Víkurfréttir - 21.10.2004, Blaðsíða 21
Fyrsti Suðurnesjaslagur vetrarins
víkinga, í samtali við Víkurfréttir
og Einar Ami hjá Njarðvík tók i
sama streng. „Þeir verða gríðar-
lega erfiðir, enda eru þeir vel
mannaðir og hafa spilað vel.
Darrel Lewis er í fantaformi og
það er alveg ljóst að einn
lykillinn að sigri er að ná að
halda aftur af honum.”
Stórleikur vikunnar í
Intersport deildinni
verður án efa viðureign
Njarðvíkur og Grindavíkur á
mánudaginn. Bæði lið hafa
sýnt snilldartakta á köflum í
haust og verður þessi fyrsti
Suðurnesjaslagur vetrarins
athyglisvert uppgjör.
Menn eins og Darrel Lewis hjá
Grindavík og Brenton
Birmingham hjá Njarðvík þurfa
að sýna álíka snilldartakta og þeir
hafa gert i síðustu Ieikjum.
Breiddin er sennilega meiri hjá
þeim grænu, en Grindvikingar
hafa sýnt að þeir eru til alls
líklegir.
„Þetta verður stórleikur umfer-
ðarinnar,” sagði Kristinn
Friðriksson, þjálfari Grind-
Toppleikur í kvennakörfunni
Keflavík og Grindavík
mætast í grannaslag í 1.
deild kvenna á
miðvikudag. Þar munu tvö af
bestu liðum deildarinnar
mætast og verður sérlega
athyglisvert að sjá Erlurnar
tvær leika gegn sínum gömiu
félögum.
Grindavík, sem leikur á
heimavelli, fær þar færi á að
sanna sig sem meistaraefni, en
Keflavík hefur verið að leika
mjög sannfærandi það sem af er
leiktíðinni.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari
Keflavíkur, segir að mikil barátta
verði í leiknum eins og öllum
öðrum. „Við þurfum að leika
mjög vel til að sigra í þessum
leik. En ef við spilum á fullu og
gírum okkur upp getum við
unnið þennan leik.”
Örvar Kristjánsson hjá Grindavík
spáir hörkuleik. „Keflavík hefur
verið að spila allra liða best það
sem af er. Þær hafa mikla breidd
og Kaninn virðist falla mjög vel
inni í liðið. Við ætlum okkur
samt að vinna, en verðum þá að
spila sterka vöm og agaðan sók-
narleik.”
Góður árangur Suðurnesjaliða í Júdó
Katrín Ösp Magnúsdóttir,
18 ára júdókappi úr
Vogum, náði þeim
frábæra árangri að lenda í 5.
sæti á Opna sænska meis-
taramóti unglinga i júdó á
dögunum.
Katrín Ösp gekk vel á mótinu þar
sem hún vann tvær viðureignir af
fjórum á ippon. Hún tapaði
annarri viðureigninni mjög tæpt
og litlu munaði að hún ienti í
þriðja sæti.
Katrín fylgdi þessum árangri
eftir með því að taka silfrið í
opnum flokki á Haustmóti
Júdósambandsins.
Suðurnesjamenn sterkir í
Júdóinu
Á Haustmótinu náðu Þróttur og
UMFG góðurn árangri, sérstak-
lega í yngri flokkum. Þróttarar
unnu til einna gullverðlauna þar
sem Sindri Snær Helgason
sigraði í -50 kg flokki 13-14 ára.
Þróttur vann auk þess til þriggja
silfurverðlauna og tveggja
bronsverðlauna.
Grindvíkingar náðu ekki síðri
árangri, en þeir unnu til tveggja
gullverðlauna. Alexander
Elvarsson sigarði i -34 kg flokki
11-12 ára og Daníel Amarson í -
60 kg fiokki 13-14 ára.
Grindvíkingar fengu auk þess ein
silfurverðlaun og ein
bronsverðlaun.
OPINN DAGUR HJÁ
FIMLEIKADEILDINNI
Næstkomandi laugardag, 23. október, verður Opinn
dagur hjá Fimleikadeild Keflavíkur. Með honum
viljum við lífga upp á hefðbundna starfsemi og um
Ieið kynna starf deildarinnar og sögu.
Dagskráin er frá 10.15 - 13.15 í íþróttahúsinu við Sunnubraut og
verður margt spennandi til að fylgjast með. Allir iðkendur sýna
listir sínar og einnig verða einhverjar óvæntar uppákomur. Við
hvetjum ykkur tii að koma og vera með okkur þennan dag, fylg-
jast með iðkendunum og jafhvel spreyta ykkur í fimleikum!
Með von um góða mætingu
Þjálfarar og stjórn Fimleikadeildar Keflavíkur
„Ekkert
vanmat”
Sigurður Ingimundarson,
þjálfari meistaraliðs
Keflavíkur, var ekki
ánægður með frammistöðuna
á móti Snæfelli í síöasta leik, en
segir sína menn ekki örvænta.
Þeir eiga tvo Ieiki í vikunni og
er sá fyrri gegn Haukum í
Sláturhúsinu í kvöld og svo er
útilcikur gegn KFÍ á sun-
nudag.
„Það verður ekkert vanmat hjá
okkur,” segir Sigurður þrátt fyrir
að andstæðingamir séu ekki eins
hátt skrifaðir fyrirfram. „Við
stefhum að því að leika betur en í
síðasta leik og sigra.”
W~
/ t
Bardagi í
Borgarnesi
Grindvíkingar mæta
nýliðum Skallagríms í
Intersport-deildinni í
kvöld. Grindavíkingar hafa
unnið báða sína leiki til þcssa,
en Skallarnir eru sýnd veiði en
ekki gefin. Kristinn
Friðriksson, þjáifari Grinda-
víkur segir að sínir menn þurfi
að taka sig á í varnarleiknum
eftir síðasta leik. „Þetta verður
erfiður lcikur gegn sterku liði
og við munum alls ekki van-
meta þá.”
TT7 Ljónagryfjan í Njarðvík
VINTERSPMT
DEILDIN
Fimmtudagurinn 21.okt.
kl. 19:15
UMFN-KR
l.deild
kvenna
Miðvikudaginn 27.okt.
kl. 19:15
UMFN-ÍS
JVesprýði migi
Hatha-joga
KriPa'u’lo9a
Byrjendur-framhald - hefst 27. okt. n.k.
Morguntímar fyrir alla - hefjast 28. okt. n.k.
Slökunarjóga hefst 2. nóv. n.k.
Innritun og upplýsingar:
ísíma 421 1124 og 864 1124
Eygló Alexandersdóttir, jógakennari
Iðavöllum 9a, Reykjanesbæ
VÍKURFRÉTTIR I 43.TÖLUBLAÐ2004 I FIMMTUDAGURINN 21. OKTÓBER 2004 I 21