Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 42

Víkurfréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR í BOÐI LANDSBANKANS VÍKURFRETTIR I (ÞRÓTTASÍÐUR Berjast um 2. sæti Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í gær en Kefla- vík tók á móti Haukum og Grindavík heimsótti KR í DHL - höllina. VF var farið í prentun áður en úrslit komu í hús en að þessum leikjum loknum mætast Breiða- blik og ÍS og að þeim leik loknum er komið að síðustu umferðinni í deildarkeppn- inni. Haukar eru þegar orðnar deildarmeistarar en Grindavík og Keflavík berjast hart um 2. sætið í deildinni, það kemur í hlut ÍS að verma fjórða sætið en samkvæmt stöðunni í dag mætast Haukar og IS og Kefla- vík og Grindavík í fyrstu um- ferð úrslitakeppninnar. Jívatningfrá ‘Kja66ameinsféCagi Suðurnesja Œ)agana 13.-24. marsferfram árteg CegCáCs og 6rjóstasCoðun á vegum Kja66ameinsféCags ísCands. ® Krabbameinsfélag Suðurnesja giCcíi á regCuóunfinni sCoðun ftefur Cöngum sannað sig og Cvetjum við Conur á svæðinu tiCþess að sinna þessu kaCCi. VÍKURFRÉTTIR Á NETINU •www.vf.is- LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA! Stærsta Samkaupsmótið til þessa Amilli 950 og 1000 körfu- boltakrakkar munu taka þátt í Samkaups- mótinu um helgina og mótið því orðið stærsta Samkaups- mótið til þessa. Liðum fjölgaði um 21 í ár en í fyrra voru þau 124 en þau verða 145 að þessu sinni og því verða spilaðir 359 leikir á 12 völlum. Dagskráin verður ekki af verri endanum hjá krökkunum í mót- inu sem fá frítt í sund í Keflavík og Njarðvík um helgina, fjöl- margar bíóferðir verða í boði og skemmtileg kvöldvaka á Laug- ardagskvöldinu svo eitthvað sé nefnt. Það verður því nóg um að vera í íþróttahúsum Reykjanes- bæjar um helgina. Urslitaleikur af bestu gerð Ikvöld fer síðasta umferðin fram í Iceland Express deild karla í körfuknatt- leik. Það er ekki ómaklegt fyrir körfuknattleiksunnendur að í lokaumferðinni skuli fara fram hreinn úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn milli stórveldanna í Njarðvík og Keflavík. Það lið sem sigrar í leiknum verður deildarmeistari og mun að auki tryggja sér heimaleikja- réttinn í öllum umferðum úr- slitakeppninnar að því gefnu að deildarmeistararnir fari alla leið. Allir leikir kvöldsins heíjast kl. 19:15 og fer viðureign Kefla- víkur og Njarðvíkur fram í Slát- urhúsinu í Keflavík. Annar stór- leikur fer fram á Suðurnesjum í kvöld þegar Grindvíkingar taka á móti KR í Röstinni í Grinda- vík. Grindavík íyrirgerði 4. sæt- inu á sunnudag er þeir töpuðu gegn Skallagrím í Borgarnesi en til að vera sem öruggastir um 5. sætið í deildinni verða þeir að sigra KR. Getraunaseðill vikunnar Ingvarog Sigurður tippa fyrir BS. Baldur tippar fyrir SpKef. m SpKef Spirlslódurlnn I Kelltvlk 1. Bolton - Wes Ham i 1 2. Portsmouth - Man City X x 2 3. Everton - Fulham 1 x 2 X 4. Sunderland - Wigan 2 1 2 5. Charlton - Middlesbro 1 1x2 6. Reading - Watford 1 1 7. Coventry - Sheff. Utd 12 1 2 8. Brighton - Preston 2 2 9. Wolves - Caráiff X 1x 10. Sheff. Wed - QPR 1 X X 11. Derby - Burnley 1 1 12. Crewe - Southampton 1 2 X 13. Hull - Plymouth 1 X 1 BS - menn eru í 4. sæti keppninnar en Baldur og félagar í Sparisjóðnum eru í 2. sæti, tveimur stigum á eftir Stuðlabergsmönnum sem verma toppsætið.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.