl- maöurinn fái viöurkennt aö hann sé líka tilfinningavera. Þaö er erfitt fyrir stráka aö alast upp meö þessa karlmennskuimynd á bakinu og aö þurfa aö laga sig aö henni. Þetta veröur mest áber- andi á kynþroskaaldrinum. Þá er þaö „klikan” sem heimtar aö þú sért „töff” og kaldur, en auövitað eiga flestir erfitt meö aö full- nægja þessum óskum umhverfis- ins, en þó hamast maöur viö og auövitaö á kostnaö raunveruleik- ans. Maður er jú karlmaöur og ekkert væl! Þaö er dálltiö fyndið aö flestir strákar reyna á einn eöa annan hátt að standast karl- mannskröfuna aö komast yfir sem flestar stelpur, en hinsvegar hafa flestir ákveönar skoöanir um stelpurnar sem þeir ætla aö búa meö. Þær eru sko öðruvisi en þetta einnar naatur. gagn. Aö þessu leyti eru karlmenn ekki siður kúgaöir sem kynverur en konur. Þaö er rétt hægt að Imynda sér hversu öfugsnúin og erfiö sam- skipti kynjanna veröa viö svona aöstæöur. Sp.: Hvernig jafnrétti ert þú aö hugsa um? Sveinn Ailan: Spurningin um hvers konar jafnrétti kynjanna veröur ekki slitiö frá þeim póli- tlska raunveruleika sem viö lifum l. Auövaldsþjóöfélagiö veldur m. a. þvl aö konur eru á margan hátt I mun verri stööu en karl- menn, einskonar tvöfaldri kúgun, sem vinnuafl og sem konur. Full- komiö jafnrétti kynjanna er krafa sem raunverulega er hægt aö berjast fyrir í dag, en hún er auð- vitað aöeins liöur I aö minnka óréttlætiö sem rlkiö I þjóöfélagi okkar I dag. Þessa kröfu állt ég ekki hægtaö slita úr samhengi viö hina almennu stéttar- og jafnrétt- isbaráttu sem veröur aö heyja á öllum vlgstöövum þjóöfélagsins. Þórður Gunnar Valdimarsson: MISRÉTTI! Þegar hringt var I mig og ég beöinn aö svara nokkrum spurn- ingum um misrétti kynjanna, gerði ég mér enga grein fyrir aö hverju ég gengi meö já-svari minu. Eftir aö hafa skrifaö spurn- ingarnar niöur á blaö, lesiö þær hægt og vandlega og reynt aö kalla fram stutt, greinargóð og fyrirfram mótuö svöríhuga mér, varö mér vandamáliö ljóst: Ég haföi engin svör á reiðum hönd- um. Málið væri bæöi of stórt og snúiö, til að hægt væri aö svara spurningunum af einhverju viti I stuttu máli. Ég hef aldrei hugsaö þessi mál I heild sinni skipulega til enda. Hvernig bitnar misrétti kynj- anna á mér sem karlmanni? Hvernig kem ég oröum aö þvi? Verö ég ekki aö velta jafnréttis- málunum almennt fyrir mér um leiö? Hugmynd min um jafnrétti er í sjálfu sér sáraeinföld. Inntak hennar er almenn krafa og sam- staöa um að skilyrði séu sköpuö og almenn viröing borin fyrir sjálfsforræði hvers og eins. Aö sérhver geti, eigi og fái aö ráöa málum slnum sjálfur. Nú eru sjálfsagt til einhverjir sem geta ekki sætt sig víð slika skilgrein- ingu, þar sem slikt boöi aöeins upplausn, eigingirni, skort á félagslegri samstöðu og taum- haldi. Þaö þarf aö hafa einhverja stjórn, eitthvert skipulag á hlut- unum, hafa vit fyrir sumu fólki, koma á og hafa reglu á samllfi fólks. Nú ætla ég ekki aö neita nauðsyn þess aö einhver regla sé á hlutunum. En þaö er ekki sama hvernig henni er komið á. Og hún getur þjónaö margvislegum tilgangi. Til aö gera flókiö mál einfalt, skulum viö ganga út frá þvi aö til