Kvennaframboðið - 01.03.1982, Blaðsíða 21
MARS 1982
StÐA 21
Pillan (sem oft er nefnd P-pilI-
an) kom á markaðinn i lok 6. ára-
tugarins og sió í gegn. Allir töluðu
nú um frelsi kvenna til „eðlilegs”
kynlifs, nú ættu þær að geta sofið
hjá hver jum sem er, hvenær sem
er án þess að óttast það að verða
óléttar. Pillan var lykillin að
ótrufluðu og áhyggjulausu kynlífi
kvenna þessa timabils. Smám
saman komu þó vankantarnir i
Ijós. PiIIan var ekki eins hættu-
laus og menn höfðu haldið.
„Sterkar” og ,,léttar”
aukaverkanir
eru þær taldar skaðlausari en
Pillan.
Vissulega eru til konur sem
geta tekið Pilluna timabundið án
þess að það hafi alvarlegar af-
leiðingar í för með sér. Þó er þaö
ákveðinn hópur kvenna sem ætti i
engum tilvikum að taka Pilluna.
Það eru konur með krabbamein,
ungar stúlkur sem ekki hafa enn
haft blæðingar og ekki tekið út
fullan vöxt, konur sem reykja,
feitar konur.þærsem gjarnar eru
á að fá þunglyndisköst eða eru
með of háan blóðþrysting og kon-
ur sem komnar eru yfir fertugt.
Konur ættu að varast að taka
Pilluna i 10ár, bara vegna þess að
hún hefur ekki valdið þeim
óþægindum ennþá.
Krefjumst betri getnað-
arvarna
Við konur höfum fengið frelsi til
að sofa hjá fleiri körlum en ein-
ungis eiginmanninum, auk þess
sem við getum orðiö stjórnaö bet-
ur okkar barneignum. En þetta
frelsi getur verið dýrkeypt fyrir
þá sem tekur Pilluna.
Langtímaáhrif hennar vitum
við ekkert um. Við vitum ekkert
um það hvort kona sem tekiö hef-
ur Pilluna 15 ára eigi von á auka-
verkunum af hennar hálfu þegar
konan kemst á sextugsaldurinn.
Þaö hefði e.t.v. 'att að bíða méð áð
setja Pilluna á markaðinn og
reyna þess I stað að vanda betur
til hennar.
Konur!
Krefjumst betri getnaðarvarna
svo við getum haft stjórn á eigin
barneignum. Látum ekki telja
okkur trú um að daglegar þján-
ingar af völdum Pillunnar séu
léttvægar og orðnar til af imynd-
un einni. Krefjumst heiðarlegra
upplýsinga um áhrif Piilunnar á
likama okkar og sál. Látum ekki
fara með okkur sem tilraunadýr i
þágu læknavisindanna.
Þýtt og endursagt úr
sænska blaðinu ETC.
GLR.
Konur dóu af völdum blóð-
tappa, krabbameins, gulu og lifr
arsjúkdóma sem rekið var beint
til pillunnar. Þar að auki hafði
hún i för með sér aukaverkanir
sem læknar kölluðu gjarnan
„léttar” aukaverkanir. Þær köll-
uðust „léttar” vegna þess að þær
leiddu konur ekki beinttil dauða.
Dæmi um þessar léttu aukaverk-
anir eru stöðugt þunglyndi, mis-
lyndi, minni löngun til kynlífs,
svimaköst, útferö, húðsjúkdóm-
ar, gallsteinssjúkdómar, aukin
tiðni á smitsjúkdómum alls kon-
ar, aukinn hárvöxtur, fdtt hár,
vitamínsskortur, auk þess sem
konur eru gjarnar á að fitna
mjög.
Könnun sem danska kvenfé-
lagasambandið i Arósum lét gera
fyrir skömmu leiddi i jós að 96%
þeirra kvenna sem spurðar voru,
höfðu orðið varar við aukaverk-
anir af völdum Pillunnar og 52%
þeirra varar viö 5 eða fleiri auka-
verkanir samtimis. 52% kvenn-
anna þyngdust, 36% urðu þung-
lyndar, 30% fengu spennt brjóst
og 15% fannstþærverða þreyttari
en vanalega.
Michael Briggs sem er i farar-
broddi hvaö varðar rannsóknir á
Pillunni segir: „Það er öruggt
mál að margar hinna algengu
aukaverkana stafa af breytingum
sem verða á starfsemi heilans.
Það er mjög erfitt að rannsaka
þetta, en það virðist sem Pillan
breyti jafnvæginu á milliadrena-
lins og noradrenalins, sem eru af-
gerandi fyrir efnastarfsemi heil-
ans.”
Þá segir Briggs að unglings-
stelpur sem taka Pilluna eigi á
hættuað östrogenið sem ihenni er
hefti vöxt þeirra. A þessum árum
vaxa útlimir og ákveðinn hluti
andlitsbeinanna mjög hratt.
Stelpur sem byrja snemma að
taka Pilluna eiga á hættu að fá
ákveðið Utlit sem er stuttir hand-
leggir, stuttar fætur og innfallið
andlit.
