Víkurfréttir - 21.10.2004, Qupperneq 12
FRETTAVIÐTAL
Texti: Jóhannes Kr. Kristjánsson • johannes@vf.is
> Jón Gunnarsson alþingismaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í viðtali:
Samvinna þingmanna mætti vera meiri
„Tegundir sem eiga ekkert erindi í kvóta, eins og langa, ufsi
og keila eru tegundir sem mikið hafa verið fiskaðar hér á Suður-
nesjum. Ég held að það myndi skipta okkur verulega miklu máli
ef það næðist slík breyting í gegn og við sæjum aftur líf á
höfnunum í Sandgerði og hér í Keflavík
- bara við þessa einu breytingu.”
Alþingi var sett á dögun-
um.Töluvert upphlaup
varð á þingsetningunni
vegna ummæla forseta Alþing-
is, Halldórs Blöndals, í ræðu
sinni þcgar nokkrir þingmenn
stjórnarandstöðu gengu úr
þingsal. Jón Gunnarsson var
einn þeirra. „Við stóðum upp
til að mótmæla því aö forscti
hati misnotað aðstöðu sína eins
og hann gerði þarna,” segir Jón
m.a. í viðtali við Víkurfrcttir.
Aðspurður um hvaða þrjú mál
hann muni leggja áherslu á aö
bcrjast fyrir á þingvetrinum
svarar hann. „Samgöngumál,
tekjuskiptingu ríkis og sveitar-
fclaga og að raunvcrulcgar
breytingar verði á kvótakerf-
inu.” I viðtalinu ræðir Jón
einnig um nýjan forsætisráð-
licrra, samvinnu þingmanna á
Suðurnesjum og sctuna í fjár-
laganefnd.
Hvernig líst þér á komandi
þing?
Mér líst nokkuð vel á komandi
þing og ég held að forseti þings-
ins hafi slegið tóninn í þingsetn-
ingarræðu sinni sem fór þannig
fram að ég ásamt fleiri þing-
mönnum Samfylkingarinnar
stóðum upp og gengum úr þing-
sal. Við stóðum upp til að mót-
mæla því að forseti hafi misnot-
að aðstöðu sína eins og hann
gerði þarna.
Heldurðu að þetta verði
átakaþing?
Ég held að þetta verði átakaþing
að mörgu leyti. Auðvitað eimir af
því að við áttum í mjög
hatrömmum deilum og átökum
varðandi tjölmiólafrumvarpið á
síðasta þingi. Það er nú einu sinni
svo þegar menn eru komnir í
ákveðinn gír þá halda menn off í
sömu átt og reyndar er margt af
því sent ríkisstjómin er að gera
með þeirn hætti að við hljótum
að bregðast við með gagnrýni.
Halldór Ásgrímsson nýtekin
við sem forsætisráðherra - tcl-
urðu miklar breytingar í
vændum?
Ég held satt að segja að það
breyti afskaplega litlu. Ég sé ekki
alveg hvernig hann á að geta
breytt hlutunum á einhvem hátt
með ekki sterkari flokk sem ltann
er með á bak við sig. Hann þarf á
samstarfsflokknum að halda og
hlýtur nánast alltaf að fara eftir
þeirra línu eins og mér finnst
Framsóknarflokkurinn hafa gert í
þessu stjómarsamstarfi.
Heldurðu að það skipti ntáli
fyrir Suðurnesin að Halldór sé
orðinn forsætisráðherra?
Ég veit það ekki. Auðvitað breyt-
ist annað urn leið og það er nátt-
úrulega kominn nýr utanríkisráð-
lrerra. Mér fannst Halldór alltaf
gera alltof lítið af því að lralda
sambandi við okkur hér suðurfrá
varðandi málefhi Varnarliðsins.
Ég er að vonast til þess og mun
leggja á það áherslu inn á þingi
að við hér suðurfrá fáum að taka
þátt í því sem er að gerast og
séum ekki að lesa það í blöðun-
um, nánast frá degi til dags hvaða
þróun er á Keflavikurflugvelli.
Við verðum að vera með í því að
fara yfir það hvaða möguleika
„Við þingmenn þessa kjör-
dæmis eigum að einhenda
okkur í það að Reykjanes-
brautin verði kláruð. Það er
ekki víst að það verði auð-
veld barátta því það er verið
að boða niðurskurð í vega-
framkvæmdum á næsta og
þar næsta ári. Ég held að allir
sjái sem keyra þessa braut í
dag að hún á að vera tvöföld
alla leið. Það hlýtur að verða
sameiginlegt verkefni okkar
þingmanna í kjördæminu að
fá Reykjanesbrautina
kláraða.”
við eigum og hvernig við bregð-
umst við þeitn ákvörðunum sem
eru teknar. Sem utanríkisráðherra
fannst mér Halldór Ásgrímsson
algjörlega hundsa okkur í þess-
um efhum.
Á hvaða þrjú mál muntu leggja
áherslu á yfirstandandi þingi?
Ni: 1 Samgöngumál
Við þingmenn þessa kjördæmis
eigum að einhenda okkur í það
að Reykjanesbrautin verði
kláruð. Það er ekki víst að það
verði auðveld barátta því það er
verið að boða 2 milljarða króna
niðurskurð í vegaframkvæmdum
á næsta og þar næsta ári. Ég held
að allir sjái sem keyra þessa braut
í dag að hún á að vera tvöföld
alla leið. Það hlýtur að verða
sameiginlegt verkefni okkar
þingmanna í kjördæminu að fá
Reykjanesbrautina kláraða.
Nr. 2 Tekjuskipting ríkis ogsveit-
aifélaga.