grundvallar sameiningu fólks I félagsheildir liggi einhver nauðsyn, einhver hagsbót, en um leiö aö sllk sameining feli I sér togstreitur og mótsetningar. Ef stefnt er aö auknu jafnrétti, þá felur þaö í sér aö minu mati, að stefnt er aö sjálfviljugri hlutdeild hvers og eins í samfélagslegu samstarfium aö skapa sameigin- Þóröur Gunnar Valdimarsson lega almenn skilyröi þess aö hver og einn geti ráðið sinum málum sjálfur með þvi aö eiga þátt I að ráöa sameiginlegum málum. En aftur aö spurningunum: Grefur maöur undan þróun i jafn- réttisátt meö þvl aö rembast viö að vera karlmaöur? Ákvaröast „karlmennskan” fyrst og fremst af afstæöi kynjanna? Byggir karlimyndin aöailega á sjálfsaö- greiningu karla frá konum? Nær krafan um jafnrétti fram að ganga meö breyttum samskipt- um kynjanna? Það er alltaf erfitt aö fást viö atriði eitt og sér sem i reynd tilheyrir stærri heild. Kynjamisréttierauövitaö hluti af stærri og flóknari vef samfélags misréttis og misskiptingar auðs, valds og möguleika. Þó á sérstök kvennabarátta fullkcmlega rétt á sér, þvi þessi mál leysast ekki þó visaö sé í nauösyn stéttabaráttu. Þetta gildir iika fyrir hvern og einn. Þó ég sé persónulega hlynntur slíkum almennum jafn- réttismarkmiðum, þá á ég i erf- iöleikum meö að koma slikri regiu á samskipti min viö aöra. En ástæöurnar fyrir þvf eru ekki bara „karlkyns”. Sp.: Hvaö leiö vilt þú fara I jafnréttisátt? Sveinn AHan: 1 sósiallsku bar- áttunni hefur sérstööu kvenna veriö ýtt til hliöar, og skilningur forystumanna sósislistanna veriö takmarkaður. Ég lit á kvennaframboöiö sem vænlega leiö, skref fram á viö. í fyrsta lagi held ég aö framboöiö stuöli að þvi aö opna augu fólks fyrir þvi misrétti sem er allt i Sveinn Allan Morthens kringum okkur og þá auðvitaö fyrst og fremst milli kynjanna. Framboöið er pólitlskt andóf gegn stöönuöu kerfi flokkanna og strandaðri hugmyndafræöi — ekki slst gegn Alþýöubandalaginu sem fram aö þessu hefur reynt aö höföa til þess aö flokkurinn hafi jafnréttismál framarlega á bekk, en er um leið meövitaö um aö vilji og barátta fyrir þessu I flokknum er I lágmarki. 1 öðru lagi er kvennaframboöiö leiö til aö þrýsta á og keyra I gegn kröfur um manneskjulegra sam- félag sem hlýtur að vera grunn- forsenda þess aö hægt sé aö ná fullkomnu jafnrétti kynjanna i framtiðinni. Þetta framboö brýtur upp hið hefðbundna flokkakerfi og bar- áttuleiðir, og ætti þvi I leiðinni að opna augu fólks fyrir þvi aö þaö er lika hægt að sameinast I baráttunni fyrir sósialisku þjóð- félagi. Að vera kaldur Viðtal við Helga Gunnlaugsson þjóðfélagsfræðinema — Hvernig bitnar kynjamis- réttiö á þér sem karlmanni? , ,Eg álít aöfullfast sé aö oröi kveöiö aö fullyröa aö karlmaöur- inn sébeittur kynjamisrétti. Mis- réttier lagalegt hugtak sem felur Isér aö einhverjum sé mismunaö m.