Víkurfréttir - 09.03.2006, Qupperneq 16
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum:
AHUGAVERÐ RAÐ-
STEFNA FYRIR KONUR
Ráðstefnan „Konur, starfsframi og fjöl-
skyldan11 verður haldin í Listasafni
Reykjanesbæjar fimmtudaginn 16. mars
nk. Konur á Reykjanesi eru hvattar til að mæta
og hlýða á áhugaverð er-
indi um viðfangsefni
sem er hluti af lífi flestra
kvenna nú á tímum. Á
ráðstefnunni koma fram
reyndir aðilar og flytja er-
indi er koma inn á viðfangs-
efnið konur, starfsframi og
fjölskyldan. Viðfangsefnið
verður m.a. skoðað út frá
fræðum, staðreyndum og
reynslu fyrirlesara. Fyrir-
lesarar eru Halla Tómas-
dóttir framkvæmdastjóri
Verslunarráðs, Eyþór
Eðvarðsson ráðgjafi hjá
Þekkingarmiðlun, Kristín
Pétursdóttir aðstoðarfor-
stjóri Singer og Fridlander
í London og Ingólfur V.
Gíslason ráðgjafi á Jafnrétt-
isstofu. Ráðstefnustjóri er
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar. Ráðstefn-
unni „Konur, starfsframi
og fjölskyldan" lýkur með léttri dagskrá og veit-
ingum þar sem ráðstefnugestum gefst tækifæri
á að efla tengsl sín á milli.
KONUFt
starfsframi ogfjölskyldan
16. mars á Listasafni Reykjanesbæjar
Ráðstefnan er opin öllum konum á Reykjanesi
þeim að kostnaðarlausu, skráning fer fram á net-
fanginu mss@mss.is. Einnig er hægt að skrá sig hjá
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, í síma 421
___________________ 7500. Skráning á ráðstefn-
una er til og með 13. mars
n.k. Ráðstefnan „Konur,
starfsframi og fjölskyldan"
er framhald af ráðstefnunni
„Konur, aukin áhrif á vinnu-
markaði" sem haldin var í
Listasafni Reykjanesbæjar
í febrúar á s.l. ári. Styrkt-
araðilar ráðstefnunnar eru
Islandsbanki, Hitaveita Suð-
urnesja, Byggðastofnun,
Samband sveitarfélaga Suð-
urnesjum og Reykjanesbær.
Á sama tíma og ráðstefnan
er haldin í Listasafni Reykja-
nesbæjar er boðið á sannar-
lega kvennasýning í Lista-
safninu, sýninguna Náttúru-
afl. Sýningin er á vegum
Listasafnsins, á boðstólum
eru verk úr eigu Listasafns
íslands sem öll eru unnin af
konum. Það er von undir-
búningshóps ráðstefnunnar
„Konur, starfsframi og fjölskyldan” að sem flestar
konur taki frá tíma til að mæta á ráðstefnuna.
Yrsa Rós, Kristófer Haukur, lukkutrölliö og litla systir María Tinna
Hauksdóttir, Aníta Lóa, Pétur Fannar.
Vel heppnuð danskeppn
isferð til Tralee á írlandi
Systkinin Kristófer
Haukur Hauksson 9
ára og Aníta Lóa Hauks-
dóttir 7 ára úr Njarðvík voru
síðustu helgi í Tralee á írlandi
að keppa í keppninni Celtic
classic ásamt dansfélögum
sínum Yrsu Rós Ásgeirsdóttur
og Pétri Fannari Gunnarsyni
og er keppnin ein af stóru
keppnunum sem haldin er
fyrir þennan aldur í heim-
inum.
Það er óhætt að segja að vel hafi
gengið því að þau komu hlaðin
verðlaunum til baka og vöktu
þau mikla athygli í dansheim-
inum.
Kristófer og Aníta hafa mjög
gaman af dansinum og leggja
mikið á sig til að ná þessum
góða árangri og fara þau 4-5
sinnum í viku til Reykjavíkur
til æfinga.
Keppnishópurinn sem þau
keppa í er 11 ára og yngri og
eiga þau því góðan tíma enn
fyrir sér og eiga án efa eftir að
gera enn frekari og stórkostlegri
hluti.
Dagskrá
starfsframi ogfjölskyldan
ié. mars á Listasafni Reykjanesbæjar
12:30- 12:55 Skráning
13:00 - 13:10 Ráðstefnan sett
Hjördís Arnadóttir, félagsmálastjóri Reykjanesbæjar
13:10 - 1 3:30 „Innlegg frá Höllu"
Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Verslunarráðs
13:30 - 14:00 „Konur, starfsframi og fjölskyldan"
Eyþór Eðvarðsson, ráðgjafi Þekkingarmiðlun
14:00 - 14:30 „Reynslusaga athafnakonu og móður"
Kristín Pétursdóttir, aðstoðarforstjóri Singer & Friedlander
14:30 - 15:10 Kaffi
15:10 -15:40 „Afskiptasemi? Kynin í fjölskylduleik"
Ingólfur Gíslason, ráðgjafi Janfréttisstofu
15:40 - 16:00 Fyrirspurnir og umræður
16:00 Ráðstefnuslit
Una Steinsdóttir, útibústjóri Islandsbanka
Ráðstefnustjóri Arni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Léttar veitingar í boði Reykjanesbæjar
0 Byggðastofnun
HITAVEITA Samband sveitarfélaga
SUÐURNESJA HF á Suðurnesjum REYKJANESBÆR
ISLANDSBANKI
16 I VtKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ í 27.ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!