Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.10.2004, Page 12

Víkurfréttir - 21.10.2004, Page 12
FRETTAVIÐTAL Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is > Jón Gunnarsson alþingismaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í viðtali: Samvinna þingmanna mætti vera meiri „Tegundir sem eiga ekkert erindi í kvóta, eins og langa, ufsi og keila eru tegundir sem mikið hafa verið fiskaðar hér á Suður- nesjum. Ég held að það myndi skipta okkur verulega miklu máli ef það næðist slík breyting í gegn og við sæjum aftur líf á höfnunum í Sandgerði og hér í Keflavík - bara við þessa einu breytingu.” Alþingi var sett á dögun- um.Töluvert upphlaup varð á þingsetningunni vegna ummæla forseta Alþing- is, Halldórs Blöndals, í ræðu sinni þcgar nokkrir þingmenn stjórnarandstöðu gengu úr þingsal. Jón Gunnarsson var einn þeirra. „Við stóðum upp til að mótmæla því aö forscti hati misnotað aðstöðu sína eins og hann gerði þarna,” segir Jón m.a. í viðtali við Víkurfrcttir. Aðspurður um hvaða þrjú mál hann muni leggja áherslu á aö bcrjast fyrir á þingvetrinum svarar hann. „Samgöngumál, tekjuskiptingu ríkis og sveitar- fclaga og að raunvcrulcgar breytingar verði á kvótakerf- inu.” I viðtalinu ræðir Jón einnig um nýjan forsætisráð- licrra, samvinnu þingmanna á Suðurnesjum og sctuna í fjár- laganefnd. Hvernig líst þér á komandi þing? Mér líst nokkuð vel á komandi þing og ég held að forseti þings- ins hafi slegið tóninn í þingsetn- ingarræðu sinni sem fór þannig fram að ég ásamt fleiri þing- mönnum Samfylkingarinnar stóðum upp og gengum úr þing- sal. Við stóðum upp til að mót- mæla því að forseti hafi misnot- að aðstöðu sína eins og hann gerði þarna. Heldurðu að þetta verði átakaþing? Ég held að þetta verði átakaþing að mörgu leyti. Auðvitað eimir af því að við áttum í mjög hatrömmum deilum og átökum varðandi tjölmiólafrumvarpið á síðasta þingi. Það er nú einu sinni svo þegar menn eru komnir í ákveðinn gír þá halda menn off í sömu átt og reyndar er margt af því sent ríkisstjómin er að gera með þeirn hætti að við hljótum að bregðast við með gagnrýni. Halldór Ásgrímsson nýtekin við sem forsætisráðherra - tcl- urðu miklar breytingar í vændum? Ég held satt að segja að það breyti afskaplega litlu. Ég sé ekki alveg hvernig hann á að geta breytt hlutunum á einhvem hátt með ekki sterkari flokk sem ltann er með á bak við sig. Hann þarf á samstarfsflokknum að halda og hlýtur nánast alltaf að fara eftir þeirra línu eins og mér finnst Framsóknarflokkurinn hafa gert í þessu stjómarsamstarfi. Heldurðu að það skipti ntáli fyrir Suðurnesin að Halldór sé orðinn forsætisráðherra? Ég veit það ekki. Auðvitað breyt- ist annað urn leið og það er nátt- úrulega kominn nýr utanríkisráð- lrerra. Mér fannst Halldór alltaf gera alltof lítið af því að lralda sambandi við okkur hér suðurfrá varðandi málefhi Varnarliðsins. Ég er að vonast til þess og mun leggja á það áherslu inn á þingi að við hér suðurfrá fáum að taka þátt í því sem er að gerast og séum ekki að lesa það í blöðun- um, nánast frá degi til dags hvaða þróun er á Keflavikurflugvelli. Við verðum að vera með í því að fara yfir það hvaða möguleika „Við þingmenn þessa kjör- dæmis eigum að einhenda okkur í það að Reykjanes- brautin verði kláruð. Það er ekki víst að það verði auð- veld barátta því það er verið að boða niðurskurð í vega- framkvæmdum á næsta og þar næsta ári. Ég held að allir sjái sem keyra þessa braut í dag að hún á að vera tvöföld alla leið. Það hlýtur að verða sameiginlegt verkefni okkar þingmanna í kjördæminu að fá Reykjanesbrautina kláraða.” við eigum og hvernig við bregð- umst við þeitn ákvörðunum sem eru teknar. Sem utanríkisráðherra fannst mér Halldór Ásgrímsson algjörlega hundsa okkur í þess- um efhum. Á hvaða þrjú mál muntu leggja áherslu á yfirstandandi þingi? Ni: 1 Samgöngumál Við þingmenn þessa kjördæmis eigum að einhenda okkur í það að Reykjanesbrautin verði kláruð. Það er ekki víst að það verði auðveld barátta því það er verið að boða 2 milljarða króna niðurskurð í vegaframkvæmdum á næsta og þar næsta ári. Ég held að allir sjái sem keyra þessa braut í dag að hún á að vera tvöföld alla leið. Það hlýtur að verða sameiginlegt verkefni okkar þingmanna í kjördæminu að fá Reykjanesbrautina kláraða. Nr. 2 Tekjuskipting ríkis ogsveit- aifélaga. Svo við getum haldið