Víkurfréttir - 21.10.2004, Page 10
M U N D I
Vá, églas:
Samviska þingmanna
mœtti vera meiri...
VIÐHORFSKÖNNUN
Spurt var:
Styður þú sameiningu sveitarfclaga á
Suðurncsjum?
53% svöruðu játandi, 40% neitandi en
7% sögðust ekki hafa kynnt sér málið.
Spurning vikunnar á vf.is er:
Leysist kennaraverkfall á næstu tíu dögum?
Farðu inn á vefVíkurfrétta, www.vf.is og taktu
þátt í vikulegri viðhorfskönnun. Niðurstöður
verða birtar í Víkuríféttum vikulega, ásamt
næstu spurningu.
KfllLINN fl KflSSflNUM
Samúðin horfin
H
GJÖRSAMLEGA öll samúð Kallsins í garð kennara er horfin út í veður
ogvind eftir framgöngu fulltrúa kennara í undanþágunefnd. Kallinn tnúði
ekki sínum eigin augum þegar fulltrúinn kom fram í fréttum RÚV oggat
með engu móti rökstudd þá ákvörðun að veita kennurum fatlaðra barna
ekki undanþágu.
VERKFALL KENNARA á síst að bitna á fötluðum börnum. Þau börn geta
ekki leikið sér úti alla daga. Þau þurfa á kennslu að halda og að hlutirnir
séu í röð og reglu. Það ertil skammar hvemig kennarar hafa komið
fram í þessu máli og þeim ekki til framdráttar. Skamm!
SIGURÐURJónsson sveitarsyóri í Garði kýs að skrifa Kallinum í öðmm
miðli hér á svæðinu og finnst Kallinum það skrýtið. í raun var fátt nýtt í
pistli Sigurðar - sama gamla tuggan sem kemur frá
litlu sveitarfélögunum. Kallinn ætlar að leyfa
sameiningammræðunni að líða aðeins áfram því
að sjálfsögðu mun Kallinn svara á málefnalegum
nótum.
UPPSAGNIR hjá slökkviliðinu á
Keflavíkurflugvelli halda áfram. Þar em menn
með áratuga reynslu látnirfara fyriryngri
menn. Hvareru stéttarfélögin þegar fólkið
þarf á þeim að halda? Á að láta stjórnendur
upp með hvað sem er?
HVAÐ ERU sveitarstjórnarmenn í Garði, Sandgerði og Vogum að hugsa?
Um leið og umræða um sameiningu sveitarfélaga kemur fram þá draga
þeir sig út úr samstarfi barnaverndarnefnda. Og af hverju í ósköpunum
gera þeir það? Er verið að undirbúa það að fella sameiningu sveitarféla-
ganna? Hvað myndu þessi sveitarfélöggera ef klipptyrði á allt samstarf
sveitarfélaganna? Hvaða stórmennskustælar em í gangi hjá þessu fólki?
Ja, Kallinn bara spyr!
SJÁUM ÖLL Blindsker! Algjör snilld!
MEÐ VONA UM AÐ fötluð böm fái undanþágu til kennslu!
Kveðja, kallinn@vf.is
SVART
& sykurlaust
Uppsagnir framundan
hjá slökkviliðinu
Svart og Sykurlaust er alltaf með
puttann á púlsinum og hefur
heyrt þær fréttir að til standi að
reka 10 slökkviliðsmenn til
viðbótar á Keflavíkurflugvelli um
áramót. Þar verða nokkrir sem
eiga grátlega skammt í að geta
farið á eftirlaun sem verða
verulega skert þess vegna.
Nú er framundan gósentíð hjá
dætrum yfirmanna slökkviliðsins
sem sjá fram á að vera afar
eftirsóttar af slökkviliðsmönnum
sem vilja koma sér í mjúkinn hjá
þeim sem öllu ráða þar.