Pillan hefur slæm áhrif á brjóst
og vefi likamans. Börn mæðra
sem tekið hafa Pilluna lengi eiga
á hættu að fæðast með óþroskað
höfuðleður. Þegar kona tekur
Pilluna, hefur hún ekkert egglos,
Þess i stað getur hún fengið tann-
los. Tárakirtlarnir breyta starf-
seminni svo margar konur geta
ekki notað linsuristað gleraugna.
Þá er algengt að konur fái sjón-
og heyrnartruflanir.
Konur geta orðið ófrlskar á
meðan þær taka Pilluna. Þær sem
taka hanaá fyrstu meðgöngutim-
anum eiga á hættu að barnið
skaðist. Afvöldum Pillunnarhafa
börn fæðst með hjartabilanir og
hormónatruflanir.
Pillan eykur hættuna á brjóst-
krabbameini, einkum hjá ungum
konum og konum sem taka hana
áður en þær eignast sitt fyrsta
barn. lOOsinnum meirilikureru á
að kona sem tekur Pilluna 13-5
ár fái krabbamein i lifrina en
kona sem tekið hefur hana i
skemmri tima. Minipillan svo-
kallaða er að sögn ekkert hættu-
minni en hin venjulega P-pilla
pillan
hættuleg?
auk þess sem hún er gjörn á að
valda utanlegsfóstri.
Talið er að aðeins 20 - 30% af
öllum aukaverkunum komi fram
á opinberum heilbrigðisskýrsl-
um. Konurnar sjálfar eiga ekki
svo auðvelt með að koma á fram-
færi upplýsingum um aukaverk-
anir sem þær verða varar við.
Fyrst verður að tilkynna þær
lækni, sem dæmir um hvort sam-
band sé á milli þeirra og Pillunn-
ar. Stundum sér læknirinn sam-
band og tilkynnir það heilbrigðis-
yfirvöldum.Oftastgerir hannþað
þó ekki, sennilega vegna þess að
hann telur þær ekki vera svo
mjög alvarlegar.
Pillan er búin til fyrir
karlmanninn — ekki
konuna
Oft heyrum við sagt að konur
fái meiri löngun til kynlifs taki
þær Pilluna, þvi þá þurfa þær
ekki að striða við dttann við að
verða óléttar. Þetta er gömul
saga og tilheyrir fortiðinni til,
enda erum við nU i æ rikari mæli
farnar að þekkja afleiðingar Pill-
unnar.
Gerðar hafa verið tilraunir til
að búa til getnaðarvarnarpillu
fyrir karlmenn, en menn hafa
veriö óánægðir með niðurstöð-
urnar. t rúmlega 20 ár hefur ekki
tekist að losna við aukaverkanir
s.s. minni löngun til kynlifs og
rauð augu. Meðan karlmenn
verða „getulausir” af pillunni er
hún ekki sett á markaðinn.
„Getuleysi”er nefnilega mjögal-
varlegt þegar það á sér stað hjá
körlum, en telst til „léttra” auka-
verkana hjá konum. Þetta er
skýrt dæmi um að Pillan er búin
til fýrir kynhvöt karlmanna — en
ekki kvenna. Hefði verið borin
eins mikil virðing fyrir kynhvöt
kvenna og karla, væri Pillan
sennilega ekki á markaðinum i
dag, á samaháttoghUn er ekki til
handa karlmönnum.
Kynlifið hefur ekki breyst svo
gjörla með tilkomu PiUunnar.
Það eina sem breyst hefur er að
nú er þaö oröið erfitt fyrir konur
að vilja ekki sofa hjá hverjum
sem er. Kona hefur öðlast rétt til
að segja já, en misst réttinn til að
segja nei, hvort sem henni llkar
það betur eða verr.
Pillan bönnuð i Japan
í Japan er Pillan ekki leyfð
þar sem hún er þar talin of hættu-
leg heilsu kvenna. Þar er ekki
óalgengt að konur gangist undir 7
-8 fóstureyðingar á ævinni, enda
karlmenn
Loksins hafa áratuga rannsóknir á
getnaðarvörnum fyrir karlmenn,
boriðárangur. Þjóöólfur Meyvantsson
læknir í karlsjúkdómafræði hefur nú
kynnt hér á Islandi lykkju fyrir karl-
menn. Lykkjan er talin 90% örugg ef
lykkjutaki fer í eftirlit reglulega.
Ending er tvö ár, eftir þann tima taka
læknar ekki ábyrgð á öryggi. Léttar
aukaverkanir eru fylgjandi ísetningu
lykkjunnar s.s. smá blæðingar af og til
í 6 mánuði, óþægindi s.s. sviði, kláði og
smá útferðieinnig eymsli í kynfærum
og smá bjúgur til að byrja með. I
aðeins 6% tilfella hefur lykkjan ekki
fundist við eftirskoðun. Undanfarin 2
ár hafa um 200 karlmenn í Svíþjóð
notað lykkjuna og 800 í Bandaríkj-
unum og hefur þótt reynast vel. Aðeins
8% þeirra er tóku þátt í tilraunum
hafa fengið alvarlegar aukaverkanrr
og sá hópur verður því áfram að nota
aðrar getnaðarvarnir.