Víkurfréttir - 21.10.2004, Side 29
Árgangur ‘54 heldur upp á 50 ára afmæli sitt í Stapanum
þann 30. október næstkomandi. Vegna fjölda áskoranna
hefur verið ákveðið að leyfa árgöngum ‘53 og ‘54 að taka
þátt í veislunni þar sem annar árgangurinn hefur þegar
gengið yfir þröskuldinn og hinn mun gera það á næsta
ári.
Fjölbreytt skemmtiatriði verða á kvöldinu og má þar
nefna hijómsveitina Júdas, söngstjörnuna Rut Reginalds,
Hljómsveit Magga Kjartans, Supremes systur úr Njarðvík,
Helgi Hólm, happadrætti og margt fleira.
Veislustjóri verður hinn alræmdi „Kiddi Rót” og má geta
þess að ef ágóði verður á skemmtuninni mun sú upphæð
renna til Þroskahjálpar á Suðurnesjum.
Allir eru hvattir til að mæta á staðinn og fylla Stapann
eins og gert var í gamla daga. Miðasala er hjá Gurru í
síma 861-3437 en einnig er hægt að greiða inn á reikning
nr. 1191-05-1954, kt: 010554-3579 og taka með sér kvittun
yfirfærsluna.
Stórsýning á Volvo í Reykjanesbæ
Stórsýning verður í
Brimborg Reykjanesbæ,
laugardaginn 23. októ-
ber. Þar verður m.a. til sýnis
bíll ársins á Islandi, Volvo S40.
Auk hans verður til sýnis úrval
nýrra Volvo bíla. Sem dæmi
Volvo S60, XC70 og Volvo V50.
Einnig geta gestir skoðað
verðlaunajeppann Volvo XC90.
Á sýningunni í Brimborg
Reykjanesbæ verða kynntir SE
line aukahlutapakkar á sérstöku
tilboði fyrir allar gerðir Volvo og
þeir sem skrá sig í reynsluakstur
eiga kost á því að vinna miða
fyrir tvo á söngleikinn Chicago í
Borgarleikhúsinu. Sýningin
verður í sýningarsal Brimborgar,
Njarðarbraut 3, Reykjanesbæ og
opin laugardaginn 23. október
milli 11-17. Suðumesjamenn eru
hvattir til að mæta, skoða bílinn
sem hlaut stálstýrió 2004, Volvo
S40, og aðra verðlaunabíla
Volvo, þiggja veitingar og setja
nafh sitt í Happapott Brimborgar
þar sem vinningar eru miðar fýrir
tvo á söngleikinn Chicago í
Borgarleikhúsinu, en frá þessu
greinir í tilkynningu frá Brim-
borg.
Nánari upplýsingar veitir:
Ágúst Hallvarðsson
agusth@brimborg.is
Sími: 515 7015
Gsm: 696 4224
Eignamiðlun Suðurnesja
Hafnargötu 20 • Sími 4211700 • es@es.is
Eignamiðlun Suðurnesja Grindavík
Víkurbraut 46, Drindavík • Sími 426 7711 • snjóiaug@es.is
Hátún 27, Keflavík
Huggulegt parhús á 2 hæðum ásamt
45m2 bílskúr. 4 svefnherbergi.
Frábær staður.
Hringbraut 88, Keflavík
Mjög skemmtileg 105m2,4ra herbergja
íbúð í fjórbýli. Góðar innréttingar og
gólfefni. Vinsælar íbúðir.
Háteigur 12, Keflavík
Skemmtileg og rúmgóð 2. herb. íbúð á
1 h. Nýlegt parket og flísar á. Snyrtil.
sameign. Mögul. að taka bíl uppí.
Faxabraut 25, Keflavík
Hugguleg, rúmgóð, 3. herbergja íbúð á
2h í fjölbýli. Parketlíki á gólfum, góðar
innréttingar. Svalir í suð-vestur.
Vegna mikillar sölu, óskum við eftir öllum gerðum eigna á skrá.
Faxabraut 32-c, Keflavík
Mjög góð 3. herb. í 2,h. í fjölbýli. Teppi á
stofu, parketlíki á holi og eldhúsi. Stórt
herbergi í kj. sem fylgir íbúðinni.
Silfurtún 12, Garöur
Mjög snyrtileg 4ra herb. íbúð á 2.h. í fjöl-
býli. Parket á gólfum, góðar innréttingar.
Svalir í suður. Góöur staður.
EIGNAMIÐLUN SUÐURNESJA Hafnargötu 20, Keflavík - Sími 421 1700
Sigurður Ragnarsson, fasteignasali-Böðvar Jónsson, sölumaður Fax 421 1790- Vefsíða WWW.es.is
Faxabraut 34, Keflavík
Hugguleg 4ra herb. íbúð á 2.h. Nýlegt
parketlíki á flestum gólfum.
íbúðin er nýmáluð.
Grundarvegur17, Njarðvík
Mjög huggulegt 203m2 parhús, ásamt
50m2 bílskúr. Parket á gólfum, arin í
stofu. Mjög góður staður.
Hjallavegur 1, Njarðvík
Hugguleg 4ra herbergja íbúð á 2. h. í
fjölbýlishúsi. Spónaparket á gólfum,
góðar innréttingar. Svalir í suður.
Heiðarvegur 8, Keflavík
Sérlega glæsil. 260m2 einbýli, mikið
endurn., ma. innréttingar, gólfefni, lagnir
og fl. Sólpallur á lóð með heitum potti.
Brekkustígur 35, Njarðvík
Sérlega falleg 116m2,4ra herb. íbúð á 1.
hæð. Nýjar innréttingar, parket og flísar á
gólfum. Svalir í suður. Stór sameign.
Hringbraut 72, Keflavík
Hugguleg 2. - 3. herb. íbúð á 1.h. Nýlegt
parketlíki í stofu, eldhúsi og herbergi.
Svalir í vestur. Laus strax.
VlKURFRÉTTIR I 40.TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN30. SEPTEMBER2004 I 29