Vágestur hetjar á iþróttamenn
Síðustu misseri hefur vágestur
gert vart við sig hér á landi. Um
er að ræða sérlega skæða
tannholdsbólgu sem smitaðist
hingað til lands frá Svíþjóð.
Sjúkdómurinn lýsir sér með
útblásinni efri vör og daunillri
gulbrúnni útferð.
Þessi pest virðist helst plaga
knattspyrnukappa og aðra
íþróttamenn sem sjást vart á
almannafæri án þess að bera
hennar merki. Sérlega slæmt er
til þess að vita að ungdómurinn
er móttækilegur fyrir smiti, en oft
þarf ekki meira til en að
ungdómurinn sjái þá eldri sem
bera einkennin til að þeir taki
sóttina. Heilbrigðisyfirvöld
standa ráðþrota frammi fyrir
vandamálinu, en vonandi verður
komist fyrir það sem allra fyrst.
Afgreiðsla Víkurf rétta
er opin allavirkadaga
frákl. 09-12 og 13-17.
IVIeðþvíað hringjaí
síma 4210000 erhægtað
velja beint samband við |
auglýsingadeild, fréttadeild
oghönnunardeild.
Fréttavaktallansólar-
| hringinn er í síma 898 2222
Útgefandi:
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Ritstjóri ogábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamenn:
Sölu-og markaðsstjóri:
Auglýsi ngadeild:
Útlit, umbrot og prentvistun:
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Prentvinnsla
Dagleg stafræn útgáfa
Skrifstofa Víkurfrétta
RITSTJÓRNIN
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23,260 Njarðvík, Simi 4210000 Fax 4210020
Páll Ketilsson, sími 4210007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 4210002, hi!mar@vf.is
Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 4210004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttir), sími 4210003, sport@vf.is
Jónas Franz Sigurjónsson, sími 4210001, jonas@vf.is
Jófríður Leifsdóttir, sími 4210008, jofridur@vf.is
Jón Björn Ólafsson, sími 4210014, jbo@vf.is
Víkurfréttirehf.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, s: 4210005, kolla@vf.is
Anita Hafdís Björnsdóttir, s: 4210013, antia@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, s: 4210011, steini@vf.is
Prentsmiðjan Oddi hf.
www.vf.is og vikurfrettir.is
Stefanía Jónsdóttir, sími 4210012, stebba@vf.is
Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 4210009, gudrun@vf.is
Aldís Jónsdóttir, sími 4211010, aldis@vf.is
Enginn getur betur...
Datt í hug um daginn að panta pítsu á nýjasta afsprengi bæj-
arins, enda yfirleitt í mínum verkahring að sjá um elda-
mennskuna á föstudögum. Krakkarnir að springa úr
spenningi að smakka á Domino's bökunum, sem að manni skilst,
séu þær allra heitustu í dag. Alla vega í Færeyjum! Ég er ekki ffá því
að ég hafi sjálfur verið eilítið spenntur að smalrka eitthvað nýtt,
enda búinn að vera fastur gestur bæði hjá Ingó og Ungó. Klukkan
var 18.30 að staðartíma þegar ég þreif í gemsann og pikkaði núm-
erið 58-12345. Ég söng þetta á færeysku, eflaust eins og Virgar vin-
ur minn ffá gamalli tíð, hefði gert.
Oftar en ekki þarf maður að bíða einhver ósköpin effir svari
en í þetta skiptið var ég rétt farinn að söngla símanúmerið
þegar hugljúf rödd stúlku bauð góða kvöldið og spurði
hvað mætti hjóða herranum. Ég var ekid alveg undir það búinn að
svara svona fljótt, enda vanur að hugsa urn hvaða tilboði maður
tald á meðan síminn hringir nærfellt út. Ég stamaði eitthvað á bjag-
aðri fær-íslensku að við sætum heima fjögur og vantaði eitthvað
gott í gogginn. Stúlkan bauð um hæl tvennu tilboð sem ekki var
hægt að hafha. Mér var lofað að góðgætið yrði tilbúið eftir klukku-
tíma, þar sem það væri alveg brjálað að gera! Fengi skilaboð í gems-
ann um leið og pítsurnar færu í ofhinn.
