Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 41

Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 41
VF-sport molar Sex Uefa A þjálfarar á Suðurnesjum SIÐASTLIÐIÐ föstudags- kvöld útskrifuðust 22 þjálf- arar með UEFA A þjálfara- gráðu í menntunarkerfi KSl. UEFA A gráða er hæsta þjálfaragráða sem er í boði á íslandi og næst hæsta þjálf- aragráða sem UEFA viður- kennir. Athyglisvert er að sex af UEFA A þjálfurunum starfa hjá Suðurnesjaliðum - þeir Sigurður Jónsson, Magni F. Magnússon, Milan Stefán Jankovic og Jón Ólafur Dan- íelsson frá Grindavík og Gunnar Oddsson og Elvar Grétarsson frá Reyni í Sand- gerði. Suðurnesjalið í bikarnum Fjögur lið frá Suðurnesjum leika til bikarúrslita í yngri flokkum um helgina en bik- arúrslitin fara fram í DHL - höllinni í Reykjavík dag- ana 11. og 12. mars. Á laug- ardeginum kl. 12:00 mætast UMFG og UMFH í 10. flokki kvenna. Á sunnudeginum kl. 10:00 mætast UMFN og Haukar í 9. flokki kvenna og kl. 12:00 mætast UMFN og Valur í 11. flokki karla. Þar strax á eftir mætast UMFG og Haukar í unglingaflokki kvenna eða kl. 14:00. Það verður því bikarveisla í vestur- bænum um helgina og Suður- nesjamenn hvattir til að fjöl- menna og styðja við bakið á krökkunum. Hefur þú heimsótt skóla barnsins þíns ? SUMARSTÖRFIGS 2006 Við bjóðum fjölbreytileg og skemmtileg störf í spennandi umhverfi flugheimsins Flugþjónustan Keflavíkurflugvelli ehf. (IGS) vill ráða fólk til afleysingastarfa á tímabilinu apríl-september. Um er að ræða störf í öllum deildum fyrirtækisins þ.e. flugeldhúsi, fraktmiðstöð, hlaðdeild, farþegaafgreiðslu, veitingadeild, frílager, hleðslueftirliti og ræstingu. í sumum tilfellum er um að ræða hlutastörf og öðrum deildaskiptar ráðningar í 100% störf. Einnig verða eingöngu kvöldvaktir í boði í ákveðnum deildum. Mikil áhersla er lögð á þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum, reglusemi, stundvísi og árvekni. Unnið er á breytilegum vöktum og vaktaskrá birt fyrir 1 mánuð í senn. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að sækja undirbúningsnámskeið, og í sumum tilfellum standast próf, áður en til ráðningar kemur. Boðið verður upp á sætaferðir frá fyrirfram ákveðnum stöðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafharfirði, Vogum og Grindavík. Nánari upplýsingar um aldurstakmark og hæfniskröfur: Hlaðdeild Lágmarksaldur 19 ár, vinnuvélaréttindi, almenn ökuréttindi, enskukunnátta. Flugeldhús Lágmarksaldur 18 ár. Veitingadeild Lágmarksaldur 20 ár, góð tungumálakunnátta og mikil þjónustulund. Hleðsluþjónusta Lágmarksaldur 20 ár, almenn ökuréttindi, meirapróf æskilegt, enskukunnátta. Frílager Lágmarksaldur 20 ár, tölvu- og enskukunnátta. Fraktmiðstöð Lágmarksaldur 19 ár, vinnuvélaréttindi, tölvukunnátta, almenn ökuréttindi, enskukunnátta. Hleðslueftirlit Lágmarksaldur 20 ár, stúdentspróf æskilegt, góð tungumálakunnátta, góð tölvukunnátta, reynsla af störfum í hlaðdeild eða farþegaþjónustu æskileg og nauðsynlegt að umsækjendur séu talnaglöggir. Ræsting flugvéla Lágmarksaldur 18 ár, almenn ökuréttindi, enskukunnátta. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Flugþjónustunnar Keflavíkurflugvelli ehf, 2. hæð í Frakmiðstöð IGS, bygging 11,235 Keflavíkurflugvelli. Einnig er hægt að sækja um störf á vefsíðu IGS, www.igs.is. ÍÞRÓTTASÍÐUR VÍKURFRHTTA ERU i BOÐI LANDSBANKANS

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.