áfram að lifa hér á Suðumesjum við al- mennilega þjónustu verður að taka á tekjuskiptingu rikis og sveitarfélaga. Við erum að horfa á það hér á Suðumesjum að við munum ekki geta boðið íbúum upp á sömu þjónustu og verið hefur ef ekki verður gerð leiðrétt- ing á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Af staðgreiðslunni fá sveitarfé- lögin ákveðið hámark og ríkið það sem út af stendur. Ég held að við þurfum að horfa til nýrra leiða; að sveitarfélögin séu ekki bata að fá tekjur af launamönn- um. Við þurfum líka að fá tekjur af veltusköttum. Af hveiju fá sveitarfélögin ekki hluta af bens- ingjaldi eða þungaskatti sem dæmi? Partur af vegakerfi lands- ins eru vegir í sveitarfélögum sem sveitarfélögin sjálf kosta og sjá um viðhald á. Afhvetju fá sveitarfélögin ekki hluta af þessu gjaldi sem tekjustofn? Nr. 2 munveruleg breyting á fisk- veiðistjómunarkeifinu Þriðja málið sem skiptir Suður- nesjamenn miklu máli er að ná fram raunveralegum breytingum á fiskveiðistjómunarkerfinu. Tegundir sem eiga ekkert erindi í kvóta, eins og langa, ufsi, keila og skötuselur era tegundir sem mikið hafa verið fiskaðar hér á Suðumesjum. Ég held að það myndi skipta okkur verulega rniklu máli ef það næðist slík breyting í gegn og við sæjum aft- ur meira líf í höfhunum í Sand- gerði og hér í Keflavík - bara við þessa einu breytingu. Hverjar telurðu framtíðarhorf- ur Suðurnesja vera? Ég held að Suðumesin eigi af- skaplega góðar horfur til framtíð- ar því það sem er að gerast hér er sama þróun og er erlendis. Það era kjamamir í kringum stóru borgimar sem eru að eflast og hafa verið að eflast undanfarin ár. Bæði eru fýrirtæki að leita út úr borgunum og inn í þessar byggð- ir og eins er fólkið að leitast við að komast út úr stóra borgunum og inn í smærri samfélög í kring- um borgimar. Við sjáum þetta vera að gerast víðar en hér á Suð- umesjum, til dæmis á Árborgar- svæðinu og eins upp á Akranesi. Það er stór kostur fýrir okkur Suðumesjamenn að þurfa ekki að fara yfir fjallveg eða greiða vegtoll í göng og því tel ég að á næstu árum verði sprenging í ibúamálum hér á Suðumesjum. Við verðum bara að vera tilbúin til að taka við þeim fjölda sem mun örugglega vilja koma til okkar. Er samvinna þingmanna kjör- dæmisins mikil hvaö varðar ntálefni Suðurnesja? Hún rnætti vera mikið betri. Reyndar hefi.tr samvinna þing- rnanna verið sérstaklega góð í samgöngumálum. Hvað önnur málefni varðar þá er hún alltof litil. Með minn bakgrunn þar sem ég kem úr sveitarfélaga- stjómun og fýrirtækjastjómun þá held ég að árangurinn gæti verið betri ef samvinna þingmanna væri meiri. En svo komurn við náttúrulega að liinu að á fjögurra ára fresti eru verkin lögð í dóm kjósenda og menn eru alltaf að reyna að halda utan um sitt og það veldur því örugglega að þingmenn vinna ekki meira sant- an en raun ber vitni. Ég er tilbú- inn til þess að eiga meira og öfl- ugra samstarf að þessurn góðu málum sem við þurfum að vinna að. En það þarf tvo i tangó. Fyrsta þingmálið sem þú munt vinna að á þinginu? Næstu daga verður tekin umræða um lækkun virðisaukaskatts á matvöru, en ég er einn flutnings- manna lagafrumvarps um það mál. Ég vona að aðrir þingmenn taki málinu vela þar sem ég tel nauðsynlegt að okkur takist að lækka þennan skatt úr 14% í 7% og stuðla þannig að kjarabótum fýrir alla. Fyrir áramót mun að öðru leiti mestur tími minn eins og í fýrra fara í störf fjárlaganefndar þar sem ég sit. Það er nánast fullt starf að vera bara í fjárlaganefhd meðan vinnan við fjárlagafrum- varp næsta árs fer fram. Það era fundir á hvetjum einasta degi sem byija klukkan 8:30 á morgn- ana og þeir standa fram að þing- fundi. Éyrir fjárlaganefnd liggja mörg góð erindi frá Suðumesjum þar sem farið er ffarn á stuðning rikisins og þessi erindi bera því glögg rnerki að rnikil gróska er á svæðinu í fjölmörgum mála- flokkum. Mikilvægt er að trygg- ja rn.a. heilbrigðis - og mennta- málum á Suðumesjum næga fjár- muni til að stofnanir okkar geti veitt þá þjónustu sem við vænt- um og verið þannig einn af þeirn seglum sem við þurfum til að vaxa til framtíðar. Fjárlögin taka því mestan tíma fram að áramót- um en síðan er ég með ýmislegt handraðanum sem ég mun kynna síðar þegar nær dregur ffamlagn- ingu á Alþingi. Verkefnaleysi kvíði ég ekki. 12 VIKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.