Mér óaði við tímanum sem það tæki að afgreiða tvær aum-
ar pítsur og nokkrar brauðstangir. í gamla daga fór mað-
ur í lúguna á Aðalstöðinni og fékk samloku og appelsín í
flösku afgreidda á núll einni. Þá var boðið upp á rækjusamloku eða
róstbeef með remúlaði. Og viðbragðsflýtirinn hjá Steina-Lása og
Lilla Brands var brotabrot af þessari þjónustu. Djöf.... mar! Bara ef
krakkarnir hefðu ekki suðað Domino's. Læt það vera að bíða í
fimmtán til tuttugu mínútur en klukkutíma! Bauð ffúnni á rúntinn
og við skoðuðum fasteignir til sölu í bænum. Elska allt í Njarðvík,
veit ekld af hverju! Móahverfið í uppáhaldi. Klukkan 19.44 koma
skilaboðin, lummurnar á leið í ofninn!
Ilmurinn angaði langt út á gamla hallærisplan og ég var í stök-
ustu vandræðum að finna stæði. Efa að nokkurn tíma hafi ver-
ið jafn þétt af bílum og þetta Jtvöld á planinu. Innandyra voru
pabbar eins og ég, í langri biðröð og misjafnlega hressir með rússa-
röðina. Andsk.... bið er þetta, heyrðist tönglast í hveiju horni stað-
arins og þegar ég komst að, var mér sagt að bíða smástund í viðbót.
Klukkan 20.05 var ég búinn að fara gegnum rússaröðina í annað
skiptið og þá var mér sagt að kvöldmaturinn væri týndur! Ég hló
tryllingshlátri þótt innst inni væri ég gráti næst. Ég er alltaf svo
heppinn. Stúlkan benti á yfirmanninn og hann tók til óspilltra mál-
anna. Kvöldmaturinn yrði í boði Domino's og að auki lagði hann
til tveggja lítra gos 1 sárabætur. Og heimkeyrslu!
Náungakærleikur var mér efst í huga þegar við trilluðum
heim á leið, hungurmorða en öllu vitrari um ytra ástand
húsa í Njarðvíkurhverfi. Krakkarnir trúðu ekki sínum eigin
augum, að gamla settið væri ekki búið að fá afgreiðslu. Við fáum
þær frítt og heimkeyrslu að auki, tautaði ég hokinn og beygður.
Þetta sökkaði nett í ungdóminn og nú var einblínt á klulckuna.
Klukkan 20.35 heyrðum við hundkvikindið gelta og þá vissum við
að pítsusendillinn væri mættur.
Ostaveislan var ekki alveg eins góð og vonir stóðu til, en svei
mér þá, þegar tveir tímar eru liðnir ffá pöntun, þá er allur
matur góður. Ég var viss um að þau hefðu fundið upp-
runalegu pítsurnar, eilítið staðnar í hillunni, í fyrsta helgarstressinu.
Ég var sár og svekktur og hét því að vera eins og neytendaffömuð-
urinn í Spaugstofunni, þessi sem heimtar ábótina og aukaafsláttinn
alls staðar. Jafnvel að snúa mér aftur að Ungó eða Ingó.
Skammtímaminnið var ekki betra en svo að viku síðar pantaði
ég aftur á sama stað. Krakkamir grátbáðu um Domino's píts-
urnar affur. Gefa þessu annað tækifæri. Notaði sömu fær-ís-
lenskuna í símann. Er rnaður fjandakornið orðinn háður þessum
andskota núna? Hvar er neytendahornið? Ma, ma, ma... maður á
bara ekki til eitt aukatekið orð! Það bara „djétur endjinn bedur”!
Að minnsta kosti ekki á þessum hraða!
fimmtudags
EFTIR VAL KETILSSON
10
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!