ö.o. aö einhver sé órétti beitt- ur. Ég tel hæpiö aö fullyröa þaö, aö þvi undanskyldu aö karlmaö- urinn hefur löngum staðiö höllum fæti gagnvart konunni varöandi umráöarétt yfir börnum viö skilnaöhjóna. Grundvöllur þeirra lagaákvæöa er vafalítiö sú mannasetning aö álita þaö nátt- úrulegt hlutverk konunnar að vera ein kölluö til ábyrgöar fyrir forræöi barna viö skilnað. Aö minu mati hefur karlmaöurinn I þessu tilviki veriö beittur aug- ljósu misrétti, en vonandi sér nú fyrir endann á þvi meö nýju barnalögunum. Hins vegar er það einkum tvennt sem ég vil ræöa I þessu samhengi. Fyrra atriöið er áhrif kvennabaráttunnar á stööu karls- ins og hiö siöara snertir mótun kynjanna almennt I samféiaginu. Aukin þátttaka kvenna og kritf- ur um sambærilega þátttöku þeirra i atvinnulifinu til jafns viö karla kallar óhjákvæmilega á nýja verkaskiptingu kynjanna, bæöi i atvinnulifi þar sem vænta má aukinnar samkeppni um störf er tilheyrt hafa karlinum og svo á heimilinu þar sem karlinn hlýtur aö taka á sig sömu ábyrgð og kon- anenheimiliö hefur löngum veriö álitinn einkavettvangur hennar. Spurningin er hvernig kynin bregöast viö þessum breyttu aö- stæöum.hvort þau séu reiðubúin aö takast á viö þær nýju skyldur sem lagðar eru á þau. Þarna er ég kominn að siðari atriðinu sem ég vildi ræöa og að minu mati að kjarna málsins. En hann snýr aö mótun kynjanna i viöustu merk- ingu, á hvern hátt þeim er strax viö fæöingu beint inn á fyrirfram ákveðnar brautir sem eru samfé- lagslega ákvaröaöar eftir kyni. Hegöan gagnvart börnum mark- ast af kyni þeirra og þeim við- horfum sem rikja um hlutverk og eðli kynjanna i samfélaginu. Kynin hljóta m.ö.o. ólikt uppeidi sem miðast aö þvi aö undirbúa þau fyrir skýrt markaðar og ólik- ar brautir sem þeim er ætlað aö ganga i gegnum siöar á iifsleiö- inni. Þjóðfélagsleg staöa karla cg kvenna i dag skýrist aö miklu leyti i þeim óliku væntingum og kröfum sem, þeim er ætlað að uppfylla I lifinu. En i hverju felst helsti munurinn á mótun kynj- anna? Karlmaöurinn á aö vera sterk vera, geta staöið á eigin fótum og umfram allt á hann að vera úr- ræöagóöur, framagjarn og stjómsamur og viðbúinn þvi að eiga i samkeppni viö náungann um þau gæöi sem talin eru eftir- sóknarverð. í einkalifinu á heim- ilinu er hann stjórnandi í öllum meiriháttar málum og fyrirvinna án þess að taka þátt I eiginlegum Helgi Gunnlaugsson heimilisstörfum og uppeldi barna sem talin eru verk eiginkonunn- ar. Ot á viö I atvinnu- og opinberu lffi gildir aö vera kaldur og flíka ekki tilfinningum sinuip og hafa augun opin fyrir þeim möguleik- um sem hvarvetna er hægt að skapa sér. Vissulega falla ekki allir karl- menn undir þessa imynd en hún felur ági aö siöur i sér æskileg markmið sem vert er að stefna aö i einhverjum mæli. Mótun kvenna er hins vegar af allt öörum toga. Konan er hiö veikara kyn, á að vera passiv gagnvart karlmönnum og búa yf- ir tilfinningasemisem getur jaðr- að við duttlungagirni. Hún á heist ekki aö hafa mikinn áhuga á stjórnmálum eða iþróttum vegna þess aö þaö er ekki álitið kven- legt. Sjálfsimynd kvenna er fyrst og fremst bundin fjölskylduh'fi og heimili (hugsar í hring) á meöan sjálfsímynd karla er bundin árangri I starfi (hugsar í beinni II nu). Vist er aö þessar uppeldislegu imyndir veikja stööu konunnar mjög þegar hún vill hasla sér völl iatvinnulifinuá heimaveHi karls- ins þar sem reglur hans rikja og mótunarþættir hans blómstra. Þessar