Víkurfréttir - 21.10.2004, Qupperneq 19
> Bakaranemi úr Reykjanesbæ gerir það gott:
Vann til silfurverðlauna í
alþjóðlegri matreiðslukeppni
Keflvíkingurinn Svanur
Már Scheving náði
prýðisárangri á sam-
keppni matreiðslu og bakara-
nema á árlega ráðstefnu Sam-
taka hótel-, ferðamála- og mat-
vælagreina í Evrópu. Ráðstefn-
an var haldin i Bled í Slóveníu
um helgina og var þetta í 17.
sinn sem hún er haldin. alis
voru um 350 keppendur frá 37
löndum sem tóku þátt.
Svanur, sem er að ljúka bakara-
námi við Menntaskólann í Kópa-
vogi á næstunni og vinnur í Nýja
Bakarí á Hafnargötu, vann til
silfurverðlauna í eftirréttagerð.
Liðsfélagi hans var ítölsk stúlka.
„Það var ekki keppt eftir löndum
heldur vorum við dregin út í
tveggja manna lið. Hver kepp-
andi var búinn að setja upp þijá
rétti áður en haldið var út, en svo
finpússuðum við þetta saman,”
sagði Svanur í samtali við Víkur-
fféttir.
Réttirnir sem voru framreiddir
áttu að vera í samræmi við aðal-
þema ráðstefnunnar, kotasælu og
hunang. Réttir Svans og liðsfé-
laga hans voru í fyrst lagi hun-
angsís á Créme Bruleé, sem er
réttur Svans, í öðru lagi „kota-
sæluhvelfing” sem stúlkan kom
með og í þriðja lagi Frauðdúett
með hunangssósu.
„Þetta var virkilega ögrandi og
skemmtilegt og kennaramir vom
virkilega ánægðir með hvemig til
tókst,” sagði Svanur og bætti því
við að mótið hafi verið gott tæki-
færi til að skapa sér nafn í þess-
um geira. „Eg lít á árangurinn
sem mikla hvatningu. Eg er bú-
inn að vera að læra í fimm ár í
MK og líkar mjög vel. Aðstaðan
Svanurmeð
réttina góðu.
er öll hin glæsilegasta og hafa
meðal annars komið menn er-
lendis ffá til að kynna sér starf-
semina. Eftir árangurinn sem ís-
lenska kokkalandsliðið hefiir ver-
ið að ná á mótum úti í heimi er
mikill áhugi á að skoða hvernig
námið hér er byggt upp.”
Að lokum vill Svanur hvetja alla
sem hafa áhuga að kynna sér
námið i MK og bendir á Mars-
daga sem eru haldnir ár hvert til
að kynna námið.
Vínbúðin flyst á
Hafnargötuna
Til stendur að flytja Vín-
búðina í Keflavík um set
og opna nýja og betri búð
í sama húsi og 10-11 við Hafn-
argötuna. Nú standa yfir mikl-
ar brevtingar á húsnæðinu, en
verslun 10-11 verður enn í
sama húsi með minna búðar-
rými.
Þegar Ljósmyndara Víkurfrétta
bar að var búið að saga stóra
fleka úr útvegg hússins sem snýr
að Hafnargötu. Þar verður inn-
gangur nýrrar 10-11 verslunar en
Vínbúðin verður i þeim enda
sem fjær er Kjama.
Eyjólfúr Eysteinsson, verslunar-
stjóri Vínbúðarinnar sagði í sam-
tali við Vikurfréttir að til hafi
staðið að finna nýtt húsnæði í
nokkurn tíma. „Við erum að
vonast til að geta opnað fyrir jól
við aðalverslunargötu bæjarins,
en ef það bregst verður það ekki
seinna en í janúar.”
Eyjólfúr, sem lætur af störfúm á
næsta ári eftir 15 ára starf, segist
afar spenntur fyrir því að færa sig
um set. „Við emm ekki að fara út
í miklar breytingar i rekstrinum í
sjálfú sér, en í nýju búðinni verð-
ur sama yfirbragð og tíðkast í
öðrum Vínbúðum. Það verður
allt opnara og skemmtilegra, en
gamla búðin er svolitið dimm,”
sagði Eyjólfur.
Páll Ragnar Guðrún Mummi
Rósinkrans Bjamason Gunnarsdóttir Hermanns
læéiegtónistai- Gjs matarveíslc
(
Reyktur og grafinn lax
síldarréttir
Kryddlegnir sjávarréttir
Fiskipaté
Hreindýrapaté
Sveitapaté
Hangikjöt m / uppstúf
og laufabrau&i
Hamborgarhryggur
Innbakaður lax
Purusteik
Lambasteik
Kalkúnabringa m/fyllingu
Úrval af gómsætu meölæti
Eftirréttahlaöborö
Trábœr síemmtídaasírá oa íóíafiíaðborð
laugardagana 27. nóvember, 04. ógll. desember
og föstudagana 3. og 10. desember
qcr. 5-9°°''
J á STTAPÍW
pnme
Hjallavegi 2 • 260 NjarÖvík
Sími: 421 2526
VÍKURFRÉTTIR I 43. TÖLUBLflÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 21. OKTÓBER 2004 119