Svo við getum haldið áfram að
lifa hér á Suðumesjum við al-
mennilega þjónustu verður að
taka á tekjuskiptingu rikis og
sveitarfélaga. Við erum að horfa
á það hér á Suðumesjum að við
munum ekki geta boðið íbúum
upp á sömu þjónustu og verið
hefur ef ekki verður gerð leiðrétt-
ing á tekjuskiptingu ríkis og
sveitarfélaga.
Af staðgreiðslunni fá sveitarfé-
lögin ákveðið hámark og ríkið
það sem út af stendur. Ég held að
við þurfum að horfa til nýrra
leiða; að sveitarfélögin séu ekki
bata að fá tekjur af launamönn-
um. Við þurfum líka að fá tekjur
af veltusköttum. Af hveiju fá
sveitarfélögin ekki hluta af bens-
ingjaldi eða þungaskatti sem
dæmi? Partur af vegakerfi lands-
ins eru vegir í sveitarfélögum
sem sveitarfélögin sjálf kosta og
sjá um viðhald á. Afhvetju fá
sveitarfélögin ekki hluta af þessu
gjaldi sem tekjustofn?
Nr. 2 munveruleg breyting á fisk-
veiðistjómunarkeifinu
Þriðja málið sem skiptir Suður-
nesjamenn miklu máli er að ná
fram raunveralegum breytingum
á fiskveiðistjómunarkerfinu.
Tegundir sem eiga ekkert erindi í
kvóta, eins og langa, ufsi, keila
og skötuselur era tegundir sem
mikið hafa verið fiskaðar hér á
Suðumesjum. Ég held að það
myndi skipta okkur verulega
rniklu máli ef það næðist slík
breyting í gegn og við sæjum aft-
ur meira líf í höfhunum í Sand-
gerði og hér í Keflavík - bara við
þessa einu breytingu.
Hverjar telurðu framtíðarhorf-
ur Suðurnesja vera?
Ég held að Suðumesin eigi af-
skaplega góðar horfur til framtíð-
ar því það sem er að gerast hér er
sama þróun og er erlendis. Það
era kjamamir í kringum stóru
borgimar sem eru að eflast og
hafa verið að eflast undanfarin ár.
Bæði eru fýrirtæki að leita út úr
borgunum og inn í þessar byggð-
ir og eins er fólkið að leitast við
að komast út úr stóra borgunum
og inn í smærri samfélög í kring-
um borgimar. Við sjáum þetta
vera að gerast víðar en hér á Suð-
umesjum, til dæmis á Árborgar-
svæðinu og eins upp á Akranesi.
Það er stór kostur fýrir okkur
Suðumesjamenn að þurfa ekki
að fara yfir fjallveg eða greiða
vegtoll í göng og því tel ég að á
næstu árum verði sprenging í
ibúamálum hér á Suðumesjum.
Við verðum bara að vera tilbúin
til að taka við þeim fjölda sem
mun örugglega vilja koma til
okkar.
Er samvinna þingmanna kjör-
dæmisins mikil hvaö varðar
ntálefni Suðurnesja?
Hún rnætti vera mikið betri.
Reyndar hefi.tr samvinna þing-
rnanna verið sérstaklega góð í
samgöngumálum. Hvað önnur
málefni varðar þá er hún alltof
litil. Með minn bakgrunn þar
sem ég kem úr sveitarfélaga-
stjómun og fýrirtækjastjómun þá
held ég að árangurinn gæti verið
betri ef samvinna þingmanna
væri meiri. En svo komurn við
náttúrulega að liinu að á fjögurra
ára fresti eru verkin lögð í dóm
kjósenda og menn eru alltaf að
reyna að halda utan um sitt og
það veldur því örugglega að
þingmenn vinna ekki meira sant-
an en raun ber vitni. Ég er tilbú-
inn til þess að eiga meira og öfl-
ugra samstarf að þessurn góðu
málum sem við þurfum að vinna
að. En það þarf tvo i tangó.
Fyrsta þingmálið sem þú munt
vinna að á þinginu?
Næstu daga verður tekin umræða
um lækkun virðisaukaskatts á
matvöru, en ég er einn flutnings-
manna lagafrumvarps um það
mál. Ég vona að aðrir þingmenn
taki málinu vela þar sem ég tel
nauðsynlegt að okkur takist að
lækka þennan skatt úr 14% í 7%
og stuðla þannig að kjarabótum
fýrir alla.
Fyrir áramót mun að öðru leiti
mestur tími minn eins og í fýrra
fara í störf fjárlaganefndar þar
sem ég sit. Það er nánast fullt
starf að vera bara í fjárlaganefhd
meðan vinnan við fjárlagafrum-
varp næsta árs fer fram. Það era
fundir á hvetjum einasta degi
sem byija klukkan 8:30 á morgn-
ana og þeir standa fram að þing-
fundi. Éyrir fjárlaganefnd liggja
mörg góð erindi frá Suðumesjum
þar sem farið er ffarn á stuðning
rikisins og þessi erindi bera því
glögg rnerki að rnikil gróska er á
svæðinu í fjölmörgum mála-
flokkum. Mikilvægt er að trygg-
ja rn.a. heilbrigðis - og mennta-
málum á Suðumesjum næga fjár-
muni til að stofnanir okkar geti
veitt þá þjónustu sem við vænt-
um og verið þannig einn af þeirn
seglum sem við þurfum til að
vaxa til framtíðar. Fjárlögin taka
því mestan tíma fram að áramót-
um en síðan er ég með ýmislegt
handraðanum sem ég mun kynna
síðar þegar nær dregur ffamlagn-
ingu á Alþingi. Verkefnaleysi
kvíði ég ekki.
12
VIKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!