Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 27
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja 2006 Þátttakendur í Fegurðarsamkeppni Suð- urnesja 2006 fara ekki tómhentir heim. Allar stúlkurnar fá: Gjafabréf að verðmæti 7.500 kr. frá K-sport, einnig gefur K-sport öllum stúlkunum Speedo bikini. Allar stúlkurnar fá mánaðarkort í Lífsstíl. Allar stúlkurnar fá að gjöf vöru í lík- amslínu Dior frá Lyf og heilsu. Allar stúlkurnar frá aðgang og iétt nudd í heilsulind g BLUE LAGOON vörur. Allar stúlkurnar fá að gjöf Oroblu sokkabuxur frá Oroblu. Allar stúlkurnar fá blóma- vönd frá Blómavali. Fegurðardrottning Suðurnesja fær: - 100.000 kr. frá Sparisjóðinum í Keflavík. - Handsmíðaðan demantshring frá Georgi V. Hannah, smíðaðan af Egg- erti Hannah gullsmíðameistara. - Árskort í Bláa Lónið - heilsulind, heilnudd, og gjafakörfu með BLUE LAGOON andlitsvörum og spa vörum. - Fegurðardrottning Suðurnesja ætti að getað haldið sér í formi því hún fær árskort í líkamsrækt frá Lífsstíl auk 10 tíma ljósakorts. - Lyf og Heilsa Keflavík gefur fegurð- ardrottingunni fallega tösku sem inn- heldur snyrtivörur og ilm frá Dior. - Fegurðardrottningin fær dekur- dag hjá Snyrtistofu Huldu, 50% afslátt frá Mangó í heilt ár. og 10.000 kr. gjafabréf frá Kóda. - Og það ætti að fara vel um fegurðar- drottninguna því hún fær líka glæsilega dúnsæng frá Flúsgagnaversluninni Kjarna. - Þá gefur fataverslunin Per- sóna 10.000 kr. gjafabréf. Annað sæti fær: Þriggja mánaða kort í Bláa Lónið - heilsulind, slökunarnudd og BLUE LAGOON spa vörur. Þriggja mánaða kort í líkamsrækt í Lífsstíl. Og fataverslunin Persóna gefur 10.000 kr. gjafabréf. Þriðja sæti fær: Þriggja mánaða kort í Bláa Lónið - heilsulind, slökunarnudd og BLUE LAGOON spa vörur. Þriggja mánaða kort í líkamsrækt í Lífsstíl Fataverslunin Persóna gefur 10.000 kr. gjafabréf. Ljósmyndafyrirsæta Suð- urnesja 2006 fær: Samhæfni gefur glæsilega HP Photosmart R817 stafræna myndavél. Þriggja mánaða kort í líkamsrækt í Lífsstíl. Tískuljósmyndun frá Víkurfréttum. K-sport stúlka Suðurnesja 2006 fær: Auglýsingasamning hjá K-sport. BLUE LAGOON stúlkan fær: Árskort í Bláa Lónið - heilsulind, heilnudd, gjafakarfa með BLUE LAGOON andlitsvörum og spa vörum og kvöldverður fyrir tvo á veitingastaðnum í heilsulind. Dior-stúlkan fær: Fallega tösku sem inniheldur snyrtivörur og ilm frá Dior. Undirbúningurinn: Um hár stúlknanna sjá Linda og Magna á Nýja klippóteki og Hársnyrtistofu Anítu. Förðun er í umsjón Ingveldar, Kristínar Jónu og Kristínar Bjargar í snyrtivöru- deild Lyf og heilsu og er stelpurnar farðaðar með Dior snyrtivörum. Héðinn ljósmyndari hjá Víkurfréttum tók myndirnar af stelpunum og Lovísa A. Guðmundsdóttir stíliseraði myndirnar. Stórglæsilegt 20 ára afmæliskvöld Fegurðarsamkeppni Suðurnesja verður haldin laugardaginn 11. mars en keppnin er haldin í Stapanum og á 20 ára afmæli. Tíu stúlkur af Suður- nesjum voru valdar til þátttöku í ár og er hópurinn einstaklega glæsilegur. Fegurðarsamkeppni Suðurnesja er ávallt ein glæsilegasta undankeppni sem haldin er ár hvert og ekki verður slegið slöku við núna enda keppnin 20 ára. Stapinn opnar klukkan 21.00 með fordrykk frá Karli K. Karlssyni. Dagskrá kvöldsins Stúlkurnar koma þrisvar fram um kvöldið. Fyrst í glæsilegu opnunaratriði