ímyndir eru iðulega réttlættar á grundvelli þess að þetta sé náttúruleg staöa kynj- anna og veröi ekki um breytt, jafnvel þó að dæmi frá öörum samfélögum sýni aö ekki er ein- hlítt hvað ætiast er til af kynjun- um og aö fjöldi manna I okkar r Glefsur FritzKahn haföi eftirfarandi að segja um konur: „Þegar karlmaöur talar, gef- um vfer einungis gaum aö inni- haldi ræðu hans, en fáumst lítið um það.hvernig hann segirþað. Þessuer öfúgtfarið, þegarkona á í hlut. Okkur þykir miklu I skemmtilegra aö hlusta á Lfallega konu blaðra yndislega um hégómlega hluti heldur en samfélagi viljiekki gangast undir þessi gildi. Og það er einmitt mergurinn málsins, æ fleiri konur og karlar hafa lagst gegn þessari mótun og þvi hefðbundna hlut- verki sem þeim er fyrirfram ætl- að að inna af hendi. — Hvernig er það jafnrétti sem N ert að hugsa um? Forsenda þess að fullt jafnrétti Iraun náist erviðurkenning á þvi aö bæöi kynin séu jafn hæf eöa óhæf og I grundvallaratriðum jafn vel I stakk búin til að gegna sömu ábyrgöarskyldum fyrir samfélag sitt. Til aö ná þessu markmiöi veröum viö aö losa okkur við hinar stöðlubu kynja- imyndir sem skipa kynjunum I ólikan bás i samfélaginu. Eigin- leikar sem samkvæmt hefð- bundnum skilningi eru taldir i einkaeign annars kynsins verði álitnir sammannlegir eiginleikar sem öllum sé frjálst aö láta I ljós. Þetta felur i sér aö bæöi kynin geti verið veik og sterk, virk og óvirk og geti látið i ljós „kven- lega” eða „karlmannlega” eigin- leika. Einstaklingum verði búin jöfn skilyrði til að sýna hvað I þeim býr og séu metnir á grundvelli þesshvaö þeir hafa framað færa, burtséð frá þvi hvort um karl eða konu sé að ræða. — Hvaða leiðir eru heppilegast- artil að ná þesssu jafnrétti fram? Ég hef enga sérstaka patent lausn á takteinum sem gerir jafn- stöð.usamfélagið aöveruleika. Ég állt þó að lagasetning um jafn- rétti kynjanna dugi ekki ein sér. Meginmálið er þá eftir, en þaö er að færa líf í annars dauöa b(Sc- stafi. Atferli kynjanna er iært og sá lærdómur felst i lifshlaupinu öllu. Hér er þvium yfirgripsmikið málefni að ræða sem teygir anga sina á alla fleti mannlegs lífs. Þessi málaflokkur má þvi ekki einangrast við tiltekna hreyfingu eða tiltekinn hóp, heldur á að ná til allra hópa sem láta sig sam- skipti fólks einhverju varða. Mál- efni kynjanna megi ekki verða einkaeign einhverrar hreyfingar hvort sem hún er vinstri eða hægri hreyfing. Þaö verður ein- ungis til þess að fæla aðra frá málefninu auk þess sem jafnrétt- ismálin snerta allar manneskjur i öllum hreyfingum sama hvers konar iöju þær stunda. aö hlusta á karlmannlegan kvenmann þylja spekiræður um þýöingarmikilmál. Okkarinnra eðli krefst þess, að konan láti ekki stjómast af karlmannleg- um geöhrifum, að hugðarefni hennar beinist ekki að því að setja met i iþróttum og aflraun- um eða aö vera prófessor, held- ur aö þvi að verða ástmey, sem hægt sé að dást að, og móöir margra barna”. - J

x

Kvennaframboðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennaframboðið
https://timarit.is/publication/1266

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.