frá Persónu. Þá koma þær fram í Speedo baðfatnaði frá K-sport og að lokum í kvöldkjólum. Þótt að stúlkurnar séu í að- alhlutverki um kvöldið þá verður margt annað gert til skemmtunnar. Kynnar kvöldsins eru Ragnhildur Steinunn, sjón- varspkona og fyrrverandi Fegurðardrottn- ing Suðurnesja og íslands, og Sveppi sem ætti að vera flestum kunnugur. Heiðursgestir kvöldsins verða Petrúnella Skúladóttir, fegurðardrottning Suður- nesja 2005 og Ungfrú heimur, Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, en hún situr einnig í dómnefnd ásamt Elínu Gestsdóttur, framkvæmdastjóra Fegurðarsamkeppni Is- lands, sem er formaður dómnefndar, Guð- OROBL SPEEDO HITAVEITA SUÐURNESJA HF i n v e n t rúnu Ágústu Jónsdóttur verslunareiganda, Friðriki Inga Rúanrssyni, körfuknatt- leiksþjálfara og Magneu Gumunds- dóttur, kynningarstjóra Bláa lónsins. Herbert Guðmundsson hefur engu gleymt og mun vera með skemmtilega endurkomu en hann skemmti á feg- urðarsamkeppninni fyrir 20 árum. Eftir að fegurðardrottning Suður- nesja hefur verið krýnd þá mun fjörið halda áfram í húsinu því Love Gúrú, öðru nafni Doddi Litli, mætir og heldur stuðinu uppi. Boðið verður upp á úrvals rauð- vín frá Karli K. Karlssyni og ljúffenga osta að hætti Stapans. Valdar verða: Fegurðardrottning Suðurnesja, 2. og 3 sætið, Ljósmyndafyrirsæta Suðurnesja, Vinsælasta stúlkan í hópnum er valin, Blue Lagoon stúlkan, K-sport stúlkan. Dior-stúlkan. Fólkið á bak við keppnina Það eru margir sem hafa komið að und- irbúningi keppninnar til að gera kvöldið sem glæsilegast. Gunnar Ben hefur séð til þess að stúlkurnar séu í sínu besta formi en þær hafa æft undir dyggri handleiðslu hans í Lífsstíl. Oddný Nanna Stefánsdóttir og Lovísa A. Guðmundsdóttir hafa ann- ast framkomu og þjálfun stúlknanna. Lovísa er stílisti keppninnar en hún er einnig framkvæmdastjóri hennar. Um hár stúlknanna sjá Linda og Magna á Nýja kJippóteki og Hársnyrtistofu Anítu. Förðun er umsjón Ingveldar, Kristinar Jónu og Kristínar Bjargar í Snyrtivöru- deild Lyf og heilsu og er stelpurnar farðar með Dior snyrtivörum. Héðinn Eiríksson á Víkurfréttum sá um myndatökur af stúlkunum. Þá hafa Víkurfréttir séð um að kynna stúlkurnar. Þá mun Lilja í Blómavali sjá um allar blómaskreytingar og blómavendi um kvöldið. Sviðsstjórn er í höndum starfsmanna Stapans. Lovísa, framkvæmdastjóri keppninnar, vill þakka öllum þeim sem koma að keppninni kærlega fyrir samstarfið en án þeirra væri illmögulegt að halda svona glæsilega keppni eins og Fegurð- arsamkeppni Suðurnesja er ár hvert. FRETTIR Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Grundarvegi 23 - 260 Njarðvík Ritstjóri: Páll Ketilsson Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Styrktarabitar ''Fegurðarsamteppni Suðumesja 2006: PERSÓNA Hafnargötu 29 • Sími 421 5099 Snyrtistoja iHuidnS) Sjávargötu 14, Njarðvík sími 421 1493 W;á'n£l Sími 421 1099 rJ~^~~~rnli~ZLn S“Kef Sparisjóðurinn í Keflavík SAMHÆFNIi iES!l!nMIH!E«:l Nfja klippótek blöfnouo! mango K E F L A V I K Hafnargötu 15 • Sími 421 4440 GEORG V. HANNAH sf. ________Úr og skartgripir_____ HaJntrgUn 49 ■ 2)0 KtjUtik ■ Slmi 421 5757 ■ Fax 421 5657 -mmm FEGURÐARSAMKEPPNI SUÐURNESJA 2006 • BLAÐAUKI VÍKURFRÉTTA UM FEGURÐARSAMKEPPNINA í 20 ÁR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.